Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2251–2300 af 2728
    Raða eftir:
    13. okt. 2019Utanríkisráðuneytið

    Þátttaka utanríkisráðherra í Hringborði norðurslóða

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið tóku virkan þátt í Hringborði norðurslóðanna sem lauk í gær. Þá átti Guðlaugur Þór fundi með nokkrum þeirra ráðherra, þingmanna og annarra stjórnmálamanna sem sóttu Hringborðið.

    12. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Alþjóðamannréttindadagurinn haldinn hátíðlegur með málþingi

    Lina al-Hathloul, baráttukona fyrir mannréttindum í Sádí-Arabíu, var aðalræðumaður á málþingi sem haldið var í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum, sem haldinn er hátíðlegur 10. desember ár hvert. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti opnunarávarp og sérfræðingar tóku þátt pallborðsumræðum um hlutverk smærri ríkja í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og baráttunni fyrir mannréttindum á heimsvísu. Utanríkisráðuneytið stóð fyrir málþinginu í samstarfi við Alþjóðamálastofnun og Mannréttindaskrifstofu Íslands.

    10. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Ísland gagnrýnir aðgerðir Tyrklandshers í Sýrlandi

    Íslensk stjórnvöld gagnrýna harðlega hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi og hafa komið þeirri afstöðu sinni á framfæri við tyrknesk yfirvöld með formlegum hætti. Hernaðaraðgerðirnar samræmast ekki alþjóðalögum og er þess krafist að Tyrkir hætti aðgerðunum þegar í stað og fylgi alþjóðalögum í hvívetna. Hernaður sem beinist að almennum borgurum og veldur manntjóni, eins og fregnir herma, er fordæmdur.

    09. okt. 2019Utanríkisráðuneytið

    Vaxandi samskipti Íslands og Indlands

    Guðlaugur Þór utanrikisráðherra og Anumula Gitesh Sarma, skrifstofustjóri Evrópumála í utanríkisráðuneyti Indlands, undirrituðu í dag samning um gagnkvæmt áritunarfrelsi fyrir handhafa diplómatískra vegabréfa og þjónustuvegabréfa. Samningurinn var undirritaður á Bessastöðum í tilefni af opinberri heimsókn forseta Indlands. Síðdegis hitti Guðlaugur Þór viðskiptasendinefnd frá Indlandi sem kom hingað til lands með forsetanum.

    09. okt. 2019Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Vel heppnuð ráðstefna um velferð og samfélagslega þátttöku ungmenna á norðurslóðum

    Fjöldi fólks lagði leið sína á ráðstefnuna Velferð, styrkur og samfélagsleg þátttaka ungmenna á norðurslóðum sem fram fór frá hádegi í gær í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

    05. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisviðskiptaráðherra Bretlands fundaði með Guðlaugi Þór

    Tvíhliða samskipti og framtíðarsamband Íslands og Bretlands eftir Brexit voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Liam Fox, utanríkisviðskiptaráðherra Bretlands. Fundur þeirra var haldinn á Nesjavöllum en Fox er staddur í heimsókn hér á landi.

    05. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Sameiginleg yfirlýsing EFTA-ríkjanna í EES um sérstöðu Íslands

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun sameiginlega yfirlýsingu Íslands, Noregs og Liechtenstein á fundi í sameiginlegu EES-nefndinni þann 8. maí þar sem sérstaða Íslands hvað varðar innri raforkumarkað ESB er áréttuð.

    04. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál

    Árétting sérfræðinga vegna þriðja orkupakkans

    Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um upptöku og innleiðingu á svonefndum þriðja orkupakka lauk á Alþingi í gærkvöld. Þeir Stefán Már Stefánsson lagaprófessor og Friðrik Árni Friðriksson Hirst lögfræðingur hafa sent utanríkisráðherra bréf vegna sjónarmiða sem fram komu í umræðunni.

    28. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á baráttuna gegn hlýnun jarðar, mannréttindi og endurbætur á alþjóðakerfinu í samræmi við grunngildi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sem hann flutti á allsherjarþinginu í kvöld. Utanríkisráðherra ræddi einnig óöldina í Sýrlandi og Jemen og skoraði á þau ríki sem ýta undir ófriðinn að beita sér frekar fyrir friði.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra sækir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar í kvöld allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Í dag átti utanríkisráðherra fjölmarga tvíhliða fundi auk þess sem hann undirritaði loftferðasamning Íslands og Líberíu.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    Síðustu fundarlotu Íslands í mannréttindaráðinu lokið

    fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk í dag en þetta var fjórða lotan sem Ísland tekur þátt í sem aðildarríki ráðsins og jafnframt sú síðasta.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Borgaraþjónusta, Jafnrétti, Menningarmál

    Tveggja daga kjörræðismannaráðstefnu lauk í dag

    Tveggja daga ráðstefnu utanríkisráðuneytisins fyrir kjörræðismenn Íslands á erlendri grundu lauk í dag. Markaðs- og kynningarstarf, menningarmál, jafnréttismál og borgaraþjónusta voru á meðal þess sem hæst bar á ráðstefnunni.

    26. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Nýskipað ungmennaráð heimsmarkmiðanna kemur saman í fyrsta sinn

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði í utanríkisráðuneytinu í dag. Um var að ræða fyrsta fund nýskipaðs ungmennaráðs en þetta er í annað sinn sem skipað er í ráðið.

    25. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Skólar GRÓ, Utanríkismál

    Háskólar Sameinuðu þjóðanna verði Þekkingarmiðstöð þróunarlanda

    Þekkingarmiðstöð þróunarlanda (International Centre for Capacity Development) verður nýtt yfirheiti skólanna fjögurra sem hafa um langt árabil verið starfræktir sem skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Frá og með næstu áramótum bendir allt til þess að skólarnir starfi undir regnhlíf Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) en samningaviðræður milli UNESCO og utanríkisráðuneytisins eru á lokastigi. Áformað er að setja á laggirnar miðstöð á vegum ráðuneytisins sem eigi í samstarfi við og starfi undir merkjum UNESCO, líkt og Vigdísarstofnun - alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar.

    23. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf

    Ísland tekur þátt í gagnrýni á Sádi-Arabíu

    Ísland var í hópi ríkja sem í dag gagnrýndi ástand mannréttindamála í Sádí-Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Fastafulltrúi Ástralíu flutti ávarpið að þessu sinni og tók þar við keflinu af fastafulltrúa Íslands sem flutti yfirlýsingu fyrir hönd hópsins fyrr á árinu.

    20. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 20. september 2019

    Það er kominn föstudagur sem þýðir að langþráður föstudagspóstur er loksins kominn! Rennum yfir það helsta sem á daga okkar hefur drifið að undanförnu, bæði hér heima og í sendiskrifstofunum. Af nógu er að taka. Í þessari viku bar hæst ferð utanríkisráðherra til Washington DC þar sem hann fundaði með þingmönnum öldunga- og fulltrúadeildar Bandaríkjaþings með það að markmiði að efla tengslin á sviði efnahags- og viðskiptamála og kynna stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    20. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra styrkir tengslin við Bandaríkjaþing

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fundaði í vikunni með þingmönnum öldunga- og fulltrúadeildar Bandaríkjaþings með það að markmiði að efla tengslin á sviði efnahags- og viðskiptamála og kynna stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

    10. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurskautsráðið og Efnahagsráð norðurslóða funda saman í fyrsta sinn

    Nú stendur yfir fundur Norðurskautsráðsins og Efnahagsráðs norðurslóða en þetta er í fyrsta sinn sem ráðin koma saman. Fundurinn sem sóttur er af fulltrúum aðildarríkja Norðurskautsráðsins, vinnuhópa ráðsins, fastafulltrúum frumbyggjasamtaka á norðurslóðum og fulltrúum viðskiptalífs er liður í þeirri stefnu að auka samstarf milli ráðanna tveggja.

    10. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Síerra Leóne

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er í Síerra Leóne í vinnuheimsókn þar sem hann hefur skoðað þróunarsamvinnuverkefni Íslands í landinu á sviði sjávarútvegs- og jafnréttismála og hitt ráðamenn til að ræða þróunarsamvinnu landanna.

    09. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Endurheimt landgæða einn stærsti þátturinn í baráttunni við loftslagsvána - Viljayfirlýsing undirrituð

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Inger Andersen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) undirrituðu í gær viljayfirlýsingu Íslands og UNEP um samstarf á sviði landgræðslu. Guðmundur Ingi er staddur á aðildarríkjaþingi Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna (UNCCD) í Nýju Delí á Indlandi þar sem ráðherrahluti þingsins hófst í dag.

    09. sep. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Sjö verkefni tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

    Tilkynnt var um tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs á lýðræðishátíðinni Lýsu á Akureyri um helgina.

    09. sep. 2019Norðurslóðir, Annað, Utanríkisráðuneytið

    Fundur vinnuhóps Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun á Íslandi

    Dagana 10.-12. september mun vinnuhópur Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun (e. Sustainable Development Working Group - SDWG) funda á Íslandi.

    08. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Milliríkjaviðskipti í brennidepli á fundi með bandarískum þingmönnum

    Aukið samstarf á sviði milliríkjaviðskipta og málefni norðurslóða voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og fjögurra bandarískra þingmanna í Reykjavík í dag.

    07. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra birtar

    Ársskýrslur ráðherra eru nú gefnar út í annað sinn. Aukið gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna er markmiðið með skýrslunum sem er einnig ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    07. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna

    Marel og Thoregs hljóta styrki úr samstarfssjóði við atvinnulífið

    Tvö verkefni sem byggja á íslensku hugviti og verkþekkingu hafa fengið styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið kynnti á síðasta ári nýjan samstarfssjóð við atvinnulífið um heimsmarkmiðin sem ætlaður er samstarfsverkefnum fyrirtækja. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu, með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum ríkjum. Þetta eru fyrstu styrkirnir sem veittir eru úr sjóðnum.

    05. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Baudenbacher kynnir utanríkismálanefnd álitsgerð vegna þriðja orkupakkans

    Þótt mögulegt sé að hafna upptöku nýrrar löggjafar ESB í EES-samninginn á lokastigum málsmeðferðar er þriðji orkupakkinn ekki mál af því tagi að réttlætanlegt sé að grípa til slíkra neyðarráðstafana. Þetta er mat Carls Baudenbachers, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, en hann kynnir utanríkismálanefnd Alþingis álitsgerð sína síðar í dag. Að áliti hans gæti það teflt aðild Íslands að EES-samningnum í tvísýnu verði þriðja orkupakkanum hafnað.

    30. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit

    Fjölsótt ráðstefna um Brexit

    Fjöldi erlendra fræðimanna tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um Brexit sem var haldin hér á landi í gær, 29. ágúst. Rætt var um þróun mála sérstaklega þegar kemur að framtíðarsambandi Bretlands og Evrópusambandsins og hvernig ríki eins og Ísland passa inn í þá mynd.

    30. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið

    Árlegt utanríkispólitískt samráð Íslands og Rússlands fór fram í dag

    Árlegt samráð íslenskra og rússneskra stjórnvalda fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Tvíhliða samskipti ríkjanna, svæðisbundið samstarf, öryggismál og mannréttindi voru meðal helstu umræðuefna.

    27. ágú. 2019Innviðaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Heimsmarkmiðin, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra gestur á ungmennafundi um sjálfbæra þróun á Álandseyjum

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, var gestur á árlegum ungmennafundi á Álandseyjum, sem haldinn var um helgina.

    24. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið

    Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur í höfn

    Samningar hafa nú náðst um fríverslun milli EFTA-ríkjanna fjögurra og aðildarríkja Mercosur, Argentínu, Brasilíu, Úrúgvæ og Paragvæ. Með samningnum lækka tollar á bróðurpart þeirrar vöru sem flutt er út frá Íslandi. Nær allar sjávarafurðir sem Ísland flytur út munu njóta fulls tollfrelsis, sumar frá gildistöku samningsins en aðrar að loknum mislöngum aðlögunartíma.

    21. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Grænland

    Guðlaugur Þór Þorðarson, utanríkisráðherra átti í dag fund með Ane Lone Bagger sem fer með utanríkismál í Grænlensku landsstjórninni þar sem ákveðið var að efla til reglulegs samráðs milli landanna. Hann er staddur í vinnuheimsókn á Grænlandi til að kynna sér starfsemi ýmissa fyrirtækja og sveitarfélaga en þónokkuð er um íslenskar fjárfestingar í þessum hluta landsins.

    19. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Mannréttindi og jafnrétti

    Fundir utanríkisráðherra með Mary Robinson og Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í morgun fundi með þeim Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands og Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóra mannréttindasamtakanna Amnesty International, sem bæði eru stödd hér á landi. Loftslagsmál og mannréttindi voru þar aðalumræðuefnin.

    10. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Trúnaðarbréfin afhent víða um heim

    Nýir forstöðumenn sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni hafa að undanförnu afhent trúnaðarbréf sín og þar með getað formlega hafið störf. Nú síðast færði Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Margréti Þórhildi Danadrottningu trúnaðarbréf.

    03. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Utanríkisráðuneytið

    Höfði friðarsetur fær styrk vegna námskeiðs í samningatækni

    Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi að veita Höfða friðarsetri styrk upp á 3 milljónir króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að halda námskeið í samningatækni og átakafræði með Harvard háskóla haustið 2019.

    02. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál

    Áætlun samþykkt um að greiða götu Norðurlandabúa

    Samstarfsráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fyrsta fundi á formannsári Íslands norræna áætlun sem miðar að því að gera íbúum Norðurlanda enn auðveldara að flytja á milli landa, starfa, stunda nám eða stofna fyrirtæki í öðru norrænu ríki.

    02. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Réttindi íslenskra ríkisborgara tryggð eftir Brexit

    Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur.

    02. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Norðurslóðir, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Brexit og fiskveiðar efst á baugi á fundi með Skotlandsmálaráðherra

    Fiskveiðar, Brexit, fríverslun og málefni norðurslóða voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugar Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og David Mundell, Skotlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í morgun. Einnig ræddu ráðherrarnir öryggismál á Norður-Atlantshafi og margvísleg tengsl Íslands og Skotlands, meðal annars á sviði menntunar.

    16. júl. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra kynnir innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á ráðherrafundi SÞ í New York

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti stöðu innleiðingar Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi um heimsmarkmiðin í höfuðstöðvum SÞ í dag

    16. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Innleiðingarhalli EES-gerða áfram innan við eitt prósent

    Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á eftir að innleiða 0,7 prósent EES-gerða hér á landi. Þetta er í þriðja sinn í röð sem innleiðingarhalli Íslands er eitt prósent eða minna, en það hefur aldrei gerst áður.

    15. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar

    Ungmenni í forgrunni á fundi um heimsmarkmiðin

    Ísland kynnir á morgun stöðu innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi í New York. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur þá ávarp fyrir Íslands hönd, en auk þess ávarpa tveir fulltrúar úr ungmennaráði heimsmarkmiðanna fundinn, þau Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Sigurður Einarsson Mäntylä.

    10. júl. 2019Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Sigurður Ingi fundaði með forseta og varaforseta Norðurlandaráðs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, fundaði í dag með Hans Wallmark, forseta Norðurlandaráðs og Gunillu Carlsson, varaforseta ráðsins.

    10. júl. 2019Rit og skýrslur, Borgaraþjónusta, Utanríkisráðuneytið

    Stefna utanríkisráðuneytisins í málefnum borgaraþjónustu 2019-2024

    Stefna utanríkisráðuneytisins í málefnum borgaraþjónustu 2019-2024

    06. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð við Bandaríkin og Japan

    Í dag fór fram fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna í reglulegu efnahagssamráði sem komið var á fót á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í febrúar síðastliðinn. Þá fór fram fyrsti fundur í tvíhliða efnahagssamráði milli Íslands og Japans í Tókýó.

    05. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu

    Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu á fundi utanríkisráðherra ráðsins sem lauk fyrr í dag í Rovaniemi í Finnlandi. Þar tók Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra við formennskukeflinu af finnska starfsbróður sínum. Ráðherrafundurinn markaði lok tveggja ára formennsku Finnlands í ráðinu.

    03. júl. 2019Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna

    Góður árangur Íslands í frammistöðumati ESA

    Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) jafna íslensk stjórnvöld sinn besta árangur frá upphafi mælinga. Þetta er 43. frammistöðumat ESA sem gefið er út tvisvar á hverju ári. Í því er tekinn saman árangur EFTA-ríkjanna þriggja innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) við innleiðingu EES-gerða.

    03. júl. 2019Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Ísland í fararbroddi ríkja í gagnrýni á Sádi Arabíu í mannréttindamálum

    Ísland leiddi í dag hóp ríkja í gagnrýni á stöðu mannréttindamála í Sádi Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf. Er það í fyrsta skipti Sádi Arabía sætir slíkri samstilltri gagnrýni í ráðinu, og markar frumkvæðið því tímamót.

    01. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með Mike Pompeo

    Ýmis tvíhliða málefni á borð við viðskipti, fríverslun, öryggis- og varnarmál og norðurslóðamál voru til umræðu á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Michael Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í dag. Ráðherrarnir samþykktu í lok fundar sameiginlega yfirlýsingu um samstarf ríkjanna.

    28. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Fundað um viðskipta- og efnahagsmál með viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna

    Fulltrúi embættis viðskiptafulltrúa Bandaríkjaforseta (e. United States Trade Representative) og sendinefnd skipuð íslenskum embættismönnum, undir forystu utanríkisráðuneytisins, átti fund um viðskipta- og efnahagsmál í Reykjavík í gær.

    27. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiskrifstofa

    Afvopnunarmál og Afganistan efst á baugi á fundi varnarmálaráðherranna

    Afvopnunarmál, staða og horfur í Afganistan og framlög aðildarríkja til varnarmála voru helstu umræðuefnin á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Brussel í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fundinn af hálfu Íslands en hann sótti jafnframt fund varnarmálaráðherra Norðurhópsins svonefnda þar sem viðbrögð við upplýsingaóreiðu voru ofarlega á baugi.

    24. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein lokið

    Staða fríverslunarviðræðna, horfur í alþjóðaviðskiptum, samskiptin við Evrópusambandið og Brexit voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu EFTA, sem fram fór í Liechtenstein í dag. Að frumkvæði Íslands verða ákvæði um jafnréttismál eftirleiðis hluti af samningsmódeli EFTA.

    • First
    • Prev
    • 44
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband