Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2351–2400 af 4327
    Raða eftir:
    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    867/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni blaðamanns um aðgang að fundargerðum stjórnar Lindarhvols ehf. fyrir árin 2016-2018. Ráðuneytið synjaði beiðninni á þeim grundvelli að afgreiðsla hennar tæki of langan tíma, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, m.a. vegna þess að afmá þyrfti hluta upplýsinganna úr fundargerðunum með hliðsjón af 9. og 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að yfirferð fundargerðanna gæti tekið svo langan tíma að undantekningarákvæði 4. mgr. 15. gr. ætti við. Ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins var því felld úr gildi og lagt fyrir ráðuneytið að taka málið til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    866/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun Fiskistofu á beiðni um aðgang að tilkynningum til stofnunarinnar um veiddar langreyðar og skoðunarskýrslum stofnunarinnar vegna eftirlitsferða við langreyðaveiðar. Synjunin byggðist á því að stór hluti þess sem fram kæmi í gögnunum fæli í sér mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þriðja aðila, sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt, skv. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi upplýsingarnar hins vegar ekki verða felldar undir undanþáguákvæði 9. gr. upplýsingalaga og var Fiskistofu því gert að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    865/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun Herjólfs ohf. á beiðni um aðgang að farmskrá ferjunnar og upplýsingum um nöfn umsækjenda um störf hjá félaginu. Að því er varðaði farmskrána vísaði Herjólfur til þess að um væri að ræða upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni félagsins. Væri því óheimilt að veita aðgang að henni, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Einnig var vísað til samkeppnishagsmuna Herjólfs ohf. Að mati úrskurðarnefndarinnar fól farmskráin ekki í sér slíkar upplýsingar og var félaginu gert að afhenda skrána. Hvað varðar umsækjendur um störf er ekki skylt að veita aðgang að slíkum upplýsingum hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, öfugt við það sem gildir um umsækjendur um störf hjá stjórnvöldum. Úrskurðarnefndin staðfesti því þann hluta ákvörðunar Herjólfs ohf.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    864/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun Isavia ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að tveimur minnisblöðum sem unnin voru fyrir Isavia ohf. Synjunin var aðallega byggð á 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, þ.e. að minnisblöðin fælu í sér lögfræðilega álitsgerð sem hefði verið tekin saman í tengslum við dómsmál. Að mati úrskurðarnefndarinnar báru minnisblöðin með sér að þeirra hefði verið aflað í tengslum við aðgerðir Isavia ohf. gegn WOW Air. Var synjunin því staðfest.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    863/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis á beiðni um gögn varðandi tiltekinn einstakling. Fram kom að gögnin hefðu verið flutt á Borgarskjalasafn og væru því ekki fyrirliggjandi hjá þjónustumiðstöðinni. Málinu var vísað frá úrskurðarnefndinni.

    07. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    862/2020. Úrskurður frá 29. janúar 2020

    Kærð var synjun RARIK ohf. á beiðni um gögn er varða jarðhitaboranir í Hornafirði. Synjunin byggði á því að um væri að ræða upplýsingar um fjárhagsmálefni einstaklinga og fyrirtækja sem óheimilt væri að afhenda, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. RARIK ohf. var gert að afhenda samning við landeigendur um jarðhitaréttindi, þar sem samningurinn innihélt ákvæði um þinglýsingu, einnig skýrslu Íslenskra orkurannsókna, þar sem stofnunin samþykkti afhendingu skýrslunnar. Að öðru leyti var synjun RARIK ohf. staðfest á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga.

    05. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni í samráðsgátt

    Drög að tillögu forsætisráðherra til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 – 2025 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að senda inn umsögn við efni tillögunnar.

    04. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir útgáfu íslenskra einsöngslaga

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita eina milljón króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til tónverkamiðstöðvarinnar Ísalaga sem stendur að útgáfu íslenskra einsöngslaga. ​

    03. feb. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES í Osló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, og Adrian Hasler, forsætisráðherra Liechtenstein, á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES, sem haldinn var í Osló í morgun.

    31. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Upplýsingafundur þjóðaröryggisráðs

    Í dag var haldinn upplýsingafundur í þjóðaröryggisráði í tilefni af yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að kórónaveirufaraldurinn sem nú geisar sé alþjóðleg heilbrigðisógn.

    30. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands.

    24. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra styrkir Slysavarnarfélagið Landsbjörg vegna flutnings björgunarskips til Flateyrar

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að verða við ósk Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og styrkja félagið um hálfa milljón króna til að standsetja björgunarskip sem staðsett er á Rifi á Snæfellsnesi og sigla því til Flateyrar þar sem það mun vera við höfn í vetur.

    24. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Starfshópur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð

    Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hafa ákveðið að skipa starfshóp til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðsins þann 14. janúar sl. Verkefni starfshópsins er að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flateyrar á samfélagslegum innviðum og gera tillögur um aðgerðir sem treyst geta stoðir byggðarinnar.

    23. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Fanney Rós Þorsteinsdóttir sett tímabundið í embætti ríkislögmanns

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að setja Fanneyju Rós Þorsteinsdóttur í embætti ríkislögmanns, tímabundið til þriggja mánaða. Fanney Rós gegnir embættinu í fjarveru Einars Karls Hallvarðssonar ríkislögmanns.

    22. jan. 2020Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Jafnréttisþing haldið í Hörpu 20.02.2020

    Jafnréttisþing verður haldið í Hörpu fimmtudaginn 20. febrúar 2020 undir yfirskriftinni Jafnrétti í breyttum heimi: Kyn, loftslag og framtíðin.

    21. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Tekjusagan – uppfærður gagnagrunnur um þróun lífskjara

    Fyrir um ári síðan, eða þann 18. janúar 2019, opnuðu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vefinn tekjusagan.is.

    17. jan. 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Lög um ráðherraábyrgð og Landsdóm verða endurskoðuð

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að ráðast í endurskoðun á lögum um ráðherraábyrgð annars vegar og lögum um Landsdóm hins vegar.

    14. jan. 2020Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um sjálfstæðar stjórnsýslunefndir

    Ríkisstjórnin samþykkti í nóvember 2018 að fela Páli Hreinssyni að gera úttekt á starfsemi sjálfstæðra stjórnsýslunefnda í tilefni af 25 ára afmæli stjórnsýslulaganna 1. janúar 2019.

    14. jan. 2020Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um sjálfstæðar stjórnsýslunefndir afhent forsætisráðherra

    Páll Hreinsson hefur afhent Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra skýrslu um sjálfstæðar stjórnsýslunefndir.

    10. jan. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Norrænu lýðheilsuráðstefnuna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita tvær milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til embættis landlæknis vegna Norrænu lýðheilsuráðstefnunnar sem haldin verður í Hörpu 23. - 25. júní næstkomandi.

    02. jan. 2020Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    134 fyrirtæki og stofnanir komin með jafnlaunavottun

    Fyrir áramótin höfðu 134 fyrirtæki og stofnanir öðlast jafnlaunavottun. Hjá þessum aðilum starfa sextíu þúsund starfsmenn.

    31. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp forsætisráðherra

    Forsætisráðherra rifjaði upp réttindabaráttu hinsegin fólks og fór yfir stöðu efnahagsmála í áramótaávarpi sínu í kvöld.

    30. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið sameinast 1. janúar 2020

    Ný lög um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, taka gildi þann 1. janúar nk. sem og lög nr. 91/2019, um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. ​

    30. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Frá ríkisráðsritara. Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum þriðjudaginn 31. desember nk. kl. 11.00.​

    23. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Gunnar Jakobsson skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

    ​Forsætisráðherra hefur á grundvelli niðurstöðu lögbundinnar hæfnisnefndar og að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, skipað Gunnar Jakobsson, lögfræðing, í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára frá og með 1. mars 2020.

    20. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra boðar til jafnréttisþings í febrúar 2020

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur í samstarfi við Jafnréttisráð boðað til jafnréttisþings undir yfirskriftinni Jafnrétti í breyttum heimi.

    20. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Kvenfélagasamband Íslands

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita tvær milljónir af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til Kvenfélagasambands Íslands í tilefni af 90 ára afmæli þess árið 2020.

    20. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Slysavarnarfélagið Landsbjörg

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Slysavarnafélaginu Landsbjörg 15 milljóna króna fjárstyrk af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu.

    19. des. 2019Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Forsætisráðherra skipar nefnd um vandaða starfshætti í vísindum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd um vandaða starfshætti í vísindum á grunni laga nr. 70/2019.

    17. des. 2019Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir framkvæmdir á varðskipinu Óðni

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita fjórar milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu

    17. des. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ísland áfram í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti

    Ísland situr ellefta árið í röð í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum.

    17. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis geta nú breytt skráningu á kyni og nafni

    Í dag var samþykkt á Alþingi breyting á lögum um kynrænt sjálfræði sem heimilar íslenskum ríkisborgurum búsettum erlendis að breyta skráningu á kyni og nafni. ​

    16. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum samþykkt á Alþingi

    Tillaga Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2020–2023 var samþykkt á Alþingi í dag

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    861/2019. Úrskurður frá 13. desember 2019

    Deilt var um synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að skýrslu um opinbera rannsókn á tildrögum þess að Magnús Leópoldsson var á sínum tíma grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar og látinn sæta gæsluvarðhaldi vegna þess. Synjunin var byggð á því að skýrslan teldist hluti af rannsókn í sakamáli og þannig undanþegin gildissviði upplýsingalaga skv. 1. mgr. 4. gr. þeirra. Í umsögn ráðuneytisins kom m.a. fram að umrædd rannsókn hefði farið fram í samræmi við lagareglur sem á þeim tíma giltu um meðferð sakamála. Þeir aðilar sem boðaðir voru til skýrslugjafar vegna rannsóknarinnar höfðu ýmist réttarstöðu vitnis eða sakbornings. Úrskurðarnefndin taldi að m.a. með hliðsjón af því teldi nefndin ótvírætt að rannsóknin teldist rannsókn sakamáls.…

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    860/2019. Úrskurður frá 13. desember 2019

    Kærð var synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðni um afrit af ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra félagsins og starfslýsingu hans. Samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga á almenningur að jafnaði ekki rétt á upplýsingum um málefni starfsmanna þeirra aðila sem heyra undir lögin. Í 7. gr. koma fram nokkrar undantekningar frá þeirri meginreglu en ráðningarsamningur og starfslýsing framkvæmdastjóra opinbers hlutafélags falla ekki undir þær og var synjun Herjólfs því staðfest.

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    859/2019. Úrskurður frá 13. desember 2019

    Kærð var afgreiðsla Fjársýslu ríkisins á beiðni um upplýsingar um innkaup lögreglu á vörum vegna reksturs rannsóknarlögreglu á tilteknu tímabili. Beiðninni var synjað á þeim grundvelli að Fjársýslunni væri óheimilt að veita slíkar upplýsingar og kæranda var þess í stað bent á að beina beiðninni til lögreglunnar. Úrskurðarnefndin taldi málsmeðferð Fjársýslunnar ekki samræmast ákvæðum upplýsingalaga og lagt var fyrir Fjársýsluna að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    858/2019. Úrskurður frá 13. desember 2019

    Kærð var afgreiðsla Náttúrufræðistofnunar Íslands á beiðni um gögn varðandi friðlýsingartillögu. Stofnunin kvaðst þegar hafa afhent kæranda öll gögn málsins að undanskildum vinnugögnum, sbr. 5. tölul. 6. gr. og 8. gr. upplýsingalaga. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál var vafalaust að um vinnugögn væri ræða og var ákvörðun Náttúrufræðistofnunar því staðfest.

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    857/2019. Úrskurður frá 13. desember 2019

    Kærð var synjun Isavia ohf. á beiðni blaðamanns um gögn varðandi bílastæði við Keflavíkurflugvöll. Beiðnin sneri m.a. að greiðslum fyrirtækja fyrir aðstöðu við flugvöllinn og rekstrarkostnaði Isavia af bílastæðum árið 2017. Beiðninni var synjað á grundvelli viðskipta- og samkeppnishagsmuna, sbr. 9. gr. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, auk þess sem Isavia kvað hluta umbeðinna gagna ekki liggja fyrir hjá fyrirtækinu. Hins vegar lá fyrir hve mikið hópbifreiðafyrirtæki greiddu fyrir afnot af bílastæðum. Viðkomandi fyrirtæki lögðust ekki gegn afhendingu gagnanna og var Isavia gert að afhenda kæranda þau gögn. Úrskurðarnefndin vísaði hluta beiðninnar aftur til Isavia til nýrrar meðferðar og afgreiðslu, en hluta kærunnar var vísað frá.

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir íslenska myndmálssögu

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita fjórar milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á íslenskri myndmálasögu og útgáfu hennar.

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Átakshópur um úrbætur á innviðum í framhaldi af fárviðrinu 10. og 11. desember

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, í framhaldi af fárviðrinu sem gekk yfir landið 10. og 11. desember, skipan starfshóps fimm ráðuneyta sem falið er að meta hvaða aðgerðir séu færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum til að tryggja að slíkir grunninnviðir séu sem best í stakk búnir til að takast á við ofsaveður eða aðrar náttúruhamfarir.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Sérstakur fundur þjóðaröryggisráðs um stöðu mála í framhaldi af ofsaveðri

    Í dag var haldinn sérstakur fundur þjóðaröryggisráðs vegna hinna fordæmalausu aðstæðna sem upp hafa komið í framhaldi af ofsaveðri undanfarna daga.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    856/2019. Úrskurður frá 4. desember 2019

    Kærð var synjun Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni um aðgang að lista yfir umsækjendur um stöðu útvarpsstjóra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að samkvæmt 1. mgr. 7. gr. . mgr. 7. gr. upplýsingalaga næði réttur almennings almennt ekki til gagna í málum sem varði umsóknir í starf hjá þeim aðilum sem heyri undir upplýsingalög. Undantekningar frá þessari reglu væru hins vegar að finna vegna umsókna um opinbera starfsmenn en þá væri skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf, þegar umsóknarfrestur væri liðinn. Úrskurðarnefndin taldi hugtakið opinbera starfsmenn aðeins taka til starfsmanna stjórnvalda. Því gæti ákvæði 2. mgr. 7. gr. ekki átt við um starfsmenn Ríkisútvarpsins.…

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    855/2019. Úrskurður frá 4. desember 2019

    Kærð var synjun Vesturbyggðar á beiðni um gögn varðandi ráðningu í starf. Kærandi var meðal umsækjenda um starfið og átti því rétt til aðgangs að gögnum í málinu á grundvelli 15. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga gilda lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum og var kæru af þeim sökum vísað frá nefndinni.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    854/2019. Úrskurður frá 4. desember 2019

    Kærð var afgreiðsla umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á beiðni kæranda um gögn varðandi korta- og gagnagrunna sem stofnunin ÍSOR hefði í sínum vörslum. Ráðuneytið taldi fyrirspurn kæranda ekki fela í sér beiðni um tiltekin fyrirliggjandi gögn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál áréttaði að ráðuneytinu hafi borið að taka til athugunar hvort fyrirliggjandi væru gögn í málaskrá þess sem felld yrðu undir gagnabeiðni kæranda. Þar sem það hafði ekki verið gert var það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki hafi verið tekin rökstudd afstaða til gagnabeiðni kæranda líkt og upplýsingalög geri ráð fyrir. Var því lagt fyrir ráðuneytið að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    853/2019. Úrskurður frá 4. desember 2019

    Kærð var synjun Fiskistofu á beiðni um aðgang að CITES-leyfum vegna útflutnings á hvalaafurðum árið 2018. Ákvörðunin byggðist á 9. gr. upplýsingalaga en útflutningsfyrirtækið sem átti í hlut lagðist gegn afhendingu leyfanna. Úrskurðarnefndin taldi fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækisins ekki koma í veg fyrir að veittur yrði aðgangur að leyfunum að undanskildum upplýsingum um kaupanda vörunnar. Var því Fiskistofu gert að afhenda kæranda leyfin en afmá úr þeim upplýsingar um kaupanda.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    852/2019. Úrskurður frá 4. desember 2019

    Kærð var synjun Flóahrepps á beiðni um aðgang að heildarupphæðum tilboða í efniskaup vegna Flóafjóss. Kæranda var synjað um hluta umbeðinna gagna á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga með vísan til mikilvægra fjárhags- og viðskiptahagsmuna tilboðsgjafanna en upplýsingarnar segðu til um einingarverð þeirra. Við meðferð málsins veitti einn tilboðsgjafi samþykki sitt fyrir því að veittur yrði aðgangur að upplýsingum hann og var Flóahreppi því gert að veita kæranda aðgang að þeim upplýsingum.…

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    851/2019. Úrskurður frá 4. desember 2019

    Kærð var afgreiðsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á beiðni Hvalaskoðunarsamtaka Íslands um upplýsingar varðandi skýrslu stofnunarinnar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál skorti á að stofnunin hafi tekið rökstudda afstöðu til gagnabeiðni kæranda. Hin kærða ákvörðun var því haldin verulegum efnislegum annmörkum. Var því lagt fyrir Hagfræðistofnun að taka málið til nýrrar og lögmætrar meðferðar.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Dómsmálaráðuneytið, Sendiskrifstofa

    Framlag íslenskra stjórnvalda til Alþjóðaráðs Rauða krossins kynnt

    Íslensk stjórnvöld og Rauði kross Íslands tilkynntu um sameiginlegar skuldbindingar sínar um aðgerðir og markmið í þágu Alþjóðaráðs Rauða krossins og Rauða hálfmánans til næstu fjögurra ára. Í þeim er lögð rík áhersla á forvarnir og stuðning við baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi í vopnuðum átökum og aðgerðir vegna mansals.

    10. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Samantekt um sjónarmið umsagnaraðila í samráði um staðartíma á Íslandi birt

    Á undanförnum árum hefur farið fram umræða hvort seinka eigi klukkunni og færa staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna legu Íslands.

    06. des. 2019Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Íslensku óperuna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita fjórar milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til að styrkja uppsetningu íslensku óperunnar Agnes í tilefni af 40 ára afmæli Íslensku óperunnar. ​

    • First
    • Prev
    • 46
    • 47
    • 48
    • 49
    • 50
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband