Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2401–2450 af 2728
    Raða eftir:
    11. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Áhersla á að miðla af reynslu Íslands í jafnréttismálum

    Jafnrétti til útflutnings var yfirskrift ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir í samvinnu við Uppbyggingarsjóð EES, Portúgal og Noreg, í gær og í dag. Um 120 manns frá 20 ríkjum tóku þátt í ráðstefnunni og fimm hundruð fylgdust með streymi frá ráðstefnunni. Markmiðið var að kynna íslenska sérþekkingu á sviði jafnréttismála sem nýst getur í þágu íbúa og samfélaga í þeim fimmtán ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins(EES) sem njóta styrkja úr Uppbyggingarsjóði EES.

    11. jan. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 1. nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. nóvember 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 1

    10. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið komin út

    Starfshópur skipaður af utanríkisráðherra hefur skilað skýrslu sinni um aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Niðurstöður skýrslunnar voru kynntar á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í dag.

    10. jan. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið var skrifuð í kjölfar skýrslubeiðni sem hópur þingmanna lagði fram.

    08. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Aldrei fleiri konur forstöðumenn sendiskrifstofa Íslands

    Í dag taka gildi flutningar á forstöðumönnum sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni. Með breytingunum eru konur nú í meirihluta forstöðumanna í tvíhliða sendiráðum Íslands í fyrsta sinn.

    07. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Ísland tekur í dag sæti í stjórn Alþjóðabankans

    Geir H. Haarde, fyrrverandi sendiherra Íslands í Washington, tók í dag við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum. Hann kemur til með að stýra skrifstofu kjördæmisins í höfuðstöðvum bankans í Washington um tveggja ára skeið og situr í 25 manna stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins. Ísland er fámennasta aðildarríki bankans sem skipar í stöðu aðalfulltrúa í stjórn hans.

    05. jan. 2019Utanríkisráðuneytið

    Breytt öryggisumhverfi á norðurslóðum

    Ísland tryggir öryggi sitt og varnir með virku samstarfi við önnur ríki, einkum með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningi við Bandaríkin. Í nýútkominni skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál er fjallað um öryggis- og varnarmál, þar á meðal framlag Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins, norrænt varnar- og öryggissamstarf og afvopnunarmál.

    05. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Brexit eitt viðamesta verkefnið

    Hagsmunagæsla vegna úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu er eitt viðamesta verkefni utanríkisþjónustunnar um þessar mundir. Undanfarin misseri hefur ráðherra einnig skerpt frekar á áherslu Íslands á utanríkisviðskipti.

    04. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði utanríkisráðherrafundi NB8 og Visegrad-ríkja

    Öryggis- og varnarmál, þróun mála í Evrópu og málefni Sameinuðu þjóðanna voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja, sem lauk í Palanga, Litháen, fyrr í dag.

    02. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Mannréttindamál efst á baugi á fundum með ráðamönnum í Malaví

    Mannréttindamál og tvíhliða þróunarsamvinna voru í brennidepli á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með forseta og utanríkisráðherra Malaví í dag. Utanríkisráðherra opnaði í gær nýja fæðingardeild í Mangochi-bæ sem gerbyltir fæðingarþjónustu í héraðinu.

    02. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Sigríður Snævarr sæmd þakkarviðurkenningu FKA

    Félag kvenna í atvinnulífinu sæmdi í gær Sigríði Snævarr sendiherra sérstakri þakkarviðurkenningu. Sigríður á að baki áratugalangan starfsferil í utanríkisþjónustunni og varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna sendiherrastöðu.

    20. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Sendiráð Íslands í London, Utanríkismál

    Samningaviðræðum vegna útgöngumála Breta lokið

    Samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu er lokið og hafa drög að samningnum verið birt.

    18. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Ísland undirritar fjóra loftferðasamninga

    Nýir möguleikar opnuðust fyrir íslenska flugrekendur í síðastliðinni viku á árlegri ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar þegar samninganefnd Íslands undirritaði loftferðasamninga við fjögur ríki.

    18. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland efst tíunda árið í röð

    Tíunda árið í röð trónir Ísland á toppnum á lista Alþjóðaefnhagsráðsins (World Economic Forum) yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest. Listinn var birtur í morgun og næst á eftir Íslandi eru Noregur, Svíþjóð og Finnland. Framfarir eru hægar og bendir niðurstaðan til þess að það muni taka 108 ár að ná fullu jafnrétti karla og kvenna í heiminum. Úttektin nær til velflestra landa og leggur mat á jafnrétti kynja í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigði. Í kynningu á niðurstöðum er sérstaklega fjallað um hvað ræður góðri frammistöðu Íslendinga á þessu sviði.

    13. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Ísland, Noregur og ESB samstíga um markmið í loftslagsmálum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í dag með Miguel Arias Cañete, framkvæmdastjóra loftslagsmála hjá ESB og Ola Elvestuen, umhverfisráðherra Noregs, á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Katowice í Póllandi. Þar var farið yfir stöðu mála varðandi samvinnu í loftslagsmálum og drög að samkomulagi sem nú liggja fyrir milli Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um sameiginlega framkvæmd 30 ríkja á markmiðum Parísarsamningsins til 2030.

    10. des. 2018Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkisráðuneytið, Annað

    Ákvörðun stjórnvalda um móttöku flóttafólks á næsta ári

    Ríkisstjórnin tók í dag ákvörðun um móttöku allt að 75 flóttamanna á næsta ári, að stærstun hluta Sýrlendingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flóttamönnum og fjölskyldum þeirra sem nú eru í Kenýa. Ákvörðunin byggist á tillögum flóttamannanefndar í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

    09. des. 2018Rit og skýrslur, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Utanríkisráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    07. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál

    Árangursríkum leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lokið

    Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lauk nú síðdegis en Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra sóttu fundinn.

    30. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnt að sameiginlegri framkvæmd á Parísarmarkmiðum

    Drög að samkomulagi liggja fyrir milli Íslands og Noregs annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar um sameiginlega framkvæmd á markmiðum Parísarsamningsins í loftslagsmálum til 2030.

    30. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið

    Fjöldi viðburða í sendiskrifstofum vegna fullveldisafmælis

    Hátíðarhöld vegna eitt hundrað ára fullveldisafmælis Íslands ná hápunkti á morgun, 1. desember, með fullveldishátíð í Reykjavík. Þessum miklu tímamótum hefur verið fagnað víða um lönd að undanförnu, meðal annars í öllum sendiskrifstofum Íslands þar sem efnt hefur verið til margvíslegra viðburða síðastliðna vikur og mánuði af þessu tilefni.

    28. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    SACEUR í vinnuheimsókn á Íslandi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók í gær á móti Curtis M. Scaparrotti hershöfðingja í Bandaríkjaher og æðsta yfirmanni herafla Atlantshafsbandalagsins (SACEUR).

    23. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur EFTA við Indónesíu í höfn

    Yfirlýsing um lok fríverslunarviðræðna EFTA og Indónesíu var undirrituð á ráðherrafundi EFTA í Genf í dag. Jafnréttisákvæði í fríverslunarsamningum EFTA voru einnig til umræðu, en Ísland hefur haft frumkvæði að því að setja jafnréttismálin á dagskrá innan EFTA-samstarfsins.

    23. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar

    Spennandi samstarfsmöguleikar fyrir atvinnulíf í þróunarsamvinnu

    „Samstarfssjóðnum er ætlað að skapa ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf með styrkjum í tengslum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og þróunarsamvinnu. Þátttaka atvinnulífsins í uppbyggingu í þróunarríkjunum er lykilatriði ef við ætlum okkar að ná Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra en utanríkisráðuneytið auglýsir nú í fyrsta sinn eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr nýjum Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum.

    21. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Brexit, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Kaflaskil í Brexit-viðræðum efst á baugi á EES-ráðsfundi

    Þáttaskil í viðræðum Bretlands og Evrópsambandsins voru í brennidepli á fundi EES-ráðsins sem fram fór í Brussel. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi EES-samningsins fyrir Ísland og íslenskt atvinnulíf. Í því samhengi taldi ráðherra mikilvægt að beina athygli að efnahagslegri þýðingu samningsins á 25 ára afmæli hans á næsta ári.

    16. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Annað, Mið-Austurlönd, neyð, UNICEF, WFP, Hjálparstarf, Utanríkismál

    Brugðist við neyðinni í Jemen með 100 milljóna króna framlagi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ákvað í dag að utanríkisráðuneytið myndi verja 100 milljónum króna til neyðaraðstoðar í Jemen. Að þessu sinni skiptist framlagið jafnt milli tveggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem eru í landinu og sinna neyðaraðstoð, annars vegar til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og hins vegar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

    16. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Íslensk flugfélög geta nú samið um Síberíuflugleiðina

    Í kjölfar viðræðna íslenskra og rússneskra stjórnvalda hafa rússnesk stjórnvöld fallið frá kröfum um áætlunarflug til Rússlands sem skilyrði fyrir notkun Síberíuflugleiðarinnar. Íslensk flugfélög sem vilja fá leyfi til yfirflugs munu núna þurfa að semja um yfirflugsgjöld við viðkomandi aðila til að geta hafið flug til Asíu yfir Rússland. Þetta kom fram á samráðsfundi ríkjanna um viðskiptamál 8. nóvember sl. þar sem einnig var rætt um innflutningsbann á matvælum og aukin viðskipti á sviði skipasmíða og hátækni.

    13. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Stefnuyfirlýsing um NORDEFCO-samstarf undirrituð

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fund varnarmálaráðherra Norðurlanda um NORDEFCO-samstarfið og fund varnarmálaráðherra norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkja sem haldnir voru í Ósló í dag. Norrænu ráðherrarnir undirrituðu á sínum fundi stefnuyfirlýsingu um öryggis- og varnarmálasamstarf ríkjanna.

    10. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Danmerkur funduðu í Kaupmannahöfn

    Formennska Íslands í norrænni samvinnu og Norðurskautsráðinu, Brexit og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þór Þórðarsonar utanríkisráðherra og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn í gær. Utanríkisráðherra kynnti sér jafnframt fyrirkomulag danskrar þróunarsamvinnu með þátttöku atvinnulífsins og sótti viðburði í tilefni fullveldisafmælis Íslands.

    09. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin hagsmunagæsla vegna EES

    Aukin hagsmunagæsla vegna EES-samstarfsins, formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og norrænu ráðherranefndinni og aukin framlög til þróunarsamvinnu eru á meðal helstu áherslna á málefnasviði utanríkisráðherra sem birtast í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019.

    09. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Fyrsta fundarlota Íslands í mannréttindaráðinu hafin

    Ísland leggur áherslu á aðildarríki, ekki síst þau sem kosin hafa verið í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna, standi við mannréttindaskuldbindingar sínar.

    05. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Alþjóðasamningar

    Forgangsmál fyrir hagsmunagæslu gagnvart Evrópusambandinu

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun lista yfir þau mál sem eru í undirbúningi á vettvangi Evrópusambandsins og íslensk stjórnvöld ætla að vakta sérstaklega.

    01. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið

    Nýr fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins

    Sveinn H. Guðmarsson hefur verið ráðinn fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins.

    31. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Norrænir utanríkisráðherrar sýna Danmörku samstöðu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók í dag þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í Osló. Á fundinum gerði utanríkisráðherra Danmerkur grein fyrir nýlegum lögregluaðgerðum sem komu í veg fyrir morð á írönskum stjórnarandstæðingum búsettum í Danmörku.

    31. okt. 2018Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Sigurður Ingi mælti fyrir fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, mælti fyrir fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar á þingi Norðurlandaráðs í dag en framlög nema um 950 m. dkr. á ári.

    30. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Brexit

    Ræddu réttindi íslenskra borgara í Bretlandi eftir Brexit

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lýsir yfir ánægju með yfirlýsingu forsætisráðherra Íslands og Bretlands um að réttur íslenskra ríkisborgara í Bretlandi og breskra ríkisborgara á Íslandi til áframhaldandi búsetu eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu verði tryggður.

    30. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Tvíhliða fundir utanríkisráðherra í tengslum við afvopnunarráðstefnu

    Í tengslum við ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins í Reykjavík, sem lauk fyrr í dag, átti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tvíhliða fundi með háttsettum embættismönnum á sviði öryggis- og afvopnunarmála.

    30. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra á Northern Future Forum (NFF) og Norðurlandaráðsþingi í Ósló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í Northern Future Forum (NFF) í Ósló í dag og kynnti formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2019 á Norðurlandaráðsþingi.

    30. okt. 2018Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Utanríkismál

    Umbætur á samstarfi Norðurlandanna halda áfram

    Samstarfsráðherrar Norðurlandanna ákváðu á fundi í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló að breyta og bæta norrænt samstarf þannig að það nýtist íbúum sem best.

    30. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Umbætur á Norðurlandasamstarfinu halda áfram

    Á fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló var ákveðið að halda áfram með að breyta og bæta norrænu samstarfi þannig að það nýtist íbúum sem best.

    29. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðstefna Atlantshafsbandalagsins um afvopnun og takmörkun á útbreiðslu gereyðingarvopna hafin

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á afvopnun og frið í ræðu sinni á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins um takmörkun á útbreiðslu gereyðingarvopna og afvopnun sem hófst í Reykjavík í morgun. Varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins flutti einnig ávarp við upphaf ráðstefnunnar.

    26. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í London, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum um Brexit

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í vikunni fundi með breskum ráðamönnum um framgang samninga vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

    21. okt. 2018Utanríkisráðuneytið

    Sjálfbærni leiðarljós í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu

    Sjálfbærni verður leiðarljós í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu sem hefst á næsta ári og málefni hafsins, loftslagsmál og vistvænar lausnir í orkumálum og lífshættir íbúa norðurskautsins verða meðal áhersluatriða Íslands á formennskutímanum. Þetta kom fram í máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, sem hélt lokaræðu Hringborðs norðurslóða sem haldið var hér á landi í sjötta skipti og lauk nú síðdegis.

    21. okt. 2018Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra tekur þátt í Hringborði norðurslóða

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í gær ávarp um loftslagsmál á hliðarviðburði Hringborðs norðurslóða sem nú stendur yfir í Hörpu og tók jafnframt þátt í opnun sendiskrifstofu Grænlands í Reykjavík. Ráðherra hefur átt fjölmarga tvíhliða fundi um helgina með erlendum gestum ráðstefnunnar.

    19. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Íslands og Japans ræddu norðurslóðamál

    Málefni norðurslóða, fríverslun og flug voru til umræðu á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Taro Kono, utanríkisráðherra Japans, á Keflavíkurflugvelli í morgun.

    18. okt. 2018Utanríkisráðuneytið

    Árlegt samráð við Bandaríkin um öryggis- og varnarmál

    Árlegt samráð við Bandaríkin um öryggis- og varnarmál fór fram í dag í utanríkisráðuneytinu og voru tvíhliða samskipti ríkjanna, samstarf innan Atlantshafsbandalagsins og málefni norðurslóða meðal helstu umræðuefna, auk varnaræfingarinnar Trident Juncture sem nú stendur yfir á Íslandi.

    16. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Alþjóðamál

    Minningarathöfn markar upphaf Trident Juncture 2018 á Íslandi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og James E. Foggo aðmíráll leiddu í morgun minningarathöfn um þau sem létu lífið vegna átaka á Atlantshafi í síðari heimsstyrjöld. Athöfnin markar upphaf varnaræfingarinnar Trident Juncture 2018 á Íslandi.

    12. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Viðburðir í tilefni sjötíu ára afmælis mannréttindayfirlýsingarinnar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra áréttaði algildi mannréttinda þegar hann ávarpaði ráðstefnu í Háskóla Íslands vegna sjötíu ára afmælis mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Samstarfssamningur við Mannréttindaskrifstofu Íslands var undirritaður í utanríkisráðuneytinu í dag.

    07. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel sem hefst á morgun, miðvikudaginn 11. júlí og stendur fram á fimmtudag, 12. júlí.

    29. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Mannréttindi, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra flutti ræðu á allsherjarþingi SÞ

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Mannréttindamál, sjálfbær þróun og stríð í Sýrlandi og Jemen voru á meðal þess sem ráðherra fjallaði um í ræðu sinni.

    28. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Fundarlotu mannréttindaráðsins lokið – 23 ályktanir samþykktar

    fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk í dag. Ísland tók þátt sem aðildarríki ráðsins í fyrsta skipti eftir að hafa verið kosið í ráðið í sérstökum aukakosningum í New York í sumar.

    • First
    • Prev
    • 47
    • 48
    • 49
    • 50
    • 51
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband