29. des. 2021Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Matvælasjóður, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Loftslagsmál og aukin fjölbreytileiki í matvælaframleiðslu áherslumál í fjárlagafrumvarpi
Fjárlög á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir árið 2022 endurspegla áherslur í loftslagsmálum og auknu matvælaöryggi, auknu frelsi til fjölbreyttari matvælaframleiðslu og verðmætasköpunar sem og hvötum til nýsköpunar. Þá er lögð áhersla á að einfalda stjórnsýslu enn frekar og auka stafræn samskipti og að halda áfram að þróa Matvælasjóð sem styrkir nýsköpunar- og þróunarverkefni á sviði matvælaframleiðslu.