Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 251–300 af 1917
    Raða eftir:
    09. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    OECD: Ísland þarf að styrkja fjármögnun háskólastigsins – skýrsla Education at a Glance 2025

    Alþjóðleg skýrsla Efnahags og framfarastofnunarinnar, OECD, Education at a Glance 2025, var birt í dag. Skýrslan kemur út árlega en í ár er sjónum sérstaklega beint að háskólastiginu. Niðurstöður skýrslunnar gefa mikilvægar vísbendingar um stöðu íslensks háskólakerfis í alþjóðlegum samanburði.

    07. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Fjárfest í fagþróun kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks í skóla- og frístundastarfi

    Mennta- og barnamálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og forseti Menntavísindasviðs HÍ undirrituðu í dag samning um áframhaldandi stuðning við Menntafléttu og Íslenskuþorpið - námskeið í íslensku fyrir starfsfólk leikskóla og frístundaheimila.

    04. sep. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármálaáætlun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Mikilvægur áfangi um úrbætur í öryggisráðstöfunum

    Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tekið afgerandi skref um úrbætur í þjónustu og úrræðum fyrir einstaklinga sem sæta þurfa sérstökum öryggisráðstöfunum. Um er að ræða einstaklinga sem geta verið sjálfum sér og öðrum hættulegir en hafa fallið milli þjónustukerfa ríkis og sveitarfélaga. Þessir einstaklingar glíma gjarnan við alvarlegar þroska- og/eða geðraskanir og geta verið ósakhæfir, en einnig sakhæfir sem lokið hafa afplánun og þurfa mikinn stuðning í samfélaginu utan réttarvörslukerfis.

    01. sep. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Íþróttasjóði 2025

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2025. Úthlutað er til 71 verkefnis fyrir alls 21,15 milljónir króna.

    25. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ágúst Ólafur Ágústsson aðstoðar mennta- og barnamálaráðherra

    Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðmunds Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra.

    25. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Vel heppnað samstarf félagsmiðstöðva og lögreglu á Menningarnótt

    Ein helsta forsenda aðgerða stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum er þverfaglegt samstarf aðila sem koma að þessum málum. Viðvera og samtal samfélagslögreglu, starfsfólks félagsmiðstöðva þar með talið Flotans, flakkandi félagsmiðstöðvar og fleiri á Menningarnótt eru dæmi um slíkt samstarf. Þar fylgdi einn félagsráðgjafi og einn starfsmaður félagsmiðstöðvar hverjum lögregluhópi og var Flotinn – flakkandi félagsmiðstöð á vakt og samfélagslögreglan á ferðinni.

    22. ágú. 2025Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Hlustað á rödd barna á ríkisstjórnarfundi

    Ríkisstjórn Íslands tók á móti barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á fundi ríkisstjórnar í morgun. Þar kynntu fulltrúar ráðsins tillögur sínar og áherslur er varða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hvernig þau sjá fyrir sér að staðið verði að framgangi þeirra hér á landi.

    21. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust átta umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.

    20. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust átta umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ.

    18. ágú. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Almenn ánægja með starfsemi tónlistarskóla – úttekt á starfsemi tónlistarskóla á Íslandi

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt Úttekt á starfsemi tónlistarskóla á Íslandi. Úttektin er liður í aðgerðaáætlun menntastefnu og var markmið hennar að kanna gæði og skipan tónlistarnáms í viðurkenndum tónlistarskólum. Niðurstöður úttektarinnar gefa m.a. til kynna almenna ánægju meðal nemenda og forráðamanna með starf tónlistarskóla og að vilji kennara til umbóta og þróunar gagnvart náminu sé mikill. Hins vegar hefur nemendum sem þreyta áfangapróf fækkað og eru áskoranir til staðar gagnvart því að tryggja jafnt aðgengi að tónlistarnámi, óháð staðsetningu, efnahag og bakgrunni.

    10. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna birtar

    Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs. Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum í næsta mánuði.

    09. ágú. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Útbreiðsla þekkingar og reynslu af nýsköpunar- og skólaþróunarverkefnum menntastefnu

    Mennta og barnamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu efndu nýverið til uppskeruhátíðar fyrir styrkþega skólaþróunarverkefna menntastefnu til ársins 2030. Tilgangurinn var að fagna afrakstrinum, efla tengslin milli styrkhafa og tilkynna um næstu skref. Við það tækifæri var frumsýnd vefsíða sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur umsjón með þar sem safnað verður saman afurðum allra verkefnanna til að stuðla að útbreiðslu þeirra þannig að þau nýtist sem best öðrum skólum og stofnunum. Þá voru jafnframt frumsýnd 5 myndbönd frá leikskóla, framhaldsskóla, tveimur grunnskólum og úr frístundastarfi, sem hlutu styrki, og gáfu þau góða mynd af því gróskumikla starfi sem unnið hefur verið sl. vetur.

    09. ágú. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Alþjóðlegur dagur læsis

    Í dag er alþjóðlegur dagur læsis. Á þessum degi minnumst við mikilvægi læsis og hlutverki þess í að skapa það samfélag sem við viljum búa í, samfélag sem er réttlátt með jöfnum tækifærum til frama fyrir börn og ungmenni.

    01. ágú. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tilnefning í Æskulýðsráð 2025–2026

    Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar eftir tilnefningum í Æskulýðsráð fyrir tímabilið 2025–2026 í samræmi við reglugerð nr. 1088/2007.

    23. júl. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skipan skólameistara við Verkmenntaskólann á Austurlandi

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Birgi Jónsson í embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Austurlandi til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

    14. júl. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust fjórar umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

    10. júl. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Niðurstöður TALIS – stærstu alþjóðlegu rannsóknar á kennurum, skólastjórnendum og kennsluháttum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt landskýrslu fyrir Ísland um niðurstöður TALIS-rannsóknarinnar 2024.

    08. júl. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 291/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kæranda við barnabarn hennar.

    08. júl. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 105/2025-Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun barnaverndarþjónustu um að synja kæranda um afhendingu gagna í barnaverndarmáli.

    07. júl. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 332/2025-Úrskurður

    Kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

    01. júl. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úttekt á aðgengi nemenda að hljóðbókum með áherslu á nýbúa

    Nýverið var undirritaður samningur milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins, mennta- og barnamálaráðuneytisins og ARCUR um úttekt á aðgengi nemenda að hljóðbókaefni á íslensku, bæði námsefni og yndislestrarefni. Úttektinni er ætlað að varpa ljósi á aðgengi leik-, grunn- og framhaldsskólanema að hljóðbókum og mögulegar hindranir. Vilja ráðuneytin líta sérstaklega til nemenda sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Hlustun samhliða því að fylgja eftir texta bókar getur auðveldað þeim að læra íslensku og flýtt fyrir námi þeirra.

    27. jún. 2025Innviðaráðuneytið, Menntamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Jöfnunarsjóður, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps: Mikill ávinningur af gjaldfrjálsum skólamáltíðum

    Það er mat starfshóps að vel hafi tekist til á fyrsta skólaári eftir að skólamáltíðir í grunnskólum urðu gjaldfrjálsar.

    26. jún. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Ný skýrsla OECD um íslenskt efnahagslíf: Styrkar stoðir efnahagslífsins en aðhalds þörf

    Stoðir íslensks efnahagslífs eru sterkar og viðnámsþróttur mikill. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland, sem birt var í dag. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á tveggja ára fresti. Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi ásamt Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra.

    25. jún. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Matsferill – reglubundin vöktun námsframvindu

    Með nýsamþykktum breytingum á grunnskólalögum verður Matsferill innleiddur sem nýtt námsmat í grunnskólum landsins á næsta skólaári. Innan Matsferils eru ný samræmd próf sem prufukeyrð voru á um 7.000 grunnskólanemum í 26 skólum víðs vegar um landið nú í vor.

    25. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Benedikt Barðason skipaður skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Benedikt Barðason í embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

    24. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Halldór Jón Gíslason skipaður skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

    23. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fyrsta svæðisbundna farsældarráðið stofnað

    Stórum áfanga var náð á Suðurnesjum í dag þegar Farsældarráð Suðurnesja var formlega stofnað, hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Það er stofnað á grundvelli laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og samninga mennta- og barnamálaráðuneytisins við landshlutasamtök sveitarfélaga. Farsældarráð er vettvangur fyrir ólíka aðila til að vinna saman í hverjum og einum landshluta að því að veita börnum og foreldrum aðgang að samþættri þjónustu við hæfi, án hindrana.

    23. jún. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Öflugt foreldrastarf í þágu barna

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag nýjan styrktarsamning við Heimili og skóla. Samtökin fá viðbótarframlag til að annars vegar veita ráðgjöf og stuðning við foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og samtök þeirra Móðurmál, samtök um tvítyngi. Hins vegar til að taka virkan þátt með ráðgjöf og fræðslu í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna.

    20. jún. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Allir nýnemar úr stærsta árgangi sögunnar komnir með pláss í framhaldsskóla

    Innritun allra nýnema úr grunnskóla í framhaldsskóla hefur gengið vonum framar og er nú lokið. Með samstilltu átaki framhaldsskóla og yfirvalda hefur tekist að ljúka innritun fyrr en undanfarin ár. 5.231 nýnemar sóttu um innritun í framhaldsskóla í ár eða 554 fleiri en í fyrra.

    13. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Selma Barðdal Reynisdóttir skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Selmu Barðdal Reynisdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

    11. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Innviðaráðuneytið

    Íslensku menntaverðlaunin 2025

    Íslensku menntaverðlaunin 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 4. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

    05. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Afreksmiðstöð Íslands opnuð

    Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) var formlega opnuð við hátíðlega athöfn í Laugardalshöll í gær. Ný Afreksmiðstöð er stjórnstöð afreksíþróttastarfs á Íslandi. Hún er rekin af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og byggir á tillögum starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins að fyrirkomulagi afreksstarfs á sviði íþrótta hér á landi.

    03. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Góð þátttaka er á alþjóðlegum leiðtogafundi um málefni kennara – ISTP 2025

    Góð þátttaka er á alþjóðlegum leiðtogafundi um málefni kennara (ISTP 2025) sem fer fram í Reykjavík 24.–26. mars. Menntamálaráðherrar og kennaraforysta 22 ríkja munu sækja fundinn sem er stærsti alþjóðlegi fundur leiðtoga á sviði menntamála sem haldinn hefur verið á Íslandi.

    02. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Um kjarasamning kennara og aðkomu ráðherra

    Að gefnu tilefni vekur mennta- og barnamálaráðuneytið athygli á því að ráðherra og ráðuneytið eru ekki aðilar að kjarasamningum kennara. Hvorki Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra né starfsmaður á hennar vegum hefur boðið eða gefið vilyrði um launahækkun til kennara.

    02. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir aðstoðar mennta- og barnamálaráðherra

    Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra.

    02. jún. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til alþjóðlegra nemakeppna á framhaldsskólastigi í stærðfræði og raungreinum 2025

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum, þ.e. eðlisfræði, efnafræði og líffræði, á árinu 2025.

    30. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki í þágu farsældar barna

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda í áætlun vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Því er sérstök áhersla lögð á verkefni sem er ætlað að sporna gegn ofbeldi meðal barna.

    27. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ráðherrar ræða íþróttamál á Smáþjóðaleikunum

    Smáþjóðaleikanna voru settir í gærkvöld við hátíðlega athöfn á Estadi Nacional vellinum í Andorra de la Vella, höfuðborg Andorra. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, er staddur á leikunum til að fylgjast með íslensku keppendunum og ræða uppbyggingu íþróttastarfs við kollega sína í smáþjóðum Evrópu.

    23. maí 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Spretthópi falið að meta Kveikjum neistann og framhald

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað spretthóp sem ætlað er að meta stöðu tilraunaverkefnisins Kveikjum Neistann, árangur þess og tækifæri og koma með tillögur að möguleikum í þróun verkefnisins í þágu barna hér á landi.

    23. maí 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýr og aðgengilegur vefur fyrir aðalnámskrá

    Nú nýverið leit dagsins ljós nýr og aðgengilegur vefur fyrir aðalnámskrá, www.adalnamskra.is. Vefurinn er samstarfsverkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og mennta- og barnamálaráðuneytisins en þar eru í fyrstu birtar aðalnámskrár leikskóla og grunnskóla og innan tíðar bætast við fleiri aðalnámskrár.

    22. maí 2025Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Þrjú ráðuneyti styrkja Hjálparsíma Rauða krossins 1717

    Heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ) sem felur í sér 25 milljóna króna styrk til reksturs Hjálparsímans 1717. Framkvæmdastjóri RKÍ segir þetta ómetanlegt. Þannig verði unnt að halda þjónustunni opinni allan sólarhringinn og sinna sálfélagslegum stuðningi fyrir stóran hóp fólks sem þarf á slíkri hjálp að halda.

    22. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ný samræmd próf prufukeyrð í 26 skólum landsins

    Ný samræmd próf í lesskilningi og stærðfræði hafa nú verið lögð fyrir 7.000 nemendur í 26 skólum landsins. Fyrirlögninni var ætlað að prufukeyra nýtt samræmt námsmat, Matsferil, þannig að hægt verði að leggja ný samræmd próf fyrir nemendur frá 4. bekk og upp úr í öllum grunnskólum landsins næsta vor.

    21. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umsóknir um þrjú embætti skólameistara á Norðurlandi

    Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust ellefu umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Framhaldsskólans á Húsavík.

    20. maí 2025Rit og skýrslur, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skýrsla sérfræðingateymis um málefni barna með fjölþættan vanda

    Málefni barna með fjölþættan vanda hafa verið mjög til umræðu á undanförnum mánuðum og árum. Hinir flóknu erfiðleikar sem börnin glíma við skapa miklar áskoranir fyrir fjölskylduna í heild sinni, sem og þjónustuveitendur en oft þarf aðkomu margra aðila með ólíka nálgun, frá mismunandi þjónustukerfum. Þegar vandi þessara barna var ávarpaður í skýrslu árið 2013, var áætlað að um 8–12 börn væri að ræða á hverju tímabili. Nú er talið að þau séu mun fleiri eða í kringum 130 börn.

    16. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tölur 2024 birtar í mælaborði um farsæld barna

    Tölfræðigögn fyrir árið 2024 hafa verið birt í mælaborði um farsæld barna. Markmið mælaborðsins er að veita yfirsýn yfir stöðu farsældar barna á Íslandi á hverjum tíma, með sérstaka áherslu á viðkvæma hópa og samfélagslegar áskoranir.

    15. maí 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 661/2024-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kæranda við börn hans.

    14. maí 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Norrænt samstarf, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Norrænir ráðherrar menntamála og rannsókna ræddu hæfniþróun og aðlögun háskóla að heimi gervigreindar

    Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sótti á dögunum fund í Helsinki á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um menntamál og rannsóknir þar sem leiðir til að bæta námsárangur í grunnmentun voru m.a. ræddar.

    14. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi 2025

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki vegna grunnnáms listdansskóla fyrir skólaárið 2024–2025.

    13. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Jafnrétti í íþróttastarfi á Íslandi

    Staðan er góð borið saman við önnur þátttökuríki þrátt fyrir að ekki sé mikið um sértækar aðgerðir til þess að jafna stöðu kynjanna í stefnum eða aðgerðaáætlunum. Nærri helmingur íslenskra svarenda hefur tekið upp stefnur eða aðgerðaáætlanir til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi í íþróttum. Karlar eru í miklum meirihluta æðstu stjórnenda, meðan staðan er mun jafnari hjá næstæðstu stjórnendum og í stjórnum.

    12. maí 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur unnið úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga. Úttektin er unnin af íþróttateymi mennta- og barnamálaráðuneytisins út frá gögnum úr umsóknarkerfi Ferðasjóðs íþróttafélaga. Úttektin byggir á gögnum áranna 2018–2024, en árið 2018 var farið að halda sérstaklega utan um kynskráningu. Á því tímabili voru 16.125 umsóknir sem uppfylltu úthlutunarreglur sjóðsins og úttektin byggir á.

    • First
    • Prev
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband