Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2501–2550 af 4412
    Raða eftir:
    12. des. 2019Annað, Moody‘s, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Moody's (Issuer In-Depth) í tengslum við lánhæfiseinkunn ríkissjóðs í nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. desember 2019 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla Moody's (Issuer In-Depth) í tengslum við lánhæfiseinkunn ríkissjóðs í nóvember 2019 Í tengslum við lánhæfiseinkunn ríkissjóðs í nóvember síðastliðnum hefur Moody's Investors Service birt svo kallaða Issuer In-Depth skýrslu

    12. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Neytendamál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Útboð um eflingu stafrænnar þjónustu fyrir allt að 18 teymi

    Stafrænt Ísland, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, hyggst standa fyrir útboði sem skila á rammasamningum fyrir allt að 18 teymi frá öflugum fyrirtækjum. Markmiðið er að teymin vinni með Stafrænu Íslandi að því að bæta þjónustu á island.is fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Kynningarfundur fyrir áhugasöm fyrirtæki verður haldinn mánudaginn 16. desember.

    11. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skatturinn tekur til starfa um áramót: Stofnunum fækkar

    Stofnunum á sviði skatta og tolla fækkar um eina um áramót, en Alþingi samþykkti í dag lög sem greiða fyrir sameiningu embætta ríkisskattstjóra og tollstjóra. Sameinuð stofnun mun heita Skatturinn og verða öflug og leiðandi upplýsingastofnun á sviði skatta- og tollamála.

    11. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattafrétt mest lesna frétt stjórnarráðsvefjarins frá upphafi

    Engin frétt á vef Stjórnarráðsins hefur verið lesin jafnoft og frétt um skattalækkun sem fjármála- og efnahagsráðuneytið birti í síðustu viku.

    05. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bjarni Benediktsson hlaut hvatningarverðlaun Samtóns

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hlaut í dag hvatningarverðlaun Samtóns, samtaka rétthafa íslenskrar tónlistar. Verðlaunin hlaut hann fyrir að vera fyrsti ráðherra heims sem viðurkennir höfundarrétt til jafns við annan eignarrétt.

    04. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Veruleg lækkun tekjuskatts

    Tekjuskattur lækkar verulega með nýsamþykktum lögum Alþingis um tekjuskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Lækkunin verður í tveimur áföngum, 1. janúar 2020 og 1. janúar 2021.

    04. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Guðrún Ögmundsdóttir skipuð skrifstofustjóri skrifstofu rekstrar og innri þjónustu

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Guðrúnu Ögmundsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu í fjármála og efnahagsráðuneytinu til fimm ára, frá 2. desember 2019.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2019

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um tekjur og yfirlit yfir stöðu málefnasviða og málaflokka fyrir fyrstu níu mánuði ársins í samanburði við fjárheimildir. Byggt er á mánaðaryfirliti Fjársýslu ríkisins.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bylting í aðgengi fólks að stafrænni þjónustu

    Með 350 milljóna viðbótarframlagi á næsta ári, sem samþykkt var í fjárlögum í gær, verður stafræn þjónusta hins opinbera stóraukin. Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að stafræn samskipti verði meginsamskiptaleið við hið opinbera fyrir lok ársins 2020.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjárlög fyrir 2020 samþykkt: Sterk staða ríkissjóðs og öflug opinber fjárfesting

    Fjárlög fyrir árið 2020 voru samþykkt á Alþingi í gær. Sterk staða ríkissjóðs vegna ábyrgrar fjármálastjórnar undanfarinna ára gefur stjórnvöldum færi á að styðja við hagkerfið nú þegar það gengur í gegnum skammvinna niðursveiflu.

    27. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Utanríkismál

    Stuðlað að stafrænum sam- og viðskiptum yfir landamæri

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, stýrði í dag fundi norrænu ráðherranefndarinnar um stafræn málefni, sem haldinn var í Riga í Lettlandi. Fundinn sóttu ráðherrar og sendinefndir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

    26. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Efnahagsmál og opinber fjármál, Samgöngur og fjarskipti

    Frumvarp fjármálaráðherra um ívilnanir vegna vistvænna samgangna samþykkt í ríkisstjórn

    Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um ívilnanir vegna vistvænna ökutækja, rafmagnsreiðhjóla og annarra reiðhjóla var samþykkt í ríkisstjórn í dag. Umhverfissjónarmið voru höfð að leiðarljósi við gerð frumvarpsins sem hefur að meginmarkmiði að greiða fyrir orkuskiptum og vistvænum samgöngum með tilheyrandi samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.

    22. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch Ratings staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Fitch Ratings birti í dag mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunnir eru óbreyttar; langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt standa í A og skammtímaeinkunnir eru óbreyttar í F1+. Horfur eru stöðugar.

    15. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðgerðir til að koma í veg fyrir skattundanskot og tryggja virkt skattaeftirlit

    Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í ríkisstjórn helstu atriði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið að undanfarið með það að markmiði að koma í veg fyrir skattundanskot og tryggja virkt skattaeftirlit og eftirfylgni skattaframkvæmdar. Enn fremur gerði ráðherra grein fyrir áformum um hert skatteftirlit á komandi fjárlagaári.

    14. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 26/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. október 2019 kærir Öryggismiðstöð Íslands hf. örútboð Ríkiskaupa f.h. Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað sameiginlega til sem varnaraðila) á búnaði fyrir hjúkrunarheimili á Sléttuvegi í Reykjavík, sem efnt var til á grundvelli rammasamnings nr. 20674. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi um stundarsakir innkaupaferli varnaraðila þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Þess er einnig krafist að nefndin felli úr gildi ákvörðun kaupanda 11. október 2019 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Jafnframt er gerð krafa um að kæruefnd láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila.…

    14. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 15/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 12. júní 2019 kærði Mannverk ehf. útboð Mosfellsbæjar auðkennt sem „Helgafellsskóli nýbygging, 2.-3. áfangi“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Mosfellsbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Flotgólfa ehf. og Eignarhaldsfélagsins Á.D. ehf. í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 21. júní og 30. júlí 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Fyrirtækin Flotgólf ehf. og Eignarhaldsfélagið Á.D. ehf.…

    12. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármála- og efnahagsráðherra skipar hæfnisnefnd vegna umsækjenda um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna hæfnisnefnd í samræmi við ákvæði laga um Seðlabanka Íslands til að meta hæfni umsækjenda um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika.

    11. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álit AGS eftir heimsókn til Íslands: Rétt hagstjórnarviðbrögð í kjölfar efnahagsáfalla

    Slökun í aðhaldi ríkisfjármála og lækkun stýrivaxta í kjölfar efnahagsáfalla fyrr á árinu voru rétt hagstjórnarviðbrögð af hálfu stjórnvalda og hafa mildað höggið á hagkerfið. Stoðir íslensks efnahagslífs eru sterkar og grundvöllur er fyrir því að hagvöxtur taki senn við sér. Þetta er meðal þess sem kemur fram í áliti sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins(AGS) að lokinni reglubundinni heimsókn hennar til Íslands þar sem fram fór úttekt sjóðsins á íslensku efnahagslífi.

    08. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Moody‘s

    Moody´s hækkar lánshæfismat Íslands í A2: Meiri lækkun skulda og styrk umgjörð opinberra fjármála

    Matsfyrirtækið Moody’s hækkaði í dag lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um eitt þrep í A2 úr A3. Horfur eru stöðugar.

    08. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sótti evrópskan fund ráðherra fjármála og efnahagsmála

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

    08. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Rekstur og eignir ríkisins

    Tæknistefna island.is í samráðsgátt

    Drög að tæknistefnu island.is hafa verið lögð í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Stafrænt Ísland, sem vinnur að því að að aðstoða opinberar stofnanir við að bæta stafræna þjónustu, ætlar að hefja þróun á lausnum sem snúa að miðlægri þjónustugátt undir merkjum island.is. Þar munu fyrirtæki og einstaklingar getað nálgast þjónustu hins opinbera á einfaldan og skilvirkan hátt.

    30. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvatt til notkunar vistvænna samgöngumáta með lægri álögum

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta (ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.). Verði tillögurnar samþykktar koma þær m.a. til með að auðvelda fólki kaup á rafmagnsreiðhjólum og hefðbundnum reiðhjólum.

    30. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ákvarðanir kjaradóms

    Ákvarðanir kjaradóms frá árinu 1977-2005 hafa verið gerðar aðgengilegar.

    24. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nútímavætt viðskiptaumhverfi ríkisins með rafrænum reikningum

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að frá og með 1. janúar 2020 skuli allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu vera með rafrænum hætti. Markmið þessara aðgerða er að draga úr viðskiptakostnaði allra aðila samhliða því að nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

    23. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    22. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Mannauðsmál ríkisins

    Samið um styttri vinnuviku við fimm stéttarfélög

    Um helgina var undirritaður kjarasamningur milli fimm stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Helstu tíðindi samningsins eru að vinnutími verður styttur og er breytingin í takt við það sem samið var um á almennum vinnumarkaði í vor. Markmið styttingarinnar er að bæta vinnustaðamenningu og starfsumhverfi starfsfólks. Í breytingunum felst líka mikið tækifæri til umbóta í starfsemi ríkisins. Þá var samið um breytingar á sumarorlofi sem nýtast ungu fólki best.

    22. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 25/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 27. september 2019 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. V20769 „Sjúkrabifreiðar 2018-2019“. Kærandi gerir þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

    22. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 11/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 29. apríl 2019 kærði Urð og grjót ehf. útboð Landsnets hf. nr. KR3-02 auðkennt „Vegslóð, jarðvinna og undirstöður, Kröflulína 3“. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Landsnets hf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði og að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 7. maí 2019 var þess krafist að málinu yrði vísað frá eða öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Þá var krafist málskostnaðar út hendi kæranda. Með bréfi 2. júlí 2019 var krafa um frávísun ítrekuð „í ljósi þess að úrlausnarefni kærumálsins hefur verið borið undir dómstóla“.…

    22. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 7/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

    Með kæru 5. apríl 2019 kærði Tencate Geosynthetics útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins nr. 20821 á hönnun og framleiðslu stoðkerfis fyrir snjóflóðavarnargarða í Neskaupstað. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa og Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að hafna tilboði kæranda og velja tilboð Reinforced Earth Company Ltd. í hinu kærða útboði. Til vara er gerð krafa um að útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðilum gert að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá er gerð krafa um að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilar greiði kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir.…

    21. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skatturinn: Bætt þjónusta með nýrri og leiðandi upplýsingastofnun

    Í frumvarpi til laga um breytingar á tollalögum og fleiri lögum sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fyrir Alþingi er lagt til að embætti ríkisskattstjóra og tollstjóra verði sameinuð í öflugri og leiðandi upplýsingastofnun, Skattinum. Markmið breytinganna er að bæta þjónustu og hafa samþættingu, sjálfvirknivæðingu og stafræna opinbera þjónustu að leiðarljósi.

    18. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Norrænir fjármálaráðherrar funduðu í Washington

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, stýrði fundi norrænu fjármálaráðherranna í Washington í morgun, sem fram fór samhliða ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem ráðherrarnir sækja einnig. Fundinn sóttu ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, og Noregs auk staðgengils fjármálaráðherra Svíþjóðar.

    07. okt. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir

    Ný öryggisvottun hjá Tollstjóra tryggi samkeppnishæfni í inn- og útflutningi

    Tollstjóri hefur sett á laggirnar öryggisvottunina „viðurkenndir rekstraraðilar“ (AEO vottun). AEO er alþjóðleg gæðavottun sem felur í sér að fyrirtæki er talið vera öruggur hlekkur í aðfangakeðjunni, hefur tileinkað sér ábyrga tollmeðferð og uppfyllir kröfur um alþjóðlega vöruflutninga.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Listaverkið Tákn á þaki Arnarhvols

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 6 milljónum kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til listakonunnar Steinunnar Þórarinsdóttur.

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Ferðakostnaður

    Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2019

    Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir.

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Ferðakostnaður

    Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2019

    Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 16/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 14. júní 2019 kærði Malbikun Akureyrar ehf. útboð Vegagerðarinnar, Vg2019-030, auðkennt „Yfirlagnir á Norður- og Austursvæði 2019 - malbik“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að hefja samningaviðræður við Finn ehf. um hið útboðna verk. Jafnframt er þess aðallega krafist að „úrskurðað verði að kærði Vegagerðin skuli ganga til samninga við kæranda“ um hið útboðna verk, en til vara „að úrskurðað verði að verkið skuli boðið út að nýju.“ Verði ekki fallist á fyrri kröfur er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er þess krafist „að báðum kærðu“ verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðila og Finni ehf.…

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 14/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. maí 2019 kærðu Aflvélar ehf. útboð Ríkiskaupa f.h. Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20931 auðkennt „Öryggisvottaðir vegriðsendar fyrir Vegagerðina.“ Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Nortek ehf. í hinu kærða útboði og að lagt verði fyrir þá „að velja tilboð að nýju.“ Til vara gerir kærandi þá kröfu að hið kærða útboð verði ógilt og lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða út innkaupin að nýju. Þá er þess einnig krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Varnaraðilum og Nortek ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir.…

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 12/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 3. maí 2019 kærði Klæðir ehf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Yfirlagnir á Austursvæði, 2019-2020, klæðning“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila 30. apríl 2019 um að semja við Munck Asfalt A/S í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar. Varnaraðila og Munck Asfalt A/S var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum varnaraðila 10. og 29. maí 2019 var þess krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað.…

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 9/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 17. apríl 2019 kærði Medor ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala nr. 20879 „Framework Contract for delivery of 1. Implantable Cardiac Pacemakers (ICPs) 2. Implantable Cardioverter-Defibrillators (ICDs) 3. Pacing Leads 4. Defibrillation Leads“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að meta tilboð hans ógilt og taka tilboðum Abbott Medical Denmark og AZ Medica ehf., sem og að kærunefndin leggi fyrir varnaraðila að ganga til samninga við kæranda í samræmi við tilboð hans í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að útboðið í heild sinni verði lýst ógilt og varnaraðilum gert að auglýsa það að nýju.…

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 8/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 12. apríl 2019 kærði Tak – Malbik ehf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Efnisvinnsla á Vestursvæði 2019, Fossamelar“. Kærandi krafðist þess að kærunefnd útboðsmála ógilti ákvörðun kærða um að velja tilboð Þróttar ehf. í hinu kærða útboði. Þá var þess krafist að kærunefnd „tjái sig um bótaskyldu kærða og grundvöll skaðabóta“. Auk þess var krafist málskostnaðar. Með bréfi 13. maí 2019 óskaði kærunefnd útboðsmála upplýsinga frá varnaraðila um hvort hið kærða útboð hefði verið auglýst á EES-svæðinu og hvaða sjónarmið réðu því ef það var ekki gert. Í svari varnaraðila frá 20.…

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 6/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. mars 2019 kærði Verkís hf. útboð Ríkiskaupa f.h. Vatnajökulsþjóðgarðs (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20888 auðkennt „Innheimtukerfi fyrir þjónustugjöld Vatnajökulsþjóðgarðs.“ Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að taka tilboði Computer Vision ehf. í hinu kærða útboði. Þá er krafist álits á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda auk málskostnaðar. Varnaraðilum og Computer Vision ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð varnaraðila 23. apríl 2019 var þess krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Computer Vision ehf. gerði sömu kröfur með greinargerð 23.…

    30. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 5/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 1. apríl 2019 kærði Efla hf. örútboð Ríkiskaupa nr. 20901 „Nýr Landspítali við Hringbraut. Jarðvinna og veitur. Áfangi 1 – Eftirlit“ fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins innan rammasamnings RK 14.26 „Þjónusta sérfræðinga í umhverfis-, skipulags- og byggingamálum“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa og Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað til sem varnaraðila) að velja tilboð Verkís hf. í hinu kærða útboði og meta tilboð kæranda ógilt. Til vara er þess krafist að varnaraðilum verði gert að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá er gerð krafa um að varnaraðilar greiði kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 14.…

    27. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 22/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. júlí 2019 kærir Orkuvirki ehf. útboð Landsnets hf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Substation Hnappavellir – HNA-40 New 132 kV substation EPC“. Kærandi krefst þess að viðurkennt verði að kærandi teljist „lægstbjóðandi í útboðinu og Landsneti hafi á grundvelli útboðsgagna borið að semja við“ fyrirtækið. Auk þess er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun innkaupaferlisins sem komst á með kæru í þessu máli.

    27. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 10/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. apríl 2019 kærði Geveko Markings Sweden AB útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20916 auðkennt „Thermoplastic road marking materials for IRCA.“ Kærandi krefst þess að sú ákvörðun varnaraðila að velja tilboð Kelly Bros (Erinline) Ltd. í hinu kærða útboði verði felld úr gildi og að varnaraðila verði gert að velja tilboð kæranda. Varnaraðila og Kelly Bros (Erinline) Ltd. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 2. maí 2019 krafðist varnaraðili að kröfum kæranda yrði hafnað auk málskostnaðar. Kelly Bros (Erinline) Ltd. skilaði sjónarmiðum af sinni hálfu 7. maí 2019, sem skilja verður sem svo að fyrirtækið krefjist þess að kröfum kæranda verði hafnað. Kærandi skilaði andsvörum 19.…

    27. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2018

    Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2018. Álögð gjöld eru samtals 193,8 ma.kr. sem er hækkun um 6,9 ma.kr. á milli ára, en breytingar einstakra skatttegunda eru bæði til hækkunar og lækkunar.

    27. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Afhending fullgildingarskjala vegna tvísköttunarsamninga

    Þann 26. september sl. afhentu íslensk stjórnvöld tEfnahags- og framfarastofnuninni, OECD, tilkynningu um fullgildingu marghliða samnings um breytingar á tvísköttunarsamningum til þess að koma í veg fyrir rýrnum skattstofna og tilfærslu hagnaðar. Mun samningurinn koma til framkvæmda þann 1. janúar 2020.

    26. sep. 2019Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Samgöngusáttmálinn, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Vegasamgöngur, Loftslagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sáttmáli undirritaður um fjölbreyttar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu

    Í dag var undirritað tímamótasamkomulag um uppbyggingu á fjölbreyttum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

    25. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Atvinnuvegir

    Mikill vöxtur í fiskeldi á næstu árum

    Útlit er fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu tveimur árum. Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr árið 2021 eða sem nemur hátt í 3% af heildarútflutningi.

    19. sep. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins

    Fyrsta heildstæða stefna ríkisins fyrir stjórnendur kynnt

    Stjórnendastefna ríkisins, fyrsta heildstæða stefnan um starfsumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana, var kynnt í dag. Stefnan er liður í því að efla stjórnun hjá ríkinu og bæta opinbera þjónustu í samræmi við áherslur um aukinn árangur í rekstri ríkisins.

    19. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir fluttar í starf varaseðlabankastjóra

    Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra. Í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem samþykkt voru í júní sl, er kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn varaseðlabankastjórinn leiði málefni sem varða peningastefnu, annar málefni sem varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni sem varða fjármálaeftirlit.

    • First
    • Prev
    • 49
    • 50
    • 51
    • 52
    • 53
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband