Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2701–2750 af 4412
    Raða eftir:
    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfestir óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið S&P Global staðfesti í dag óbreytta A/A-1 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum gjaldmiðli með stöðugum horfum

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Matsfyrirtækið Fitch staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Matsfyrirtækið Fitch staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldir í erlendum gjaldmiðli sem A með stöðugum horfum.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sóknarfrumvarp samþykkt: Fjárlög 2019 afgreidd frá Alþingi

    Fjárlög fyrir árið 2019 voru samþykkt á Alþingi í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2011 sem fjárlög eru samþykkt í fyrstu heilu viku desember, eins og kveðið er á um í þingskapalögum.

    07. des. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum - losun fjármagnshafta á aflandskrónueigendur og framkvæmd bindingarskyldu á fjármagnsinnstreymi

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.

    03. des. 2018Menntamál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Menningarmál, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Jöfn tækifæri til tónlistarnáms

    Samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna um stuðning við tónlistarnám er ætlað að jafna aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms á framhaldsstigi og söngnám á mið- og framhaldsstigi og festa fjármögnun námsins í betri sessi.

    30. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Frumvarp um breytingar á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru að mestu með hliðsjón af tillögum starfshóps forsætisráðherra um málefni kjararáðs sem skilaði skýrslu í febrúar.

    30. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Bætt stafræn þjónusta hins opinbera með innleiðingu Straumsins

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur undirritað samning við NIIS stofnunina (Nordic Institute for Interoperability Solutions) um samstarf við Eistland og Finnland um að hefja notkun gagnabrautarinnar Straumsins (X-Road). Með þessu batnar samvirkni milli upplýsingakerfa stofnana, svo ekki þarf lengur að veita sömu upplýsingar á fleiri en einum stað og hið opinbera þarf ekki að óska eftir upplýsingum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem það býr þegar yfir.

    28. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur ræddu efnahagsmál ríkjanna

    Fjármálaráðherrar Íslands og Danmerkur hittust síðdegis í gær í Kaupmannahöfn á fundi Dansk-íslenska viðskiptaráðsins, sem haldinn var í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands. Efnahagsmál ríkjanna tveggja voru í deiglunni, sameiginlegar og ólíkar áskoranir.

    27. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði settur á fót

    Stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði hafa komið sér saman um átakshóp um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði í kjölfar 12. samráðsfundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem haldinn var á föstudaginn var.

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 24/2015B. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með bréfi 9. mars 2018 krefst Enor ehf. endurupptöku á máli kærunefndar útboðsmála nr. 24/2015 sem lauk með úrskurði 7. mars 2016. Sóknaraðili krefst þess að í enduruppteknu máli felli kærunefnd útboðsmála úr gildi þá ákvörðun varnaraðila, Hafnarfjarðar og Ríkiskaupa, að meta tilboð sóknaraðila ógilt í örútboði nr. 20148 samkvæmt rammasamningi nr. 15392 á endurskoðun ársreiknings fyrir Hafnarfjarðarbæ, Hafnarfjarðarhöfn og GN eignir ehf. Þá er þess krafist að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem krafist er málskostnaðar. Varnaraðilum og PricewaterhouseCoopers ehf. var gefinn kostur á að tjá sig um endurupptökubeiðnina. Með tölvubréfi 13. mars 2018 gerðu varnaraðilar ekki athugasemdir við að málið yrði tekið til efnislegrar meðferðar fyrir kærunefnd.…

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 9/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. júní 2018 kærði ÞG Verk ehf. útboð Hafnarfjarðarkaupstaðar auðkennt „Knatthús í Kaplakrika 2018“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar.

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 7/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 14. júní 2018 kærði Gísli Rafn Jónsson útboð sveitarfélagsins Skútustaðahrepps (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um skólaakstur fyrir Reykjahlíðarskóla í Skútustaðarhreppi. Kærandi krefst þess að „felld verði niður ákvörðun sveitarstjórnar Skútustaðarhrepps um að ganga að tilboði Snow Dogs ehf. í leið 2 samkvæmt útboðslýsingu og tilboð félagsins verði úrskurðað ógilt.“

    26. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 15/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 8. september 2018 kærði Fastus ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala nr. 20678 um blóðflögutæki („Automated continuous microbal detection system and consumables for detecting the presence or absence of microorganisms in blood and sterile body fluids“). Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Medor ehf. í hinu kærða útboði og lagt verði fyrir varnaraðila að velja tilboð að nýju. Til vara gerir kærandi þá kröfu að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er einnig gerð sú krafa að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Kæran barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laga nr.…

    23. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 24 milljarða króna

    Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 24 ma.kr. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20, RIKB 22, RIKB 25 og RIKB 31 fyrir samtals um 22,5 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKS 21 fyrir um 0,3 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram í dag.

    20. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland til sérstakrar umfjöllunar á Global Positive Forum í París

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

    14. nóv. 2018Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslensk efnahagsmál

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir úttekt á efnahagslífi aðildarlanda á eins til tveggja ára fresti á grundvelli 4. greinar stofnsáttmálans (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum var hér á landi í september síðastliðnum til viðræðna við íslensk stjórnvöld og ýmsa hagsmunaaðila.

    14. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Nýir stjórnendur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

    Undanfarið hafa orðið talsverðar breytingar á stjórnendahópi fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

    09. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Aukinn stuðningur við rannsóknir, þróun og nýsköpun

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi um að auka stuðning við rannsóknir og þróun fyrirtækja og stuðla þannig að enn frekari nýsköpun. Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr.

    07. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 18/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. september 2018 kærir Garðlist ehf. útboð Garðabæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Garðabæ 2018-2021“. Kærandi krefst þess að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað auk þess að „ákvörðun Garðabæjar um að velja ekki tilboð kæranda verði felld úr gildi og Garðabæ gert að velja tilboð kæranda og ganga til samninga við kæranda.“ Til vara er þess krafist að „útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðila gert að bjóða þjónustuna út að nýju.“ Þá er óskað álits kærunefndar útboðsmála á skaðabótaskyldu varnaraðila, auk þess sem krafist er málskostnaðar.…

    07. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 14/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 3. september 2018 kærði Síminn hf. útboð Ríkiskaupa nr. 20735 „Síma- og fjarskiptaþjónusta fyrir Íslandspóst“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um ógildingu útboðsferlis og að halda hraðútboð. Þá krefst kærandi aðgangs að tilboði Sýnar hf. Jafnframt er gerð krafa um að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og að honum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilar krefjast þess að kröfum kæranda verði hafnað og varnaraðilinn Sýn hf. krefst jafnframt málskostnaðar úr hendi kæranda. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr.…

    06. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ræddu breytingar í umhverfi fjármálastofnana á fundi ráðherra fjármála- og efnahagsmála í Brussel

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í dag árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

    05. nóv. 2018Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Nýsköpun hjá hinu opinbera kortlögð í fyrsta sinn

    Á dögunum fengu um 800 stofnanir ríkis og sveitarfélaga senda könnun sem ætlað er að kortleggja nýsköpun hjá hinu opinbera og um leið efla hana. Könnunin, sem nefnist Nýsköpunarvogin, er samnorræn en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í slíkri könnun.

    05. nóv. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Framgangur áætlunar um losun fjármagnshafta

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur brit greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.

    31. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Staða og horfur á vinnumarkaði: Spyrja þarf um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar

    Þegar lífskjör landsmanna eru skoðuð þarf spyrja um þróun ráðstöfunartekna og kaupmáttar þeirra, fremur en að horfa aðeins á mælikvarða skatthlutfalla. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í pallborði á morgunfundi Landsbankans þar sem rætt var um stöðu og horfur á íslenskum vinnumarkaði.

    30. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 samþykkt í ríkisstjórn

    Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð var samþykkt í ríkisstjórn sl. föstudag. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur haft forystu um gerð áætlunarinnar í samráði við ráðherra jafnréttismála.

    29. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ræddu samgöngur og samskipti Íslands og Grænhöfðaeyja

    Málefni eyríkja, samgöngur og samskipti Íslands og Grænhöfðaeyja voru til umræðu á fundi Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og Jose da Silva Goncalves, sjávarútvegs-, samgöngu- og ferðamálaráðherra og Gilberto Barros, aðstoðarfjármálaráðherra Grænhöfðaeyja sl. föstudag.

    25. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ákvörðun ráðuneytis vegna dagskrárkynningar RÚV í aðdraganda heimsmeistaramótsins í knattspyrnu

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur undanfarið haft til skoðunar fyrirspurnir sem varða dagskrárkynningu Ríkisútvarpsins (RÚV) í aðdraganda heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sumarið 2018.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál 5/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 9. apríl 2018 kærði Dk hugbúnaður ehf. samkeppnisviðræður Reykjavíkurborgar nr. 14040 (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Verslunarkerfi fyrir starfsstaði Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar“. Kærandi krefst þess að frávísun hans frá samkeppnisviðræðunum „verði úrskurðuð ólögmæt, samkeppnisviðræðurnar stöðvaðar og þær fari fram að nýju.“ Jafnframt krefst kærandi þess að hafi „Reykjavíkurborg gert samning á grundvelli þessara ólögmætu viðræðna [...] að sá samningur verði lýstur óvirkur og Reykjavíkurborg gert að fara í nýjar samkeppnisviðræður.“ Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Auk þess er krafist málskostnaðar.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál 4/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 28. mars 2018 kærði Á. Guðmundsson ehf. rammasamningsútboð Ríkiskaupa nr. 20563 „RS - Húsgögn“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um val á tilboðum og varnaraðila verði gert að velja tilboð kæranda. Til vara er þess krafist að útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðila verði gert að auglýsa útboðið að nýju. Þá er jafnframt gerð krafa um að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðila og Hirzlunni ehf. var gefinn kostur á að koma að athugasemdum og bárust greinargerðir þeirra með bréfum 12. og 14. apríl 2018 þar sem þess var krafist að öllum kröfum yrði vísað frá en til vara að þeim yrði hafnað. Með bréfi 12.…

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 17/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 24. september 2018 kærði Þjótandi ehf. útboð Flóahrepps „Flóaljós, nýlögn ljósleiðara 2018-2019“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Flóahrepps (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að ganga til samninga við SH leiðarann ehf. Þá gerir kærandi þá kröfu að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva samningsgerðina um stundarsakir, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 16/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 10. september 2018 kærir L3 Communications UK Limited útboð Isavia (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Explosive Detection System [...]“. Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um val á tilboði í hinum kærðu innkaupum sem tilkynnt var kæranda 31. ágúst sl. Jafnframt krefst kærandi þess að lagt verði fyrir kaupanda að taka á nýjan leik ákvörðun um val tilboðs. Til vara er gerð krafa um að kærunefnd láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Þá er krafist málskostnaðar. Varnaraðili krefst frávísunar málsins eða að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Þá er þess krafist að stöðvun innkaupaferlisins, sem komst á með kæru í máli þessu, verði aflétt.…

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 13/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 21. ágúst 2018 kærir Hreint ehf. útboð Kópavogsbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 18061101 auðkennt „Ræstingarþjónusta í fimm grunnskólum Kópavogsbæjar“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi samningsgerð varnaraðila og Sólar ehf. í hinu kærða útboði. Þá er þess krafist að felld verði úr gildi sú ákvörðun varnaraðila að velja tilboð Sólar ehf. í útboðinu „að því er varðar ræstingarþjónustu í Hörðuvallaskóla og Smáraskóla“ og jafnframt að varnaraðila „verði gert að velja tilboð Hreint ehf. í umrædda skóla og ganga til samninga við Hreint ehf.“ Til vara er þess krafist að hið kærða útboð verði fellt úr gildi og varnaraðila gert að bjóða þjónustuna út á nýjan leik.…

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 3/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 26. mars 2018 kærði Sveinbjörn Freyr Arnaldsson f.h. óstofnaðs einkahlutafélags Sportisca ehf. útboð Garðabæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Íþróttasvæði í Ásgarði – Aðalvöllur. Endurnýjun á knattspyrnugrasi á núverandi fjaðurlag“. Kærandi krefst þess efnislega að ákvörðun varnaraðila um val á tilboði í hinu kærða útboði verði felld úr gildi og útboðið verði auglýst að nýju. Jafnframt er krafist skaðabóta, málskostnaðar og endurgreiðslu kærugjalds.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 25/2017(B). Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með bréfi 27. apríl 2018 kröfðust Sjúkratryggingar Íslands endurupptöku á ofangreindu máli kærunefndar útboðsmála nr. 25/2017 sem lauk með úrskurði 6. apríl 2018. Aðrir aðilar í máli nr. 25/2017 sendu athugasemdir sínar vegna endurupptökubeiðninnar með bréfum 14. og 20. maí 2018 og er í bréfi Klíníkunarinnar Ármúla ehf. lagst gegn endurupptöku málsins. Endurupptökubeiðandi lagði fram frekari athugasemdir með tölvubréfi 18. júlí 2018.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 21/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 3. október 2017 kærði Skræða ehf. gerð samstarfssamnings Embættis landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) við TM Software ehf. (nú TMS ehf.) frá 14. febrúar 2013 um þróun á hugbúnaði. Kærandi krefst þess „að kærunefnd útboðsmála kveði upp þann úrskurð að umræddur samningur hafi komist á með ólögmætum hætti og útboðsskylda vegna hans hafi verið sniðgengin.“ Jafnframt krefst kærandi þess að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 8/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála

    Með kæru 19. júní 2018 kærði Work North ehf. útboð Kópavogsbæjar „Kársnesskóli við Skólagerði, niðurrif“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Kópavogsbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um val á tilboði Abltaks ehf. og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva samningsgerðina um stundarsakir, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

    22. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Utanríkisráðherra Japans á Íslandi

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra tók í forföllum utanríkisráðherra á móti Taro Kono, utanríkisráðherra Japans þegar hann kom til Íslands í opinbera heimsókn 18.-19. október.

    19. okt. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Landbúnaður

    Ríkið tekur yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtaka Íslands – enginn kostnaðarauki því samhliða

    Frá næstu áramótum mun ríkið taka yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtakanna að upphæð 172 m.kr. samkvæmt samningi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og framkvæmdastjóri LSR undirrituðu í dag. Samkvæmt samningnum mun framlag ríkisins vegna búvörusamninga lækka árlega um samsvarandi fjárhæð frá og með árinu 2019.

    18. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 11/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. júní 2018 kærir Stjarnan ehf. útboð Isavia ohf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Veitingar á 2. hæð í suðurbyggingu“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Halpal slf. í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu varnaraðila um að aflétta stöðvun samningsgerðar sem komst á með kæru í máli þessu.

    18. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 10/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. júní 2018 kærir Clippers ehf. útboð Isavia ohf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Veitingar á 2. hæð í suðurbyggingu“. Kærandi krefst þess að kærunefnd ógildi með úrskurði þá ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði og kærunefnd veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu varnaraðila um að aflétta stöðvun samningsgerðar sem komst á með kæru í máli þessu.

    18. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 9/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. júní 2018 kærir ÞG Verk ehf. útboð Hafnarfjarðarkaupstaðar auðkennt „Knatthús í Kaplakrika 2018“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboð. Jafnframt er þess krafist að kærunefndin „stöðvi frekari innkaupaferli af hálfu varnaraðila um hönnun og byggingu knatthússins þar til skorið hefur verið úr kærunni.“ Til vara er þess krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda.…

    18. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 7/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 14. júní 2018 kærir Gísli Rafn Jónsson útboð sveitarfélagsins Skútustaðahrepps (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um skólaakstur fyrir Reykjahlíðarskóla í Skútustaðahreppi. Kærandi krefst þess að „felld verði niður ákvörðun sveitarstjórnar Skútustaðahrepps um að ganga að tilboði Snow Dogs ehf. í leið 2 samkvæmt útboðslýsingu og tilboð félagsins verði úrskurðað ógilt.“ Þá er þess jafnframt krafist að kærunefnd stöðvi samningsgerð um stundarsakir. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva samningsgerðina um stundarsakir, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

    18. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 2/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 7. mars 2018 kærði Munck Íslandi ehf. útboð Ríkiskaupa f.h. Reykjanesbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20681 auðkennt „Stapaskóli, Grunnskólinn Dalsbraut 11-13, 260 Reykjanesbæ. Verkhönnun og verkframkvæmd.“ Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi „ferli samkeppnisviðræðna“ og nefndin felli úr gildi ákvarðanir varnaraðila um „höfnun tilboðs sem og ákvörðun um að hefja ferli samkeppnisviðræðna.“ Jafnframt er óskað álits kærunefndar á skaðabótaskyldu varnaraðila. Hann krefst einnig málskostnaðar. Kærandi skilaði viðbótargreinargerð 9. mars 2018. Varnaraðila var kynnt kæran og viðbótargreinargerð kæranda og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum mótteknum hjá kærunefnd 13. og 27.…

    18. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 1/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 1. mars 2018 kærði Frigus II ehf. ákvörðun Lindarhvols ehf. um að semja við lögmannsstofuna Íslög ehf. og Steinar Þór Guðgeirsson um ráðgjöf við daglegan rekstur þeirra eigna sem varnaraðila hafði verið falin umsýsla með. Kærandi gerir kröfu um að varnaraðila verði gert að greiða stjórnvaldssekt og að varnaraðili greiði kæranda málskostnað. Varnaraðila var gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við kæruna og bárust þær 5. apríl 2018 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Kærandi gerði athugasemdir við greinargerð varnaraðila 23. apríl 2018. Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir frekari gögnum frá varnaraðila og bárust þau 18. júní 2018.

    17. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 20/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 19. september 2017 kærði Stólpavík ehf. útboð Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20452 „Salt til rykbindingar og hálkuvarna fyrir Kópavog og Garðabæ“. Kærandi gerir kröfu um að felld verði úr gildi sú ákvörðun varnaraðila að meta tilboð kæranda ógilt, að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðili greiði kæranda málskostnað. Varnaraðila var gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við kæruna og bárust þær 5. október 2017 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað og kæranda gert að greiða málskostnað. Kærandi gerði athugasemdir við greinargerð varnaraðila 29. nóvember 2017.

    17. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál 5/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 9. apríl 2018 kærir Dk hugbúnaður ehf. samkeppnisviðræður Reykjavíkurborgar nr. 14040 (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) auðkennt „Verslunarkerfi fyrir starfsstaði Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar“. Kærandi krefst þess að frávísun hans frá samkeppnisviðræðunum „verði úrskurðuð ólögmæt, samkeppnisviðræðurnar stöðvaðar og þær fari fram að nýju.“ Jafnframt krefst kærandi þess að hafi „Reykjavíkurborg gert samning á grundvelli þessara ólögmætu viðræðna [...] að sá samningur verði lýstur óvirkur og Reykjavíkurborg gert að fara í nýjar samkeppnisviðræður.“ Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Auk þess er krafist málskostnaðar.…

    17. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál 28/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. desember 2017 kærði Íslenska Olíufélagið ehf. útboð varnaraðila Kópavogsbæjar auðkennt „Kópavogur – Knattspyrnuhúsið Kórinn. Nýtt gervigrasyfirborð“. Kærandi krefst þess efnislega að ákvörðun varnaraðila um val á tilboði í hinu kærða útboði verði felld úr gildi og að útboðið verði auglýst að nýju. Jafnframt er krafist skaðabóta, málskostnaðar og endurgreiðslu kærugjalds. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála greinargerðir 13. og 21. desember 2017 án þess að eiginlegar kröfur kæmu fram, en skilja verður málatilbúnað varnaraðila svo að hann krefjist þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Kærandi skilaði andsvörum 17. janúar 2018.…

    17. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál 27/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 4. desember 2017 kærði PricewaterhouseCoopers ehf. útboð Reykjavíkurborgar nr. 13976 „Útboð endurskoðunarþjónustu. Reikningsár 2018-2022“. Kærandi gerði aðallega þá kröfu í upphafi að felld yrði úr gildi sú ákvörðun varnaraðila að meta tilboð kæranda ógilt en til vara að ógilt yrði „væntanleg ákvörðun“ varnaraðila um að ganga til samninga við annan en kæranda. Til þrautavara var gerð krafa um að nefndin veitti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila. Í öllum tilvikum var gerð krafa um að varnaraðili greiddi kæranda málskostnað. Varnaraðila var gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við kæruna og bárust þær 8. desember 2017 og 5. janúar 2018 þar sem varnaraðili krafðist þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað og að kæranda yrði gert að greiða málskostnað.…

    17. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 4/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 28. mars 2018 kærði Á. Guðmundsson ehf. rammasamningsútboð Ríkiskaupa nr. 20563 „RS - Húsgögn“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um val á tilboðum og að varnaraðila verði gert að velja tilboð kæranda. Til vara er þess krafist að útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðila verði gert að auglýsa útboðið að nýju. Þá er jafnframt gerð krafa um að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Kæran barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og leiddi þannig til sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laganna.…

    15. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjármálaráðherra á fundi AGS og Alþjóðabankans

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans á Bali í Indónesíu, sem haldinn var 8.-14. október. Þar voru meðal annars til umræðu þær áskoranir sem fjölþjóðasamstarf stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að viðhalda slíku samstarfi og efla með nýrri tækni og nýjum leiðum.

    • First
    • Prev
    • 53
    • 54
    • 55
    • 56
    • 57
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband