Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2701–2750 af 4327
    Raða eftir:
    11. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    772/2019. Úrskurður frá 31. janúar 2019

    Kærð var synjun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á beiðni um aðgang að tveimur tilkynningum um meint ástand kæranda, sem er læknir, í útkalli. Í umsögn stofnunarinnar kom fram að bæði almanna- og einkahagsmunir mæltu gegn því að kæranda yrðu afhent umbeðin gögn. Meðal annars væri nauðsynlegt að aðilar sem hefðu grunsemdir um möguleg brot heilbrigðisstarfsfólks í starfi gætu upplýst rétta aðila um þær án þess að eiga á hættu að viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður yrði upplýstur um nöfn þeirra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ekki stæðu rök til að synja kæranda um aðgang að umbeðnum tilkynningum, þar sem upplýsingalög innihéldu ekki heimild til að takmarka aðgang að gögnum á grundvelli þeirra tilteknu hagsmuna sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands nefndi í umsögn sinni.…

    08. feb. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Frumvarp til laga um kynrænt sjálfræði í samráðsgátt til umsagnar

    Forsætisráðherra kynnti drög að frumvarpi til laga um kynrænt sjálfræði á ríkisstjórnarfundi í morgun. Drögin hafa verið birt í samráðsgáttinni þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að senda inn umsögn við efni frumvarpsins.

    08. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Alþjóðleg bókmenntaverðlaun kennd við Halldór Laxness

    Tillaga forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra um að ríkisstjórnin veiti tvær milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af verðlaunafé vegna nýrra alþjóðlegra bókmenntaverðlauna sem kennd verða við Halldór Laxness var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    08. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ríkisstjórnin fjallar um matvælastefnu fyrir Ísland

    Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um vinnu að matvælastefnu fyrir Ísland.

    07. feb. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar samning við Samtökin ´78

    Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ´78, undirrituðu samning þessa efnis í Stjórnarráðinu.

    06. feb. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar samning við Kvenréttindafélag Íslands

    Forsætisráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa gert með sér samning um að félagið sinni fræðslu, námskeiðshaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi.

    01. feb. 2019Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga

    Launatölfræði á Íslandi er skýrsla nefndar um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga. Nefndin var skipuð fulltrúum frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, velferðarráðuneyti, heildarsamtökum á vinnumarkaði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ríkissáttasemjara og Hagstofu Íslands.

    01. feb. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ný skýrsla um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga

    Nefnd um bætur á úrvinnslu og nýtingu tölfræðiupplýsinga hefur nú skilað ítarlegri skýrslu um umbætur á þessu sviði sem ríkisstjórnin fjallaði um á fundi sínum í morgun. Forsætisráðherra skipaði nefndina í kjölfar fundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launatölfræði 19. janúar 2018.

    30. jan. 2019Forsætisráðuneytið

    Viðbótargreinargerð varnaraðila til kærunefndar útboðsmála

    Framkvæmdasýsla ríkisins og forsætisráðuneytið hafa skilað viðbótargreinargerð til kærunefndar útboðsmála vegna kærumáls sem nú er til meðferðar hjá nefndinni og lýtur að lögmæti niðurstöðu hönnunarsamkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið.

    25. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra funduðu um loftslagsmál í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisáðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu fund norrænna forsætisráðherra (N5) og norrænna umhverfisráðherra um loftslagsmál í Helsinki.

    24. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Mannauðsmál ríkisins

    Stjórnarráð Íslands á Framadögum

    Stjórnarráð Íslands tekur nú í annað sinn þátt í Framadögum sem haldnir eru í Háskólanum í Reykjavík í dag.

    24. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra funda um loftslagsmál í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisáðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra halda af stað til Helsinki í Finnlandi í dag á fund norrænna forsætisráðherra (N5) og norrænna umhverfisráðherra um loftslagsmál sem fer fram í Helsinki á morgun.

    22. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Átakshópur leggur til 40 aðgerðir til að bregðast við vanda á húsnæðismarkaði

    Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði hefur skilað Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, tillögum sínum.

    18. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Neytendamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Tekjusagan - gagnagrunnur um þróun lífskjara

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði vefinn tekjusagan.is á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Vefurinn veitir aðgang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna sem byggir á ópersónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017.

    17. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Forsætisráðherra heimsækir Hæstarétt

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Hæstarétt ásamt fylgdarliði og kynnti sér starfsemi réttarins. Er þetta í fyrsta skipti sem forsætisráðherra heimsækir réttinn í þessum tilgangi.

    14. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Forsætisráðherra heimsækir Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í morgun.

    10. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra heimsækja Landspítala

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Landspítala-háskólasjúkrahús í morgun. Páll Matthíasson forstjóri og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri, tóku á móti ráðherrunum á bráðamóttökunni í Fossvogi.

    10. jan. 2019Forsætisráðuneytið

    Tímareikningur á Íslandi í samráðsgátt

    Greinargerðin „Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur“ hefur verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins.

    08. jan. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Skipulag jafnréttismála í forsætisráðuneytinu

    Jafnréttismál heyra nú í fyrsta sinn undir forsætisráðuneytið með breytingum á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna sem öðlaðist gildi 1. janúar sl. og í samræmi við þingsályktun um breytingu á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

    03. jan. 2019Rit og skýrslur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla nefndar um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna

    Skýrsla nefndar um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna

    31. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp forsætisráðherra 2018

    Forsætisráðherra fór yfir stöðu efnahagsmála og horfur á vinnumarkaði í áramótaávarpi sínu í kvöld.

    31. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundi á Bessastöðum lokið.

    Ríkisráðsfundi á Bessastöðum 31. desember 2018 er lokið.

    28. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum mánudaginn 31. desember nk. kl. 10.00.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    771/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var afgreiðslutöf Landsvirkjunar á beiðni kæranda um upplýsingar, m.a. í tengslum við samningsgerð við Íslenskar orkurannsóknir. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að Landsvirkjun er meðal þeirra lögaðila sem eru undanþegnir upplýsingalögum á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laganna og auglýsingu ráðherra nr. 600/2013. Var kæru því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    770/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Erlendur blaðamaður óskaði afrits af trúnaðarbréfi núverandi sendiherra Íslands í Palestínu. Utanríkisráðuneytið synjaði beiðninni með vísan til 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að það er skilyrði takmörkunar upplýsingaréttar almennings á grundvelli 10. gr. upplýsingalaga að mikilvægir almannahagsmunir krefjist þess. Beiðni um upplýsingar verði ekki synjað með stoð í ákvæðinu nema aðgangur leiði af sér hættu á tjóni. Að mati nefndarinnar var ljóst að hagsmunir Íslands eða annarra ríkja gætu ekki skaðast af því að almenningur kynnti sér það sem fram kemur í hinu umbeðna bréfi og var því lagt fyrir utanríkisráðuneytið að veita kæranda aðgang að því.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    769/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Blaðamaður óskaði upplýsinga hjá Íbúðalánasjóði um nöfn þeirra lögaðila sem tekið hafa leiguíbúðalán hjá stofnuninni. Af hálfu sjóðsins kom fram að hann teldi umbeðnar upplýsingar undirorpnar sérstakri þagnarskyldu skv. 1. mgr. 8. gr. f. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 og því óheimilt að veita utanaðkomandi aðgang að þeim. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál lagði til grundvallar að ákvæðið fæli í sér sérstaka þagnarskyldu að því er varðar upplýsingar um viðskipta- og einkamálefni lántakenda sjóðsins. Jafnvel þótt umbeðnar upplýsingar varði ekki viðskiptahagsmuni sem telja verði sanngjarnt og eðlilegt að fari leynt geri ákvæðið ekki ráð fyrir því að slíkt mat fari fram við ákvörðun um það hvort almenningur eigi rétt til aðgangs að þeim.…

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    768/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var ákvörðun embættis ríkisskattstjóra um synjun beiðni um aðgang að gögnum um samskipti ársreikningaskrár við Seðlabanka Íslands og dótturfélög á tilteknu tímabili. Undir meðferð málsins fyrir úrskurðarnefndinni kom fram af hálfu ríkisskattstjóra að engin gögn lægju fyrir um samskipti ársreikningaskrár við þau félög sem kærandi tilgreindi í fyrirspurn sinni. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    20. des. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, tóku á móti skírteini sem staðfestir að forsætisráðuneytið starfrækir jafnlaunakerfi sem samræmist kröfum staðalsins ÍST 85:2012 með gildistöku frá 20. desember 2018.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    767/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var synjun Landspítala á beiðni um aðgang að samningi við Orku náttúrunnar ohf. (ON) um rafhleðslustöðvar. Synjunin byggðist á því að um væri að ræða upplýsingar sem varði mikilvæga fjárhagslega hagsmuni ON sem skyldu fara leynt skv. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að 9. gr. upplýsingalaga verndi fyrst og fremst lögaðila sem komið er á fót á einkaréttarlegum grunni en 4. tölul. 10. gr. verndi fjárhagslega hagsmuni fyrirtækja í opinberri eigu að því leyti sem þau eru í samkeppnisrekstri. Nefndin taldi enn fremur að Landspítali og ON hefðu ekki rökstutt sérstaklega hvernig upplýsingar sem fram koma í samningnum geti orðið ON skaðlegar, verði þær gerðar opinberar.…

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    766/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Blaðamaður óskaði eftir upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) um heildarkostnað stofnunarinnar af aðgerð á B árið 2011 þar sem græddur var í hann plastbarki. Synjun stofnunarinnar byggðist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og þagnarskylduákvæði 51. gr. laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Úrskurðarnefndin tók fram að þessi ákvæði takmarki ekki ein og sér upplýsingarétt almennings samkvæmt upplýsingalögum en líta bæri til þeirra við skýringu ákvæða upplýsingalaga. Nefndin taldi enn fremur ljóst að upplýsingar um heildarkostnað vegna læknismeðferðar tiltekins einstaklings teljist til upplýsinga um viðkvæm einkamálefni hans sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari í skilningi 9. gr. upplýsingalaga.…

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    765/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Deilt var um ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands um að synja kæranda um hluta skýrslu vegna kvörtunar um einelti sem sálfræðistofa vann fyrir safnið. Ákvörðun safnsins byggði einkum á því að um væri að ræða upplýsingar um einkamálefni annarra, sbr. 9. og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þá hluta skýrslunnar sem kæranda var synjað um aðgang að og lagði fyrir Þjóðskjalasafn að veita honum aðgang að þeim með útstrikunum.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    764/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var ákvörðun Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) um synjun beiðni um aðgang að samningum um rannsóknir á jarðhitasvæðum og reikningum sem gefnir voru út í tengslum við þær. Ákvörðun ÍSOR byggðist á 9. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að umbeðin gögn vörðuðu samkeppnisrekstur ÍSOR og að aðgangur að þeim gæti skaðað samkeppnisstöðu fyrirtækisins. Var ákvörðun ÍSOR því staðfest.

    14. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Undirritun samnings um ráðgjöf Siðfræðistofnunar til stjórnvalda um siðfræðileg efni

    Siðfræðistofnun, rannsóknarstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, verður stjórnvöldum til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2021.

    11. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin afgreiðir frumvarp um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna.

    11. des. 2018Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland aðili að alþjóðasamþykkt um farendur

    Ísland tók þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga (e. Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration) á sérstakri ríkjaráðstefnu í Marrakesh í Marokkó.

    07. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Ný ráðuneyti félagsmála og heilbrigðismála taka til starfa 1. janúar 2019

    Forseti Íslands hefur staðfest tillögur forsætisráðherra um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og um verkaskiptingu á milli þeirra sem og tillögu um skiptingu starfa ráðherra.

    05. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Vegna fyrirspurnar frá Öryrkjabandalagi Íslands

    Vegna fyrirspurnar frá ÖBÍ vill forsætisráðuneytið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Forsætisráðherra vísaði í tilgreindum ummælum til aukningar á framlögum til málaflokks örorkulífeyrisþega. Framlög til þessa hóps hafa aukist í síðustu tvennum fjárlögum sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram um rúmlega 9 milljarða utan verðlagsbreytinga, á föstu verðlagi ársins 2019 – en það er 17% hækkun frá fjárlögum ársins 2017.

    03. des. 2018Forsætisráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Forsætisráðherra afhenti verðlaun og opnaði sýningu á tillögum um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og skipulag við Stjórnarráðsreit

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti verðlaun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og opnaði sýningu á tillögum í samkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og skipulag Stjórnarráðsreits í Safnahúsinu.

    02. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Heimsókn forsætisráðherra Danmerkur lokið

    Heimsókn Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er lokið.

    01. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra setti fullveldishátíð við Stjórnarráðshúsið

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, setti fullveldishátíð við hátíðlega athöfn framan við Stjórnarráðshúsið í dag kl. 13:00. Meðal gesta við setningarathöfnina voru Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Margrét II. Danadrottning og Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Dana.

    30. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Setning fullveldishátíðar 1. desember

    Fullveldishátíðin verður sett fyrir framan Stjórnarráðshúsið laugardaginn 1. desember kl. 13:00 og mun Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, setja hátíðina þar sem haldin verða stutt ávörp í bland við tónlistarflutning.

    30. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Stjórnarsamstarfið eins árs í dag

    Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er eins árs í dag. Ríkisstjórnin var mynduð í kringum metnaðarfull og framsýn markmið um velferð, mannréttindi og loftslagsmál, eflingu Alþingis og aukið þverpólitískt samráð, stórsókn í uppbyggingu á innviðum um allt land og eflingu heilbrigðis- og menntakerfa og fagnar þeim árangri sem náðst hefur fyrir samfélagið á liðnu ári.

    30. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Menningarmál

    Forsætisráðherra Danmerkur til Íslands

    Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, og eiginkona hans, Sólrun Løkke Rasmussen, koma til landsins í dag í tveggja daga heimsókn í tengslum við 100 ára fullveldishátíð Íslands.

    28. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Þjóðaröryggisráð fundar

    Fimmti fundur þjóðaröryggisráðs fór fram 26. nóvember sl.

    27. nóv. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ræðir frið, kvenfrelsi, alþjóðamál og umhverfismál í Höfða

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi frið, kvenfrelsi og umhverfismál í hringborðsumræðum kvenleiðtoga í Höfða í dag. Meðal þátttakenda voru Ana Birchall, varaforsætisráðherra Rúmeníu, Mari Kiviniemi, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD og fyrrum forsætisráðherra Finnlands og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands.

    27. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði settur á fót

    Stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði hafa komið sér saman um átakshóp um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði í kjölfar 12. samráðsfundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem haldinn var á föstudaginn var.

    24. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samfélagslegar áskoranir á sviði rannsókna og vísinda

    Vísinda- og tækniráð féllst í gær á tillögu vísinda- og tækninefnda ráðsins um þær samfélagslegu áskoranir sem mikilvægt er að verði tekist á við á vettvangi íslenska vísindasamfélagsins. Niðurstöður opins samráðs voru kynntar á fundi ráðsins í gær og í kjölfarið staðfesti ráðið tillögu nefndanna um þrjú áherslusvið.

    23. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði börn úr 2. bekk í tilefni Barnaréttindaviku Tjarnarinnar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði um 300 börn úr 2. bekk sem tóku þátt í réttindagöngu barna í Þjóðleikhúskjallaranum í dag.

    23. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd

    Ríkisstjórnin mun verja 5,6 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu í desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    20. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland til sérstakrar umfjöllunar á Global Positive Forum í París

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

    • First
    • Prev
    • 53
    • 54
    • 55
    • 56
    • 57
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband