Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 2801–2850 af 3362
Raða eftir:
18. nóv. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-346/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010

Kærð var sú ákvörðun Íslandsstofu að synja um aðgang að gögnum um ráðningu framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Gildissvið upplýsingalaga. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Aðgangur veittur að upplýsingum um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda.

18. nóv. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-345/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010

Kærð var sú ákvörðun Biskupsstofu að synja um aðgang að bréfi X til Kirkjuráðs. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.

02. nóv. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 328B/2010. Úrskurður frá 11. febrúar 2010

Farið var fram á það við úrskurðarnefnd um upplýsingamál að úrskurður nefndarinnar nr. A-328/2010 yrði endurupptekinn og leiðréttur. Til vara var farið fram á að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Beiðni um endurupptöku máls. Frestun réttaráhrifa. Endurupptöku hafnað. Leiðréttingu hafnað. Frestun réttaráhrifa hafnað.

11. okt. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna

Á fundi samráðshóps ráðherra og stjórnarandstöðu þann 15. október var ákveðið að kalla saman vinnuhóp sérfræðinga ráðuneyta, lánastofnana og Hagsmunasamtaka heimilanna. Hópurinn hefur skilað niðurstöðum sínum.

17. sep. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla nefndar um orku- og auðlindamál

Skýrsla nefndar um orku- og auðlindamál sem skipuð var til að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum HS Orku og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi.

15. sep. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Könnun á starfsemi heimavistarskólans að Jaðri, vistheimilanna Reykjahlíðar og Silungapolls

Nefnd sem forsætisráðherra skipaði á grundvelli laga nr. 26/2007 hefur skilað af sér áfangaskýrslu númer tvö, þar sem fjallað er um starfsemi vistheimilisins Silungapolls á árunum 1950-1969, vistheimilisins Reykjahlíðar á árunum 1956-1972 og heimavistarskólans að Jaðri á árunum 1946-1973.

04. ágú. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Helstu niðurstöður nefndar um fyrirkomulag leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins

Nefnd um fyrirkomulag leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins kynnti skýrslu sína 8. apríl 2010. Samandregnar niðurstöður nefndarinnar má lesa hér.

29. júl. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-342/2010. Úrskurður frá 29. júlí 2010

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu útboð Ríkiskaupa f.h. utanríkisráðuneytisins, á ljósleiðurum NATO og rekstur þeirra. Þjóðréttarlegar skuldbindingar. Vinnuskjöl. Öryggi og varnir ríkisins. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

07. júl. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-341/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010

Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafns Reykjavíkur, á beiðni um afrit af gögnum í fórum safnsins um afskipti barnaverndaryfirvalda af kæranda og vegna dvalar hans sem barns á vistheimili. Aðili máls. Ljósrit. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Frávísun

07. júl. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-340/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010

Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarkaupstaðar um synjun á afhendingu afrits af bréfi skólastjóra til starfsmanna skólans. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Skylda til að skrá mál og varðveita málsgögn.

Aðgangur veittur.

07. júl. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-339/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afhendingu gagna og upplýsinga um það hvort peningamarkaðsinnlán hefðu verið færð milli ýmissa banka og sparisjóðs. Einnig var kærð synjun á beiðni um afhendingu afrita af bréfum sem Fjármálaeftirlitið hefði sent hlutaðeigandi aðilum um staðfestingu á millifærslu peningamarkaðsinnlánanna. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.

Aðgangur veittur að hluta.

05. júl. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla starfshóps forsætisráðherra um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis

Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti forsætisráðherra skýrslu starfshóps um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis: Aðdragandi og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdir atburðir.

15. jún. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Áfangaskýrsla nefndar um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands

Nefnd um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands hefur skilað áfangaskýrslu. Þar eru settar fram ýmsar tillögur er lúta að innri starfsháttum Stjórnarráðsins og leiðum til þess að bæta og styrkja mannauðs- og þekkingarstjórnun innan þess.

20. maí 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar undirbúin

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.

19. maí 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla verkefnisstjóra þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálfta á Suðurlandi í maí 2008

Skýrslunni er í meginatriðum skipt í tvennt. Annars vegar er fjallað um rekstur þjónustumiðstöðvarinnar og hins vegar eru tillögur um úrbætur, aðallega varðandi styrki vegna tjóna.

19. maí 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ráðherrayfirlýsing um rafræna stjórnsýslu

Ráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.

29. apr. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-334/2010. Úrskurður frá 29. apríl 2010

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að skýrslu PriceWaterhouseCoopers vegna athugunar á tilteknum þáttum í starfsemi [Y banka]. Aðili máls. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.

29. apr. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 335/2010. Úrskurður frá 29. apríl 2010

Kærð var sú ákvörðun Sambands íslenskra sveitarfélaga að synja um upplýsingar um nöfn umsækjanda um starf sérfræðings í félagsþjónustu sveitarfélaga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og nöfn þeirra umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal vegna starfsins. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Stjórnvaldsákvörðun

25. mar. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 333/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010

Kærð var sú ákvörðun flugráðs að synja beiðni um aðgang að afriti reiknings gefnum út af [A] vegna jólveislu flugráðs. Aðili máls. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.

25. mar. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 332/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins á afhendingu afrita eða uppskrifta af símtölum utanríkis-, forsætis- og fjármálaráðherra við erlenda starfsbræður sína. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun að hluta. Synjun staðfest.

25. mar. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 331/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010

Kært var að Reykjavíkurborg hefði ekki veitt upplýsingar um þá þjónustu sem öldruðum stendur til boða hjá borginni. Einnig var óskað eftir því að gefin yrðu upp nöfn og starfsheiti starfsmanna á fjármálaskrifstofu borgarinnar. Aðili máls. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Stjórnvaldsákvörðun. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.

18. feb. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 329/2010. Úrskurður frá 18. febrúar 2010

Kærður var dráttur á svari við beiðni um aðgang að gögnum frá Háskóla Íslands. Kærandi aðili að stjórnsýslumáli. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.

28. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 328/2010. Úrskurður frá 28. janúar 2010

Kærð var ákvörðun Ríkiskaupa, Austurhafnar TR ehf. og Reykjavíkurborgar að hafna beiðni um afrit af öllum samningum og viðaukum sem gerðir hafa verið eftir 17. júlí 2008 og varða samninga ríkisins, Reykjavíkurborgar og Austurhafnar TR ehf. um byggingu tónlistarhúss við Austurhöfn í Reykjavík og ekki hefur verið fjallað um í kærumálum A-233/2006, 228-2006 og A-307-2009. Gildissvið upplýsingalaga Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

28. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 327/2010. Úrskurður frá 28. janúar 2010

Kærð var ákvörðunsveitarfélagsins Borgarbyggðar að synja um afhendingu afrita tölvupósta er fóru á milli [A] og [B] héraðsdómslögmanns. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Synjun staðfest.

25. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 330/2010. Úrskurður frá 25. janúar 2010

Kærð var ákvörðun Varnarmálastofnunar Íslands um að synja beiðni um aðgang að tilteknum hlutum samnings Varnarmálastofnunar Íslands og [B] sem og öðrum skjölum eða gögnum sem mál það varðaði hjá stofnuninni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila Vinnuskjöl. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

14. jan. 2010Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Hvað er spunnið í opinberavefi 2009?

Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Þetta er í þriðja sinn sem slík úttekt er gerð. Niðurstöður eru birtar á UT-vefnum.

13. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 326/2009. Úrskurður frá 13. janúar 2010

Kærð var sú þá ákvörðun skrifstofu forseta Íslands að synja um afhendingu 17 bréfa sem tilgreind eru í svari embættisins til rannsóknarnefndar Alþingis, og afhent hafa verið rannsóknarnefndinni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun staðfest.

13. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 325/2009. Úrskurður frá 13. janúar 2010

Kærð var sú þá ákvörðun skrifstofu forseta Íslands að synja um afhendingu 17 bréfa sem tilgreind eru í svari embættisins til rannsóknarnefndar Alþingis, og afhent hafa verið rannsóknarnefndinni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun staðfest.

09. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-344/2010. Úrskurður frá 1. september 2010

Kærð var synjun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Flugstoða ohf., nú Isavia ohf., á beiðni um afhendingu gagna um viðskiptaáætlun um byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Gildissvið upplýsingalaga. Samkeppnishagsmunir hins opinbera.

Synjun staðfest.

09. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-343/2010. Úrskurður frá 1. september 2010

Kærð var sú ákvörðun Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafns Reykjavíkur,  að synja dætrum Y, sem var látinn, um aðgang að gögnum er varða barnaverndarmál föður þeirra og vistun hans á vistheimilinu A. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga.

Aðgangur veittur að hluta.

06. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-338/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að minnisblaði til forstjóra FME er laut m.a. að því álitaefni hvað væru innlán. Þagnarskylda. Synjun staðfest.

06. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-337/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu útboð Ríkiskaupa f.h. utanríkisráðuneytisins, á ljósleiðurum NATO og rekstur þeirra. Aðili máls. Vinnuskjöl. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

06. jan. 2010Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-336/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010

Kærð var ákvörðun Landsvirkjunar um synjun á afhendingu afrita af öllum samningum sem Landsvirkjun hafði gert við eigendur landareigna við neðrihluta Þjórsár á áhrifasvæði þeirra þriggja virkjana sem þar voru fyrirhugaðar, og tengdust virkjunaráformunum með einum eða öðrum hætti. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál.
Frávísun.

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 324/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að neita um upplýsingar er varða aðdraganda þess að sett var skilanefnd yfir [A]. Frávísun. Synjun staðfest.

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 323/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að og afriti af gögnum sem sýndu afgreiðslu og niðurstöðu Seðlabankans varðandi lánsbeiðni forráðamanna [A] frá 26. september 2008 svo og af lánsbeiðninni sjálfri. Synjun staðfest.

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 322/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærð var ákvörðun Matvælastofnunar um að synja beiðni um aðgang að öllum gögnum í fórum stofnunarinnar er vörðuðu salmonellusýkingar í svínum eða afurðum og úrgangi frá tilteknu svínabúi. Aðgangur veittur.

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 321/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærð var ákvörðun Matvælastofnunar um að synja beiðni um aðgang að gögnum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 320/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á afhendingu gagna varðandi EES útboð nr. 12165 og til urðu eftir að tilkynnt var um val á viðsemjanda. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 319/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærður var óhæfilegur dráttur á afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um gögn. Gögn er varða tiltekið mál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Synjun staðfest.

22. des. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 318/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

Kærð var sú ákvörðun sýslumannsins á Sauðárkróki að synja um aðgang að tveimur skýrslum sem gerðar voru af starfsmönnum ríkislögreglustjóra um mitt ár eða síðari hluta árs 2007 varðandi málefni lögreglunnar á Sauðárkróki. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Kærufrestur. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur að hluta.

10. des. 2009Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk Stjórnarráðsins

Forsætisráðuneytið hefur birt drög að siðareglum fyrir embættismenn og ráðherra á vef stjórnarráðsins. Almenningi gefst nú kostur á að gera athugasemdir og koma með ábendingar um hvað megi betur fara í þessum drögum að siðareglum.

23. nóv. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 317/2009. Úrskurður frá 23. nóvember 2009

Kærð var sú ákvörðun forsætisráðuneytisins að synja beiðni um aðgang að gögnum er tengdust ráðgjöf ríkislögmanns um lögfræðileg álitaefni er lytu að framkvæmd laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Aðgangur veittur.

23. nóv. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 316/2009. Úrskurður frá 23. nóvember 2009

Kærð var sú ákvörðun stjórnar fjarskiptasjóðs að synja beiðni um aðgang að gögnum er varða samning fjarskiptasjóðs og tiltekins fyrirtækis um háhraðatengingar. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

02. nóv. 2009Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birtir fyrstu skýrslu sína

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birti fyrstu skýrslu sína á fundi með blaðamönnum sem haldin var 11. febrúar í Þjóðmenningarhúsinu.

11. okt. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 315/2009. Úrskurður frá 10. nóvember 2009

Kærð var sú ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar að synja um aðgang að gögnum sem varpað gætu ljósi á lóðarmörk sem kærandi taldi að samið hefði verið um. Aðili máls. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Einkamálefni einstaklinga. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Vinnuskjöl. Frávísun. Aðgangur veittur að hluta.

09. okt. 2009Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu.

09. okt. 2009Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.

30. sep. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 314/2009 Úrskurður frá 30. september 2009

Kærð var sú ákvörðun skilanefndar Landsbanka Íslands hf. að svara ekki beiðni um afhendingu á upplýsingum og gögnum um það hvort og þá hvenær ákvörðun hafi verið tekin af skilanefndinni um að framselja tiltekinn lánasamning milli kæranda og Landsbanka Íslands hf. til NIB hf. ásamt öðrum gögnum varðandi lánasamninginn. Frávísun.

24. sep. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A 313/2009 Úrskurður frá 24. september 2009

Kærð var synjun sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á beiðni um að afhent afrit af öllum reikningum sem færðir hefðu verið til gjalda á ?rotþróargjaldareikning? hjá Svalbarðsstrandarhreppi árin 2005 til 2008. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.

31. ágú. 2009Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-309/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009

Kærð var synjun Austurhafnar-TR ehf. á beiðni um aðgang að upplýsingum um hversu mikið Austurhöfn-TR ehf. greiðir eða ábyrgist vegna yfirtöku á Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu á austurbakka Reykjavíkurhafnar, að undanskildum þeim 14,5 milljörðum króna sem ríkið og Reykjavíkurborg hafa þegar lýst yfir að þau muni láta renna til hússins. Kæru vísað frá.

• First
• Prev
• 55
• 56
• 57
• 58
• 59
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband