17. okt. 2016Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr. 6/2016. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
<p align="justify">Með kæru 19. maí 2016 kærir Enor ehf. örútboð Ríkiskaupa, fyrir hönd Reykjanesbæjar, nr. 20302 „Endurskoðun Reykjanesbæjar“. Kærandi krafðist þess upphaflega að felldir yrðu niður skilmálar örútboðsins sem kveða á um: 1) að sá sem stjórni verkinu skuli, auk þess að falla í A-flokk samkvæmt rammasamningnum, hafa reynslu af endurskoðun sveitarfélaga með 4000 íbúa eða fleiri, 2) að aðrir í endurskoðunarteymi hafi reynslu af endurskoðun sveitarfélags og 3) að bjóðendur skili staðfestingu á reynslu af endurskoðun sveitarfélags með 4000  íbúa eða fleiri. Þá var þess einnig krafist að örútboðið yrði auglýst á nýjan leik án skilmálanna og varnaraðilum yrði gert að greiða kæranda málskostnað.</p>