22. jún. 2015Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr. 8/2015. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
<p align="justify">Með kæru 1. júní 2015 kærir Orka náttúrunnar ohf. ákvörðun Hagvangs ehf. 13. maí 2015, fyrir hönd þrettán tilgreindra aðila rammasamnings Ríkiskaupa nr. 4220 „Raforka“, um að viðhafa örútboð á grundvelli rammasamningsins. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu sóknaraðila um stöðvun samningsgerðar við Orkusöluna ehf. á grundvelli örútboðsins þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sbr. 15. gr. laga nr. 58/2013, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar. Af hálfu varnaraðila hefur öllum kröfum kæranda verið mótmælt.</p>