Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 1713
    Raða eftir:
    12. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Styrkjum til einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins úthlutað

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Markmið með styrkveitingunum er að efla starfsemi staðbundinna fjölmiðla á landsbyggðinni en þeir gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf.

    12. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    28 verkefni hljóta styrk úr Hvata

    Styrkjum hefur verið úthlutað úr Hvata, styrktarsjóði til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Alls hlutu 28 verkefni styrk úr seinni úthlutun fyrir árið 2024, alls að upphæð 24.900.000 kr. Í heildina sóttu 64 verkefni um styrki að heildarupphæð 159.134.500 kr.

    12. okt. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Menntamál

    Nýr miðlægur listi yfir sveina með starfsréttindi

    Nýr listi yfir sveina með starfsréttindi hefur verið birtur á Island.is. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur listi er birtur opinberlega á einum miðlægum stað. Með listanum er m.a. hægt að sjá hvort iðnaðarmenn sem bjóða fram þjónustu sína séu með tilskilin réttindi.

    10. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vaxandi tengsl Íslands og Póllands

    Tvíhliða samskipti og aukin samvinna Íslands og Póllands á sviði menningar- og viðskiptamála voru til umræðu á fundum Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með Hönnu Wróblewsku ráðherra menningarmála og menningararfs í Póllandi og Krzysztof Paszyk ráðherra efnahagsþróunar og tækni. Fundirnir fór fram í Varsjá höfuðborg Póllands og var meðal annars tekin ákvörðun um að vinna að samkomulagi um aukin samskipti ríkjanna á sviði menningarmála sem formgert verður á komandi mánuðum. Ræddi ráðherra meðal annars um árangur Íslands í íslenskri máltækni en í Póllandi eru töluð um 30 tungumál sem þarlend stjórnvöld vilja vernda og styðja við.

    09. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Alþjóðamál

    Árangursríkur fundur stjórnarnefndar Bologna-samstarfsins á Íslandi

    Stjórnarnefnd Bologna-samstarfsins um háskólamál hittist í Reykjavík í liðinni viku til að undirbúa verkefnaáætlun til ársins 2027.

    09. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Fjárlög

    Fjárlagafrumvarp 2025: Áfram stutt við menningu á umfangsmikinn hátt

    Kröftuglega verður stutt við menningu og listir í landinu með umfangsmiklum hætti skv. frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2025. Samtals munu framlög til menningarmála og skapandi greina nema tæpum 26,7 milljörðum króna árið 2025. Undir málaflokkinn heyra söfn, menningarstofnanir og menningarsjóðir á vegum ríkisins á málefnasviði 18, endurgreiðslukerfi í kvikmyndum og tónlist og málefni hönnunar- og arkitektúrs á málefnasviði 7.

    05. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu samþykkt – Íslenska handa öllum

    „Áætlunin er metnaðarfull og aðgengileg sem að okkar mati mun tryggja að aðgerðir skili sér af blaði á staði. Til dæmis er tilraunverkefni hluti af aðgerðaráætluninni þar sem tungumálið er lifandi og þarf því stöðugt að leita nýrra leiða til að þróast með því og tryggja símat við þá vinnu. Hvað er að virka, og hvað ekki? Dæmi um slíka vinnu er endurskipulagning á íslenskukennslu fyrir erlenda starfsmenn sem vinna með öldruðum, sjúkum eða fötluðu fólki á sjúkrastofnunum, dvalarheimilum og/eða í heimahúsum. Leggur áætlunin upp með að unnið verði tilraunaverkefni þar sem kennt verði á tveimur tungumálum og jafnframt verði þróaður jafningjastuðningur,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaáðherra.

    04. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland á framkvæmdastjórnarfundi UNESCO í París

    Samþykktar voru ályktanir um neyðaraðstoð til Úkraínu og Gaza meðal annars til að styðja við menntun á svæðum þar sem ríkir neyðarástand.

    01. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Landsbyggðin, Menntamál

    Viðræður hefjast um sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst

    Í kjölfar fýsileikagreiningar Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst um aukið samstarf og mögulega sameiningu hafa háskólaráð HA og stjórn Háskólans á Bifröst nú ákveðið að ganga til sameiningarviðræðna.

    01. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Evrópusamvinna, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    Stóraukinn aðgangur að fjármögnun á betri kjörum til nýsköpunar og grænna lausna með InvestEU

    Með InvestEU aukast tækifæri til að fjármagna eða sækja ábyrgð vegna stórra, samfélagslega mikilvægra verkefna á Íslandi, hvort sem þau eru á vegum opinberra aðila, sveitarfélaga eða einkaaðila. Sem dæmi má nefna fjármögnun verkefna á sviði orkuframleiðslu, orkuskipta og innleiðingar hringrásarhagkerfis og stuðning við nýsköpun í matvælaframleiðslu. Þar að auki styður áætlunin við önnur verkefni innan Samstarfsáætlunar ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar og eykur aðild því möguleika á þátttöku í stórum alþjóðlegum verkefnum á sviði nýsköpunar, sjálfbærrar þróunar og stafrænna umbreytinga.

    01. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Evrópusamvinna, Nýsköpun, Atvinnuvegir

    InvestEU: Kynningarfundur í beinu streymi

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, boðar til kynningarfundar í dag, miðvikudaginn 10. janúar kl. 9:30, þar sem InvestEU áætlunin og framkvæmd hennar verða kynnt. Fundinn sækja m.a. fulltrúar þeirra banka og sjóða sem taka þátt í verkefninu auk forsvarsmanna áætlunarinnar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins

    30. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Gervigreind, Háskólar, Netöryggi, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fleiri kerfisbreytingar í farvatninu

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hyggst mæla fyrir ellefu málum á yfirstandandi þingi.

    29. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Verðmæti skapandi greina - Málþing í Tjarnarbíói á fimmtudaginn

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra boðar til málþings um framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi nk. fimmtudag kl. 15. í Tjarnarbíói. Kynntar verða niðurstöður skýrslu þess efnis auk þess sem áhugaverð erindi um skapandi greinar verða flutt og líflegar pallborðsumræður munu ýfa upp hugmynda- og heilahvelið. Fundarstjóri er leikkonan og leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir.

    28. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tónlistarmiðstöð: Opið fyrir umsóknir úr Tónlistarsjóði og boðið upp á vinnustofu í vinnslu umsókna

    Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Eddu Konráðsdóttur framkvæmdastjóra Iceland Innovation Week, býður upp á vinnustofu þar sem umsækjendur geta fengið ráðleggingar og aðstoð við skrif styrkumsókna. Vinnustofan fer fram í húsnæði Tónlistarmiðstöðvar, Austurstræti 5, 101 Reykjavík, þann 9. október. Skráningarform og frekari upplýsingar má finna hér.

    26. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Framtíðarsýn um vísindi, tækniþróun og nýsköpun í samráðsgátt

    Tillögur Vísinda- og nýsköpunarráðs um framtíðarsýn stjórnvalda á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar má nú nálgast í samráðsgátt stjórnvalda.

    25. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind

    Íslensk máltækni kynnt á málþingi Open AI í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Íslenska-nàlgunin var kynnt tæknisamfélaginu á málþingi Open AI sem haldin var í tilefni af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Inntak málþingsins var að setja áherslu á að leysa flókin samfélags vandamál með hjálp gervigreindar og stuðla þannig að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

    24. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Evrópusamvinna, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Þátttaka Íslands í InvestEU þegar farin að skila árangri

    Með þátttöku Íslands í InvestEU aukast tækifæri til að fjármagna samfélagslega mikilvæg verkefni á borð við nýsköpun, grænar lausnir og sjálfbæra uppbyggingu innviða.

    19. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing landsins undirrituð

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og innviðaráðherra staðfestu í dag samninga fjarskiptasjóðs við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á háhraðanetsambandi, sem er mikilvægt öryggismál og undirstaða nútíma búsetugæða. Með þessum samningum er sú óvissa ekki lengur fyrir hendi.

    17. sep. 2024Rit og skýrslur, Menntamál, Háskólar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Greinargerð um árangurstengda fjármögnun háskóla

    september 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Greinargerð um árangurstengda fjármögnun háskóla Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt greinargerð um nýja árangurstengda fjármögnun háskóla, sem tók gildi sumarið 2024. Um er að ræða stærstu breytingu á háskólaumhverfinu í áratugi sem fela í sér margvíslega hvata fyrir háskóla; til að auka gæði náms, styðja nemendur í gegnum skólagöngu, sækja fram í rannsóknum og afla alþjóðlegra styrkja svo fátt eitt sé nefnt

    17. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Leiðarvísir um árangurstengda fjármögnun háskóla

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt greinargerð um nýja árangurstengda fjármögnun háskóla, sem tók gildi í sumar. Um er að ræða stærstu breytingu á háskólaumhverfinu í áratugi.

    16. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu

    Eftir fimm ára hlé hafa KLAK - Icelandic Startups og Ferðaklasinn ákveðið að endurvekja Startup Tourism, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu. Með því að endurvekja hraðalinn vonast samstarfsaðilar til að skapa ný tækifæri innan íslenskrar ferðaþjónustu.

    15. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Starfshópur um bætt öryggi í ferðaþjónustu

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur óskað eftir tilnefningum í starfshóp um öryggismál í ferðaþjónustu. Er það liður í eftirfylgni með aðgerðaáætlun (E.7 ) með ferðamálastefnu til 2030 sem samþykkt var í júní 2024 og unnin var í breiðri samvinnu fjölda hagaðila. Starfshópurinn hefur það að meginhlutverki að koma með tillögur að úrbótum á sviði öryggismála í ferðaþjónustu, tryggja samráð á milli hlutaðeigandi ráðuneyta, stofnana og atvinnugreinarinnar, og stuðla að framgangi verkefna sem hafa það að markmiði að bæta öryggi ferðamanna þvert á hið opinbera og atvinnulíf.

    13. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland komið í hóp bestu ríkja heims í netöryggismálum

    Ísland er hástökkvari á nýjum lista Alþjóðafjarskiptasambandsins.

    12. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta úthlutun netöryggisstyrks Eyvarar

    Stjórn Eyvarar hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 13 verkefna að ganga til samninga um nýjan netöryggisstyrk. Þetta er í fyrsta sinn sem Eyvör, hæfnisetur fræðslu, menntunar og rannsókna á netöryggi, úthlutar slíkum styrkjum eins og greint var frá í ágúst síðastliðnum.

    10. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: Óskað eftir tillögum

    Ráðgjafanefnd dags íslenskrar tungu gerir tillögu til menningar- og viðskiptaráðherra um verðlaunahafa og rökstyður val sitt. Í ár er sú nýbreytni á að almenningur getur sent in tillögu til ráðgjafanefndar hér.

    10. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hakkarar Íslands keppa í beinu streymi

    Lið Íslands tekur nú þátt í Netöryggiskeppni Evrópu (e. European Cyber Security Challenge) sem stendur yfir í Tórínó á Ítalíu dagana 8.-11. október. Lið Íslands er skipað þeim keppendum sem náðu bestum árangri í Gagnaglímunni, Netöryggiskeppni Íslands, sem haldin var 25. maí síðastliðinn fyrir ungmenni á aldrinum 14 til 25 ára.

    09. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Tímabundin vistaskipti fangelsismálastjóra

    Páll E. Winkel tekur tímabundið til starfa hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.

    09. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fundaði með aðstoðarframkvæmdastjóra UN Women: Jafnréttismál eru stórt efnahagsmál

    „Jafnréttisbaráttan hefur gengið mun betur hérlendis en víða annars staðar en það er eitt miðla okkar velgengni en annað að gera sér grein fyrir því að fullnaðarsigur er ekki í höfn. Við höfum verk að vinna á ýmsum sviðum og þegar jafnrétti er náð þarf að viðhalda því samhliða hraðri þróun samfélagsins,“ segir Lilja Dögg og bætir við að Ísland geti vel verið í farabroddi í jafnréttismálum áfram ef vel er haldið á þeim verkfærum sem þjóðin býr yfir.“

    05. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenska til framtíðar: Fundað með Microsoft og AI 2 í Seattle

    „Við viljum festa íslenskuna í sessi og halda áfram að koma henni að í lausnum erlendra tæknifyrirtækja sem Íslendingar nota í sínu daglega lífi. Samhliða erum við kanna áhuga á alþjóðlegum samstarfsvettvangi fyrir minni málsamfélög og stór tæknifyrirtæki, sem Ísland myndi leiða," segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    02. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    101,5 milljónir í styrki til rannsókna og nýsköpunar á sviði mannvirkjagerðar

    Þrjátíu og fjögur nýsköpunar- og/eða rannsóknarverkefni fengu í dag styrkúthlutun úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði.

    02. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðstefna: Fjárfesting í bókum - Skiptir hún máli?

    Í dag kl.15 heldur menningar- og viðskiptaráðuneytið ráðstefnu um stöðu bókarinnar á Íslandi í Veröld – Húsi Vigdísar.

    01. sep. 2024Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, Úrskurðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    1/2023 A gegn Háskólanum á Akureyri

    janúar 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið 1/2023 A gegn Háskólanum á Akureyri Ár 2024, 9. janúar, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Elvar Jónsson lögmaður og formaður nefndarinnar, Eva Halldórsdóttir lögmaður og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson lögfræðingur málinu nr

    28. ágú. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Háskólar, Iðnaður, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu haustið 2024

    Í haust mun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, m.a. starfa frá Hveragerði, Rangárþingi ytra, Stykkishólmi og Vopnafirði. Frá upphafi hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu og eru störf ráðherra þar engin undantekning. Ráðherra staðsetur skrifstofu sína reglulega víðs vegar um landið, enda eiga málefni ráðuneytisins við um landið allt. Á hverri starfsstöð býður ráðherra öll áhugasöm velkomin í opna viðtalstíma þar sem gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði ráðherra.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í Sviðslistasjóð

    Alþingi veitir árlega fé í fjárlögum til stuðnings sviðslistasjóði með það að markmiði að efla sviðslistir og búa þeim hagstæð skilyrði. Sviðslistaráð auglýsir eftir styrkumsóknum atvinnusviðslistahópa í Sviðslistasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. október 2024 klukkan 15:00.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Frábær aðsókn að nýju grunnnámi í blaðamennsku við Háskóla Íslands

    Tímamót urðu í Háskóla Íslands fyrr í vikunni, þegar kenndur var fyrsti tíminn í nýju BA-námi í blaðamennsku við stjórnmálafræðideild skólans. Fleiri umsóknir bárust um námið en unnt var að samþykkja og eru nú um tuttugu nemendur skráðir. Nemendur munu meðal annars sinna starfsnámi við fjölmiðla landsins á námstímanum, ásamt því að sitja námskeið sem undirbúa þá fyrir störf við fjölmiðla framtíðar.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Háskólar, Menntamál

    Opinberir háskólar fái heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hyggst leggja fram frumvarp á haustþingi um breytingar á lögum um opinbera háskóla sem fela í sér heimild til skólanna til að innheimta skólagjöld fyrir nemendur sem koma frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins (EES). Samhliða þessu verða teknir upp námsstyrkir fyrir afburðanemendur frá þessum löndum í þeim tilgangi að efnilegir nemendur hafi áfram tækifæri til náms á Íslandi, óháð efnahag.

    22. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Nýr hornsteinn lagður að Sögu

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lögðu í gær nýjan hornstein að Sögu við Hagatorg. Endurbætur á húsinu eru langt komnar og má reikna með að starfsfólk og nemendur háskólans flytji inn í húsið síðar í haust.

    22. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Netöryggi eflt með styrkjum Eyvarar NCC-IS

    Ráðherra netöryggismála mun í haust veita netöryggisstyrki í gegnum Eyvöru NCC-IS sem er hæfnisetur fræðslu, menntunar og rannsókna á netöryggi. Markmið samstarfsins er að efla netöryggisgetu á landsvísu, styðja við íslenskt netöryggissamfélag og að tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála.

    21. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing í þéttbýli og háhraðafarnet á stofnvegum tryggt – hlutverki fjarskiptasjóðs lokið og hann lagður niður

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur kynnt ríkisstjórn ákvörðun sína um að framlengja ekki líftíma fjarskiptasjóðs. Að öllu óbreyttu munu lög um fjarskiptasjóð því falla brott við lok þessa árs og hættir starfsemi sjóðsins frá sama tíma.

    20. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tugir listamanna ræddu listamannalaun á opnum fundi

    Tugir listamanna og forsvarsmenn bandalaga þeirra mættu og sköpuðust líflegar umræður um kosti og galla listamannalauna sem ráðherra segist taka fagnandi. „Það komu margar góða hugmyndir fram, fólk var málefnalegt og hvatti kollega sína áfram með lófataki,“ segir ráðherra sem segir það mikið gleðiefni hve margir mættu og tjáðu sig.

    20. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Gervigreind

    Beita gervigreind gegn gullhúðun

    Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneytið hóf vinnu í sumar, með nokkrum aðilum á sviði gervigreindar, við að greina hvort gullhúðun hafi átt sér stað á EES-gerðum á málefnasviði ráðuneytisins. Verkefnið er eitt af verkefnum ráðuneytisins í aðgerðaáætlun um gervigreind sem unnið hefur verið að á undanförnum mánuðum. Með notkun gervigreindar er hægt að greina gullhúðun á gildandi löggjöf án þess að kosta til þess fjölda vinnustunda sérfræðinga ráðuneytisins. Þá kann notkun gervigreindar að greina mynstur og tengsl innan lagabálkanna sem gætu annars farið fram hjá hefðbundinni greiningu.

    18. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Seinni úthlutun úr Tónlistarsjóði: Mikill fjöldi frambærilegra umsókna

    „Það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu mörg spennandi verkefni hlutu styrk og ekki síður er það gleðiefni að heyra frá úthlutunarnefndum hve mörg og efnileg verkefni sóttu um. Sú staðreynd að það sé erfitt að velja hver hljóti styrk er mikilvæg vísbending um gróskuna í íslensku tónlistarlífi. Tónlistarmiðstöð er frábær umgjörð sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og tækifæri sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Þar er til dæmis boðið upp á ráðgjöf við styrkumsóknir og þangað má sækja innblástur og fagþekkingu frá einvala sérfræðingum,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra við tilefnið.

    16. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fléttustyrkjum úthlutað í þriðja sinn: Tæplega 100 m.kr. til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

    Tíu íslensk nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðlar hljóta alls 12 styrki úr Fléttunni í ár. Þetta er í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr Fléttunni, en tilgangur styrkjanna er að styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu. Í ár verður um 96 milljónum króna dreift til þessara fyrirtækja í þeim tilgangi að innleiða nýja tækni og lausnir í heilbrigðisþjónustu.

    15. ágú. 2024Úrskurðir á málefnasviðum menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Úrskurðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Kæra, kröfur og kæruheimild - synjun um endurgreiðslu útlags kostnaðar vegna túlkaþjónustu

    ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MVF23090319 I. Kæra, kröfur og kæruheimild

    15. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir um listamannalaun: Ráðherra býður til kynningarfundar 19. ágúst

    Á liðnu vorþingi voru samþykktar breytingar á lögum um listamannalaun í því skyni að styrkja faglega starfslaunasjóði listamanna og tryggja betur afkomu þeirra sem starfa í listum eða við skapandi greinar. Tveimur nýjum launasjóðum hefur verið bætt við; launasjóði kvikmyndahöfunda og þverfaglegum sjóði fyrir 67 ára og eldri. Einnig mun úthlutunarmánuðum fjölga í hverri grein. Að þessu tilefni boðar menningar- og viðskiptaráðuneytið til umræðu um þessar breytingar sem og áherslur og stefnu listamannalauna til næstu þriggja ára.

    14. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing allra lögheimila í þéttbýli – svarfrestur framlengdur

    Svarfrestur vegna tilboðs til sveitarfélaga um fjárstuðning vegna allra ótengdra lögheimila á þéttbýlisstöðum og í byggðakjörnum, sem eigin áform fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila ná ekki til, hefur verið framlengdur til kl. 12:00 föstudaginn 23. ágúst nk.

    11. ágú. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Dagur íslenskrar tungu: Hátíðardagskrá í Eddu 16. nóvember

    Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 16. nóvember í 29. sinn. Dagskráin er einstaklega hátíðleg í ár þar sem glæsileg handritasýning verður opnuð í Eddu á degi íslenskunnar og í kjölfarið verða verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt.

    11. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Samantekt ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli

    Á fundi ríkisstjórnar 27. ágúst sl. var ákveðið að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að afla upplýsinga um banaslys sem varð í skipulagðri ferð í jöklaferð á Breiðamerkurjökli sunnudaginn 25. ágúst. sl. og skoða öryggi í íshellaferðum almennt.

    11. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um netöryggi skilað árangri

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur lagt mat á stöðu aðgerða í aðgerðaáætlun stjórnvalda í netöryggi sem kynnt var fyrir tveimur árum síðan. Nú þegar er rúmum þriðjungi aðgerða lokið og fjöldi annarra aðgerða vel á veg komin.

    10. ágú. 2024Rit og skýrslur, Gervigreind, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenska-nálgunin: Hvernig stuðla má að fjölbreytni tungumála og menningar á sviði gervigreindar.

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur gefið út leiðarvísi sem fjallar um hvernig íslensk máltækni hefur náð fótfestu í heimi gervigreindarinnar og ávinning samstarfs íslenskra stjórnvalda og þeirra samstarfsaðila við tæknifyrirtækið Open AI. Leiðarvísirinn er gefin út á íslensku og ensku í samstarfi við íslenska gervigreindar- og máltæknifyrirtækið Miðeind og Almannaróm, miðstöð máltækni á Íslandi ber heitið Íslenska-nálgunin: Hvernig stuðla má að fjölbreytni tungumála og menningar á sviði gervigreindar.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband