25. okt. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Áfram öflugur stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki
Ísland er í fremstu röð OECD landa þegar kemur að stuðningi við nýsköpun og þróun. Í anda þess er lagt til að stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki verði viðhaldið í frumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.). Í frumvarpinu er lagt til að endurgreiðsluhlutfall verði 34% til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og 22,5% til stórra fyrirtækja.