Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 1917
    Raða eftir:
    18. apr. 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 563/2023--Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun barnaverndarþjónustu um loka máli sonar kæranda.

    18. apr. 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 58/2024-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráð um umgengni móður við börn hennar.

    18. apr. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um nýsköpunar- og þróunarverkefni til að efla framhaldsfræðslu

    Fræðslusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og þróunarverkefna til að efla og þróa áfram vettvang framhaldsfræðslu. Framhaldsfræðsla er hvers konar nám, úrræði, ráðgjöf eða mat á raunfærni sem sérstaklega er ætluð fullorðnu fólki með stutta skólagöngu eða með skerta möguleika til náms eða atvinnuþátttöku. Það getur t.d. verið vegna íslenskukunnáttu eða mismikillar starfsgetu.

    11. apr. 2024Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stutt við Litlu upplestrarkeppnina

    Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, fá styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til að reka áfram Litlu upplestrarkeppnina. Litla upplestrarkeppnin er fyrir 4. bekk grunnskóla og er ætlað að bæta árangur í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu.

    09. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innflytjendur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    RÚV Orð formlega tekið í notkun: Nýtt tæki til íslenskunáms fyrir innflytjendur

    RÚV Orð, nýr vefur sem veitir innflytjendum aðgang að fjölbreyttu íslenskunámi í gegnum sjónvarpsefni frá RÚV, hefur nú verið formlega opnaður fyrir almenning. Eftir vel heppnaðar notendaprófanir er RÚV Orð nú aðgengilegt öllum sem vilja efla íslenskukunnáttu sína á sínum hraða.

    09. apr. 2024Tímabundnar nefndir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Aðgerðahópur stjórnvalda um víðtækar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum 2024-2026 Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní 2024 og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins er lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Í september sama ár var ákveðið að fjölga aðgerðum og auka fjármagn til þeirra

    09. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og á meðal barna tekur til starfa

    Nýskipaður aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og á meðal barna hóf störf í dag. Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní sl. og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins er lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Með aðgerðunum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

    06. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kynningarfundur: Staða drengja í menntakerfinu

    Mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið boða til kynningarfundar um stöðu drengja í íslenska menntakerfinu fimmtudaginn 6. júní kl. 13:30–14:15 á Reykjavík Natura að Nauthólsvegi 52 og í streymi.

    04. apr. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samningur um stækkun verk- og starfsnámsaðstöðu við Menntaskólann á Ísafirði undirritaður

    Samningur milli ríkisins og sveitarfélaga á Vestfjörðum um allt að 1.000 fermetra stækkun á verk- og starfsnámsaðstöðu við Menntaskólann á Ísafirði var undirritaður í skólanum í dag.

    18. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stækkaðu framtíðina - Fólk utan höfuðborgarsvæðisins hvatt til að taka þátt

    Yfir 600 sjálfboðaliðar hafa skráð sig til leiks í Stækkaðu framtíðina verkefnið sem hefur það að markmiði að víkka sjóndeildarhring ungmenna á Íslandi. Markmiðið er að a.m.k. 1000 sjálfboðaliðar taki þátt í verkefninu og eru karlar, kvár og öll utan höfuðborgarsvæðisins sérstaklega hvött til þess að taka þátt í að stækka framtíðina.

    13. mar. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Alþjóðlegur staðall um hið íslenska Barnahús

    Hafin er vinna við gerð leiðbeininga á vettvangi alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO fyrir Barnahús. ISO eru stærstu staðlasamtök í heimi og gefa auk staðla út alþjóðlegar samþykktir. Vinnan byggir á íslenska barnaverndarúrræðinu Barnahúsi sem tekið hefur verið upp í mörgum löndum undir heitinu „Barnahus“. Markmiðið er að skilgreina þær kröfur sem þarf að uppfylla til að bera heitið „Barnahus“ og ná fram markmiðum þess.

    13. mar. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna til umsagnar

    Nýtt frumvarp til laga um námsgögn hefur verið lagt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Stefnt að því að stórefla umgjörð og stuðning við útgáfu námsgagna og gera námsgögn gjaldfrjáls fyrir nemendur leik-, grunn- og framhaldsskóla í áföngum. Um er að ræða niðurstöðu heildarendurskoðunar fjölbreytts hóps hagsmunaaðila úr fræða- og skólasamfélaginu.

    07. mar. 2024Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Efling samfélagslögreglu í aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna

    Samfélagslögregla verður efld á höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi eystra samkvæmt samkomulagi dómsmálaráðuneytisins og mennta- og barnamálaráðuneytisins.

    04. mar. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur störf og verkefni færast til mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Þann 1. apríl sl. tóku gildi ný lög um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Um er að ræða ​nýja þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Stofnunin þjónustar leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu.

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Norrænar samstarfsáætlanir – opið fyrir álitsinnsendingar til 26. apríl

    Ráðherranefndin hefur sett samstarfsáætlanirnar í opið samráð frá 26. mars til 26. apríl. Við gerð samstarfsáætlananna var lögð áhersla á að frjáls félagasamtök, atvinnulíf og aðrir viðeigandi aðilar kæmu að ferlinu.

    01. mar. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mennta- og barnamálaráðuneytið flytur í Borgartún 33

    Flutningur mennta- og barnamálaráðuneytisins í Borgartún 33 stendur nú yfir. Um tímabundinn flutning er að ræða á meðan unnið er að viðamiklum endurbótum á húsnæði ráðuneytisins að Sölvhólsgötu 4.

    01. mar. 2024Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum í Þróunarsjóð námsgagna og Sprotasjóð

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð námsgagna og Sprotasjóð. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2024 kl. 15.00.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Átt þú klukkustund til að stækka framtíðina?

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Verkefnið hefur það að markmiði að víkka sjóndeildarhring nemenda og gefa öllum ungmennum á Íslandi tækifæri til að eiga fjölbreyttar fyrirmyndir.

    28. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Umbylting skólaþjónustu

    Nýtt frumvarp um skólaþjónustu og inngildandi menntun hefur verið kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða eina af stærri breytingum sem ráðist hefur verið í innan menntakerfisins á Íslandi, en í því felst m.a. heildræn umgjörð um skólaþjónustu og aukið samræmi milli hagaðila til að mæta þörfum barna og skóla í síbreytilegu samfélagi.

    21. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Frumvarp til laga um skák í samráð

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs í Samráðgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um skák. Frumvarpið felur í sér nýtt fyrirkomulag um styrki til stórmeistara í skák þar sem horft verður til einstakra verkefna og framgangs. Markmiðið er einnig að styrkja afreksskákfólk og efnilegt skákfólk sem stefnir að alþjóðlegum árangri.

    20. feb. 2024Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Innflytjendur, Flóttafólk

    Heildarsýn í útlendingamálum

    Ríkisstjórnin sammæltist í dag um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Á grundvelli þeirra aðgerða verður tekið utan um málaflokkinn með heildstæðum hætti með aukinni samhæfingu á milli ráðuneyta og stofnana. Markmiðið er að stuðla að betri, skilvirkari og skýrari framkvæmd innan málaflokksins, og bættri þjónustu til að renna styrkari stoðum undir stjórn útlendingamála. Með þessari heildarsýn er lögð áhersla á mannúð og virðingu og unnið gegn skautun í íslensku samfélagi. Horft er sérstaklega til framkvæmdar þessara mála á Norðurlöndum þannig að aukið samræmi sé á milli landa.

    19. feb. 2024Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna

    Mennta- og barnamálaráðuneytið stóð ásamt samstarfsaðilum fyrir málþingi um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna á föstudag. Meginumfjöllunarefnið var hvaða leiðir eru færar til að auka aðgengi nemenda að vönduðum námsgögnum.

    16. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við vetraríþróttir

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gert samning við Vetraríþróttamiðstöð Íslands um stuðning við miðstöðina í þágu heilsueflingar og mótun tillagna um störf hennar og framtíðarsýn. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Halla Björk Reynisdóttir, formaður Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands undirrituðu samning þess efnis á Akureyri í vikunni.

    15. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýtt heimili á Akureyri fyrir börn og ungmenni í neyð

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samið við Akureyrarbæ um að setja á stofn og reka greiningar- og þjálfunarheimili fyrir börn og ungmenni í neyð. Um tilraunaverkefni er að ræða til að bregðast við brýnni þörf fyrir bættum úrræðum í barnavernd á Norðausturlandi.

    14. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Streymi frá málþingi um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna

    Mennta- og barnamálaráðuneytið heldur málþing um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna á föstudag 16. febrúar kl. 13:00–17:00 á Reykjavík Natura að Nauthólsvegi 52. Málþingið verður í streymi kl. 13:00–15:00 (fram að málstofum) hér.

    10. feb. 2024Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Menntaþing 2024 – endurgjöf og framhald

    Menntaþing var haldið á mánudag þar sem næstu aðgerðir í menntastefnu til ársins 2030 voru kynntar. Mennta- og barnamálaráðuneytið þakkar þinggestum fyrir framlag sitt og verður það nýtt við endanlega útfærslu á 2. aðgerðaáætlun menntastefnu sem nær yfir árin 2024–2027.

    09. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viljayfirlýsing um uppbyggingu Laugardalsvallar og nýjan frjálsíþróttaleikvang

    Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Reykjavíkurborg, Knattspyrnusamband Íslands og Frjálsíþróttasamband Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal.

    07. feb. 2024Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýir samningar um rekstur Fab Lab-smiðjanna á Íslandi

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa ákveðið að framlengja samninga ráðuneytanna við Fab Lab-smiðjurnar á Íslandi um þrjú ár. Samhliða verða framlögin hækkuð um samtals 91 m.kr. á samningatímsbilinu, eða úr 324 m.kr. í 415 m.kr. á næstu þremur árum.

    05. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Aukin þátttaka fatlaðra í íþróttum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið undirritaði samstarfsyfirlýsingu við Special Olympics í Evrópu vegna Special Olympics Global Leadership Coalition for Inclusion þann 30. apríl síðastliðinn. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði yfirlýsinguna ásamt David Evangelista, framkvæmdastjóra Special Olympics í Evrópu, Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra Special Olympics á Íslandi, og Edvard Þór Ingvarssyni fulltrúa iðkenda.

    02. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Þróun rekstrar grunnskóla frá 1996 til 2022

    Þróun rekstrar grunnskóla frá því að þeir færðust frá ríki til sveitarfélaga frá 1996 til fram til ársins 2022 er gerð skil í nýrri skýrslu. Þar eru dregnar saman niðurstöður greiningarvinnu sem kynnt var á Reynslunni ríkari – málþingi um skólamál sem haldið var í lok október sl.

    29. jan. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Aukinn stuðningur við syrgjendur

    Mennta- og barnamálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hafa gert samning við Sorgarmiðstöðina um aukinn stuðning við syrgjendur. Miðstöðin sinnir stuðningi, fræðslu og ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem vinna að velferð syrgjenda.

    26. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Farsælt samstarf við Samfés í þágu barna og ungmenna um allt land

    Markmið nýs samnings mennta- og barnamálaráðuneytisins við Samfés, Landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, er að tryggja framgang stefnu ráðuneytisins um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030, auka lýðræðislega þátttöku barna og ungmenna í ákvarðanatöku og styðja við innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, skrifaði undir samninginn í síðustu viku ásamt Guðrúnu Svövu Baldursdóttur formanni Samfés.

    26. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkir til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum, þ.e. eðlisfræði, efnafræði og líffræði, á árinu 2024.

    25. jan. 2024Flóttafólk, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar hafa undirritað samning um ný foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk í sveitarfélaginu.

    25. jan. 2024Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Málþing: Framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna

    Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til málþings um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna fyrir börn og ungmenni föstudaginn 16. febrúar kl. 13:00–17:00 á Reykjavík Natura að Nauthólsvegi 52 og í streymi. Markmið málþingsins er tryggja aukið aðgengi að vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum fyrir öll skólastig með hagsmuni barna og ungmenna að leiðarljósi.

    23. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Farsæld fyrir ættleidd börn

    Börn sem ættleidd eru til Íslands eru á ólíkum aldri við komu til landsins, með ólíkan bakgrunn og ólíkar þjónustuþarfir. Því hefur mennta- og barnamálaráðuneytið gert samning við Íslenska ættleiðingu um þróun verklags um samþætta þjónustu við börn sem ættleidd eru til Íslands. Samningurinn miðar að því að tryggja eftir þörfum að ættleidd börn fái samþætta þjónustu á grundvelli laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

    22. jan. 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 509/2023-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kæranda við syni sína.

    22. jan. 2024Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 499/2023-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun barnaverndarþjónustu um að loka máli

    19. jan. 2024Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Þróað verður stöðumat í íslensku fyrir innflytjendur

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hafa undirritað samning um að þróa rafrænt stöðumat í íslensku fyrir innflytjendur. Um er að ræða hönnun á stöðluðu prófi á netinu til að meta hæfni í íslensku samkvæmt staðli Evrópska tungumálarammans sem notaður er til að meta færni í tungumálum.

    19. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Pælt í PISA – næstu fundir

    Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á opinni fundaröð um niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Næsti fundur, Pælt í PISA – Greining á stöðu læsis, fer fram 23. janúar kl. 15:00–16:30 hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands í Stakkahlíð.

    19. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Íþróttasjóði 2024

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úhlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2024. Úthlutað er til 74 verkefna fyrir alls 27,9 milljónir.

    17. jan. 2024Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Endurskoðun á undanþágum frá aðalnámskrá grunnskóla

    Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á breytingum á aðalnámskrá grunnskóla um undanþágur frá skyldunámi og leiðir til að fullnægja skólaskyldu.

    10. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Kristjana Arnarsdóttir er nýr aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra

    Kristjana Arnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra.

    07. jan. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýjar íslenskubrautir fyrir nemendur af erlendum uppruna

    Kvennaskólinn í Reykjavík, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og Menntaskólinn á Ísafirði munu bjóða upp á nýjar íslenskubrautir í haust. Ætlunin er að auka námsframboð fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Aukningin fellur vel að heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum og aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu.

    29. des. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Sameiginlegar starfsstöðvar fyrir svæðisskipt verkefni ríkis og sveitarfélaga

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað starfshóp sem skoða á möguleika á sameiginlegum starfsstöðvum með hliðsjón af svæðisskiptum verkefnum ríkis og sveitarfélaga svo sem skólaþjónustu, farsæld barna, íþróttastarfi og æskulýðsstarfi.

    28. des. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Laus störf í mennta- og barnamálaráðuneytinu

    Hinn 1. apríl nk. tekur til starfa ný þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Nýju stofnuninni, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, er ætlað að styðja skólasamfélagið þannig að öll börn njóti framúrskarandi menntunar og farsældar. Á sama tíma verður greiningarhæfni mennta- og barnamálaráðuneytisins aukin og stjórnsýsla menntamála í ráðuneytinu efld. Miðstöðin hefur störf 1. apríl 2024 og kemur í stað Menntamálastofnunar sem verður lögð niður.

    22. des. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkveitingar úr Menntarannsóknasjóði 2023

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr Menntarannsóknarsjóði. Sótt var um tæpar 342 m.kr. og hlutu sex rannsóknarverkefni styrk að heildarupphæð 157,7 m.kr.

    19. des. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Bjartur lífsstíll fyrir eldra fólk

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hafa styrkt verkefnið Bjartur lífsstíll um 30 milljónir króna. Markmiðið er að auka lífsgæði eldra fólks um land allt í gegnum markvissa hreyfingu og auka líkur á að fólk geti búið lengur í heimahúsum.

    18. des. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Átta nýjar starfsstöðvar til eflingar íþróttastarfs

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ undirrituðu í dag samning um átta nýjar starfsstöðvar til eflingar íþróttastarfs á landsvísu. Samningurinn markar tímamót fyrir íþróttir á Íslandi en á grundvelli hans mun íþróttahreyfingin koma á fót átta svæðisskrifstofum með stuðningi stjórnvalda. Svæðisskrifstofurnar munu þjónusta öll 25 íþróttahéruð landsins og ná til tæplega 500 íþrótta- og ungmennafélaga um allt land og allra iðkenda á öllum aldri.

    18. des. 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Framkvæmdaáætlun í barnavernd – börn í öndvegi í allri nálgun

    Framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023–2027 var samþykkt á Alþingi í síðustu viku. Framkvæmdaáætlunin miðar að umfangsmikilli endurskoðun og úrbótum á þjónustu við börn og að börnin verði í öndvegi í allri nálgun. Hún leggur áherslu á mannréttindi og samfélagsþátttöku barna og að hver og ein aðgerð í áætluninni taki mið af öllum börnum óháð kynþætti, þjóðerni, trú, lífsskoðun, fötlun og kynhneigð.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband