18. sep. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stafrænt Ísland, Opinber þjónusta
Stafrænt Ísland eitt jákvæðasta dæmið um framfarir í opinberri stjórnsýslu
Ráðstefnan Tengjum ríkið var haldin í sjöunda sinn í gær undir yfirskriftinni „Framtíð Ísland.is“. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, setti ráðstefnuna og sagði í opnunarávarpi að betri og einfaldari stafræn þjónusta væri ein skilvirkasta leiðin til að reka ríkið af ábyrgð.