Nefndin starfar samkvæmt lögum um meðferð einkamála nr. 91/1991. , kafli XX, gr. 125-128 um gjafsókn.
í grein nr. 125. segir:
- Í þessum kafla er orðið gjafsókn notað bæði um gjafsókn og gjafvörn.
- Ráðherra skal skipa nefnd þriggja lögfræðinga, gjafsóknarnefnd, til fjögurra ára í senn til að veita umsögn um umsóknir um gjafsókn. Einn nefndarmanna skal skipaður eftir tilnefningu Lögmannafélags Íslands en annar eftir tilnefningu Dómarafélags Íslands. Ráðherra getur kveðið nánar á um starfshætti gjafsóknarnefndar í reglugerð.
- Umsókn um gjafsókn skal vera skrifleg og beint til ráðherra. Í henni skal greint skýrlega frá máli sem hún varðar og rökstutt að skilyrðum fyrir gjafsókn sé fullnægt. Umsókn skulu fylgja gögn eftir þörfum.
- Ráðherra veitir gjafsókn eftir umsókn aðila. Hún verður því aðeins veitt að gjafsóknarnefnd mæli með því.
Sjá einnig:
Skipan nefndar
Nefndina skipa til og með 30. júní 2028:
- Áslaug Árnadóttir, lögfræðingur og jafnframt formaður, án tilnefningar, varamaður Finnur Magnússon, lögmaður.
- Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, landsréttardómari, tilnefnd af Dómarafélagi Íslands, varamaður Hlynur Jónsson, héraðsdómari.
- Jóhannes Albert Sævarsson, lögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands,
varamaður Þórdís Bjarnadóttir, lögmaður.