Stýrihópur um mótun vegvísis fyrir verndun hafsvæða

Skipaður 8. júlí 2026.

Fjölbreytt nýting hafsvæða annars vegar og áform um aukna vernd hins vegar krefst markvissrar stefnumörkunar og samráðs hlutaðeigandi ráðuneyta. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá desember 2024 segir að ráðist verði í aðgerðir til að vernda hafsvæði. Til að unnt sé að taka markviss skref í verndun og svæðisbundinni stýringu hafsvæða, þurfa stjórnvöld að vinna eftir skýrum vegvísi.

Hlutverk stýrihópsins er eftirfarandi:

•       Ákvarða vegvísi fyrir vinnu íslenskra stjórnvalda í málefnum verndarsvæða í hafi og hafsvæða með virka svæðisvernd til ársins 2030, með hliðsjón af markmiðum Samnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni. Í vegvísinum verði ákvarðað til hvaða viðmiða verði litið, virk svæðisvernd skilgreind, hvaða stjórntæki séu árangursrík til verndunar og stjórnunar hafsvæða, og hlutverk og ábyrgð ráðuneyta og stofnana í því verkefni skýrð. Jafnframt verði skilgreind áfangamarkmið í vinnunni. Vegvísirinn verði lagður fyrir atvinnuvegráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til samþykktar.

•       Eftir því sem vinnu starfshópsins vindur fram geri stýrihópurinn tillögu til ráðherranna um ný hafsvæði sem uppfylla skilyrði um virka svæðisvernd eða verndarsvæði í hafi eftir því sem vinnu stýrihópsins vindur fram sem hægt er að tilkynna í viðeigandi alþjóðastofnana.

•       Tryggja að svæði sem uppfylla viðmið um verndarsvæði eða svæði með virka svæðisvernd séu skráð á fullnægjandi hátt í viðeigandi alþjóðlega gagnagrunna.

•       Gera tillögur til atvinnuvegaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um aðrar aðgerðir sem miði að eflingu verndunar og svæðisbundinnar stýringar hafsvæða.

Stýrihópurinn skal skila tillögum að vegvísi eigi síðar en 19. nóvember 2026 og jafnframt að skila skýrslu til ráðherranna um framgang vinnunnar eigi sjaldnar en á árs fresti.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:

Án tilnefningar
Björn Helgi Barkarson, formaður, 
Freydís Vigfúsdóttir

Samkvæmt tilnefningu atvinnuvegaráðuneytis
Agnar Bragi Bragason
Hallveig Ólafsdóttir

Samkvæmt tilnefningu Hafarannsóknastofnunar
Steinunn Hilma Ólafsdóttir

Samkvæmt tilnefningu Fiskistofu
Erna Jónsdóttir

Samkvæmt tilnefningu Náttúrufræðistofnunar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson

Samkvæmt tilnefningu Náttúruverndarstofnunar
Þórdís Björt Sigþórsdóttir

Samkvæmt tilnefningu Umhverfis- og orkustofnun
Hólmfríður Þorsteinsdóttir, 

Var efnið hjálplegt?