Stýrihópur um uppbyggingu hjúkrunarheimila

Stýrihópur um uppbyggingu hjúkrunarheimila hefur það hlutverk að tryggja eftirfylgni með áherslum stjórnvalda í uppbyggingu hjúkrunarheimila og upplýsa ráðherranefndi og viðkomandi ráðuneyti um framgang verkefna ársfjórðungslega, með framlagningu stöðuskýrslna.

Stýrihópurinn starfar undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytis með fulltrúum frá forsætisráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og Sjúkratryggingum Íslands. Með hópnum vinna verkefnisstjórar frá FSRE og sérfræðingar úr félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:

  • Ásdís Halla Bragadóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, félags- og húsnæðismálaráðuneyti
  • Anna Sigrún Baldursdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti
  • Hrafn Hlynsson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneyti
  • Elsa B. Finnsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
  • Páll Ásgeir Guðmundsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands