Svæðisstjórn Snæfellsjökulsþjóðgarðs 2026-2030

Skipuð 24. nóvember 2026


Samkvæmt 82. gr. laga um náttúruvernd skal ráðherra skipa svæðisstjórn sem hefur umsjón með náttúruvernd á því svæði sem friðlýst hefur verið sem þjóðgarður. Í svæðisstjórn skulu að lágmarki sitja tveir fulltrúar frá hlutaðeigandi sveitarfélögum og skal einn þeirra vera formaður stjórnar. Séu sveitarfélög sem standa að þjóðgarðinum fleiri en tvö skal hvert þeirra tilnefna einn fulltrúa. Einn fulltrúi skal tilnefndur af náttúru- og umhverfisverndarsamtökum, einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum og einn fulltrúi skipaður af ráðherra án tilnefningar. Einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af ferðamálasamtökum á starfssvæði þjóðgarðsins og Samtökum ferðaþjónustunnar skal eiga áheyrnaraðild að fundum svæðisstjórnar. Séu ekki starfandi ferðamálasamtök á starfssvæði þjóðgarðsins skulu Samtök ferðaþjónustunnar tilnefna áheyrnarfulltrúa af starfssvæði þjóðgarðsins. Heimilt er að fela svæðisstjórn umsjón með öðrum friðlýstum svæðum í nágrenni þjóðgarðs.

Hlutverk svæðisstjórnar er að móta stefnu fyrir þjóðgarðinn með gerð og endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar í samstarfi við þjóðgarðsvörð. Svæðisstjórn tekur einnig þátt í meðferð annarra stefnumarkandi mála er varða þjóðgarðinn.

Svæðisstjórn er hluti af Náttúruverndarstofnun, eins og nánar er kveðið á um í lögum um stofnunina og skipunarbréfi ráðherra. Svæðisstjórn kemur að þróun þeirrar þjónustu sem stofnunin annast innan þjóðgarðs og veitir forstöðumanni stofnunarinnar og öðrum stjórnendum ráðgjöf um áherslur í rekstri.

Svæðisstjórnin er þannig skipað:

Samkvæmt tilnefningu Snæfellsbæjar
Kristinn Jónasson, formaður
Júníana Björg Óttarsdóttir

Án tilnefningar
Magnús A. Sigurðsson, minjavörður Vesturlands

Samkvæmt tilnefningu umhverfis- og náttúruverndarsamtaka
Daníel Bergmann

Samkvæmt tilnefningu samtaka útivistarfélaga
Sigurður Guðjónsson

Áheyrnaraðild að fundum stjórnar:
Ágúst Elvar Bjarnason tilnefndur sameiginlega af Samtökum ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtökum Snæfellsness


 

Var efnið hjálplegt?