Skipaður 24. nóvember 2026 til loka árs 2029
Vinnuhópur 3 tekur saman stöðu þekkingar um áhrif loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á vistkerfi, efnahagslíf, atvinnuvegi, samfélag og innviði. Í samfélagslegum málum skal einnig taka tillit til menningarlegra, siðfræðilegra og heilsufarslegra þátta, hvernig ólík svæði og hópar eru misviðkvæmir og hvaða möguleikar eru til að aðlagast breytingunum. Vinnan tekur einnig til flókinnar áhættu þvert á landamæri. Taka þarf mið af skýrslum vinnuhóps 2 hjá IPCC og byggja á þeirri þekkingu sem kemur fram í starfi vinnuhóps 1.
Í vinnuhópnum sitja:
- Hafdís Hanna Ægisdóttir, leiðtogi hóps, forstöðumaður hjá Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands
- Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
- Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur
- Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
- Hlynur Bárðarson, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun
Var efnið hjálplegt?