09 nóvember 2026
/
Innviðaráðuneytið

Starfshópur um mikilvæga innviði á Reykjanesskaga skilar áfangaskýrslu

{image.Description}

Starfshópur innviðaráðherra um mikilvæga innviði á Reykjanesskaga hefur skilað fyrstu áfangaskýrslu sinni. Starfshópnum er ætlað að greina, meta og flokka mikilvæga innviði á Reykjanesskaga og gera tillögu að forgangsröðun mótvægisaðgerða gegn ógn við þessa innviði af völdum náttúruvár.

Í áfangaskýrslunni eru fyrirliggjandi upplýsingar um náttúruvá og innviði settar fram og samþættar. Fjallað er um samfélagslegt mikilvægi, kerfislegt hlutverk og innbyrðis vensl innviða á Reykjanesskaga. Þá er kannað hvernig náttúruvá getur haft bein áhrif á innviði og hvernig röskun getur haft áhrif á önnur kerfi og leitt til afleiddra eða keðjuverkandi samfélagslegra áhrifa.

Helstu niðurstöður

Helstu niðurstöður áfangaskýrslunnar eru eftirfarandi:

  • Samfélagslegt mikilvægi. Samfélagslegt mikilvægi innviða og útsetning þeirra fyrir náttúruvá eru aðskildir þættir. Innviðir geta verið mjög mikilvægir fyrir samfélagið þótt útsetning þeirra fyrir tiltekinni náttúruvá sé lítil. Mikil útsetning gerir innviði á hinn bóginn ekki sjálfkrafa mikilvæga. Beina þarf sérstakri athygli að tilvikum þar sem mikil útsetning fer saman við mikið samfélagslegt eða kerfislegt mikilvægi og takmarkaða möguleika á að viðhalda þjónustu með öðrum hætti.
  • Samfella grunnþjónustu. Samfella grunnþjónustu ræðst af þjónustukeðjum en ekki einstökum mannvirkjum einum og sér. Öflun eða framleiðsla á raforku, heitu vatni eða neysluvatni getur verið óskert þótt bilun í flutningskerfi komi í veg fyrir að þjónustan berist til notenda. Með sama hætti geta aðfangakeðjur utan viðkomandi innviða ráðið því hvort starfsemi þeirra geti haldið áfram.
  • Veikleikar innviða. Helstu veikleikar innviða eru einkum takmörkuð leiðafjölbreytni, samþjöppun vensla og háð milli innviðakerfa og einstakra hlekkja sem stór hluti þjónustukeðju getur verið háður. Þar getur röskun á einstökum innviðum eða tengingu skert þjónustu á stóru svæði eða haft áhrif á fleiri innviðakerfi.
  • Kerfislegt mikilvægi. Kerfislegt mikilvægi getur orðið til þegar lykiltengingar og aðfangakeðjur safnast í kerfishnúta. Dæmi um þetta eru Svartsengissvæðið, Keflavíkurflugvöllur og nágrenni, Fitjar og Ásbrú og Helguvík og lykiltengingar í raforku-, hitaveitu-, neysluvatns-, fjarskipta- og samgöngukerfum. Röskun á slíkum innviðum getur haft áhrif langt út fyrir mannvirkið eða staðinn sem verður fyrir beinum áhrifum.
  • Varaúrræði. Varaleiðir, varaúrræði og áfallaþol ráða miklu um umfang afleiðinga. Að til staðar sé varaafl, birgðir, varavatnsöflun, aðrar samgönguleiðir eða fjarskiptatengingar jafngildir því þó ekki sjálfkrafa að unnt sé að viðhalda sambærilegri þjónustu við langvarandi röskun. Þar skiptir fremur sköpum hver afkastageta varalausna er gagnvart náttúruvá. Einnig hversu langan tíma það tekur að virkja slíkar lausnir, hversu lengi þær endast og hversu sjálfstæðar þær eru.
  • Keðjuverkun áhrifa. Áhrif náttúruvár geta borist milli innviðakerfa og magnast eftir því sem þjónusturof varir. Raforka, fjarskipti og samgöngur gegna þar sérstöku hlutverki þar sem röskun þeirra getur bæði haft bein áhrif og torveldað rekstur, viðbrögð og endurheimt annarra kerfa. Samverkandi náttúruvá getur enn fremur haft áhrif á fleiri en einn hluta kerfis eða bæði megininnviði og varaúrræði innan sömu atburðarásar.

Starfshópurinn hefur þegar átt samráð við sveitarfélög, opinberar stofnanir og rekstraraðila mikilvægra innviða á svæðinu og fyrir höndum er frekara samráð við framangreinda aðila.

Næstu skref

Á næsta stigi verkefnisins verður fyrirliggjandi þekking samþætt frekar og einstök viðfangsefni dýpkuð þar sem þörf er á. Á þeim grunni verða raunhæfir mótvægiskostir skilgreindir og metnir með hliðsjón af kostnaði, ávinningi, framkvæmanleika en ekki síst af líkum á að með þeim megi draga úr áhættu fyrir samfélagið. Markmiðið er að skapa grundvöll til að forgangsraða aðgerðum eða samsetningu aðgerða sem draga mest úr samfélagslegri og kerfislegri áhættu og styrkja áfallaþol samfélagsins til lengri tíma.

Rétt er að undirstrika að verkefni starfshópsins snýr að forgangsröðun mótvægisaðgerða til lengri tíma litið og felur ekki í sér undirbúning almannavarnaviðbragðs við yfirvofandi vá. Þá mun starfshópurinn hvorki greina ábyrgðaraðila einstakra mótvægisaðgerða, sem geta verið bæði ríki og sveitarfélög en einnig einkaaðilar, né hver þeirra eigi að bera kostnaðinn af slíkum aðgerðum. Markmiðið er á hinn bóginn að greining starfshópsins nýtist þessum aðilum við mat á kostum þess að ráðast í mótvægisaðgerðir til lengri tíma litið.

Var efnið hjálplegt?