Endurskoðun lyfjalöggjafar ESB, útflutningur brotaáls, neyðarfjarskipti, landamæraöryggi, ráðherrafundir o.fl.
Í Vaktinni að þessu sinni:
- Endurskoðun lyfjalöggjafar ESB – rafrænir fylgiseðlar
- Áform ESB um útflutningstoll á brotaál sett í bið
- Löggjafartillögur um samevrópskt samskiptakerfi fyrir neyðar- og viðbragðsþjónustu
- Aðgerðaáætlun í kjölfar atburðanna í Ceuta
- Óformlegur fundur heilbrigðisráðherra í Dublin
- Óformlegur fundur orkuráðherra í Dublin
- Formlegur fundur innanríkisráðherra ESB
- Fundur vinnuhóps EFTA um orkumál á Íslandi
- Opið samráð hjá framkvæmdastjórn ESB
Endurskoðun lyfjalöggjafar ESB – rafrænir fylgiseðlar
Ráðherraráð ESB samþykkti 28. september sl. afstöðu sína til umfangsmikillar endurskoðunar lyfjalöggjafar sambandsins. Í afstöðu ráðsins er gert ráð fyrir að aðildarríkjum verði heimilt að ákveða, að undangengnu samráði við notendur lyfja, heilbrigðisstarfsfólk og aðra hagaðila, að rafrænir fylgiseðlar komi í stað pappírsseðla fyrir tiltekna lyfjaflokka eða öll lyf. Rafrænum fylgiseðlum er m.a. ætlað að bæta aðgengi að lyfjum á litlum málsvæðum, auðvelda sameiginleg lyfjainnkaup og veita notendum lyfja aðgang að uppfærðum upplýsingum á tungumáli sem þeir skilja. Þó er gert ráð fyrir að notendur lyfja eigi áfram rétt á prentuðu eintaki af fylgiseðli án endurgjalds, óski þeir þess. Evrópuþingið þarf að samþykkja breytingarnar formlega áður en nýja löggjöfin getur tekið gildi.
Rafrænir fylgiseðlar hafa lengi verið sérstakt hagsmunamál Íslands. Árið 2019 leiddi Ísland norræna hagsmunagæslu gagnvart ESB með það að markmiði að ríkjum yrði heimilt að nota rafræna fylgiseðla í stað prentaðra. Þá má geta þess að í mars 2021 hófst á Íslandi tilraunaverkefni um notkun rafrænna fylgiseðla fyrir tiltekin sjúkrahúslyf.
Lyfjastofnun Evrópu (e. European Medicines Agency, EMA) og lyfjayfirvöld aðildarríkjanna vinna þegar að undirbúningi rafrænnar miðlunar lyfjaupplýsinga. Sameiginlegir tæknistaðlar liggja fyrir og drög að vegvísi um innleiðinguna voru birt í mars 2026.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Áform ESB um útflutningstoll á brotaál sett í bið
Framkvæmdastjórn ESB staðfesti 11. september sl. að áform um útflutningstoll á brotaál hefðu verið sett í bið og að þess í stað yrði stuðst við reglur ESB um flutning úrgangs til að draga úr útflutningi brotaáls frá ESB. Í drögum að fyrirhuguðum viðskiptaráðstöfunum sem fréttamiðillinn Reuters hafði undir höndum var gert ráð fyrir 15% útflutningstolli á brotaál með undanþágu fyrir útflutning til Indlands. Undanþágan hefði samkvæmt heimildum Reuters dregið verulega úr áhrifum tollsins, enda er Indland stærsti kaupandi brotaáls frá ESB.
Aðgerðirnar höfðu verið boðaðar sem liður í aðgerðaáætlun ESB um tryggara framboð mikilvægra hráefna innan sambandsins (e. RESourceEU) og áttu að tryggja evrópskum álframleiðendum og endurvinnslufyrirtækjum nægjanlegan aðgang að brotaáli til frekari vinnslu. Samráð framkvæmdastjórnarinnar um fyrirhugaðar viðskiptaráðstafanir stóð frá 19. desember 2025 til 31. janúar 2026 en upphaflega var stefnt að því að leggja fram tillögu um slíkar ráðstafanir á öðrum ársfjórðungi 2026.
Samkvæmt reglugerð ESB um flutning úrgangs verður frá 21. maí 2027 almennt óheimilt að flytja úrgang sem ekki telst hættulegur frá ESB til ríkja utan OECD, nema viðkomandi ríki séu á lista framkvæmdastjórnarinnar yfir ríki sem mega taka við tilteknum úrgangstegundum. Til að komast á listann þurfa ríkin að sýna fram á að úrgangurinn verði meðhöndlaður með umhverfislega forsvaranlegum hætti. Samráð um drög að listanum stendur yfir til 16. október nk.
Ísland var árið 2024 fjórði stærsti útflytjandi áls og álvara til ESB, á eftir Noregi, Kína og Tyrklandi, með 7,3% hlutdeild í innflutningsverðmæti þessara vara. Takmarkanir á útflutningi brotaáls geta aukið framboð þess innan ESB og haft áhrif á verðmyndun og eftirspurn eftir innfluttu áli. Aðgerðirnar kunna þannig að hafa óbein áhrif á markaðsaðstæður fyrir íslenskan áliðnað.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Löggjafartillögur um samevrópskt samskiptakerfi fyrir neyðar- og viðbragðsþjónustu
Framkvæmdastjórn ESB kynnti 30. september sl. tillögur að reglugerðum um samevrópskt samskiptakerfi fyrir neyðar- og viðbragðsþjónustu (e. European Union Critical Communication System, EUCCS). Kerfinu er ætlað að tengja saman samskiptakerfi lögreglu, slökkviliðs, bráðaþjónustu og almannavarna og auðvelda samstarf þeirra yfir landamæri. Núverandi kerfi eru ekki nægilega samhæfð og samtengd, sem getur torveldað viðbrögð við náttúruhamförum, hryðjuverkum og öðrum neyðartilvikum. Þátttökuríkin eiga þó áfram að hafa forræði yfir eigin samskiptakerfum og starfsemi viðbragðsaðila.
Með kerfinu eiga viðbragðsaðilar að geta deilt skilaboðum, myndböndum og staðsetningarupplýsingum í rauntíma eftir öruggum samskiptaleiðum. Gert er ráð fyrir gervihnattasambandi til vara þegar fjarskiptakerfi á jörðu niðri bregðast, svo sem vegna rafmagnsleysis eða náttúruhamfara. Jafnframt er gert ráð fyrir kröfum um vernd gegn netárásum. Lykilhlutar kerfisins eiga að byggja á evrópskri tækni og þannig draga úr þörf fyrir tækni frá ríkjum utan Evrópu.
Verkefnið er ein lykilaðgerða í stefnu ESB um innri öryggismál (e. ProtectEU) og viðbúnaðarstefnu ESB (e. EU Preparedness Union Strategy). Tillögurnar fara nú til umfjöllunar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB. Samkvæmt kynningu framkvæmdastjórnarinnar er stefnt að því að tenging landsbundinna kerfa við EUCCS hefjist árið 2030.
Í megintillögunni um stofnun EUCCS er sérstaklega tekið fram að reglugerðin feli í sér þróun Schengen-regluverksins. Hin tillagan, sem varðar notkun kerfisins af almannavörnum og öðrum viðbragðsaðilum, er jafnframt merkt EES-tengd. Í framkvæmd gæti kerfið auðveldað íslenskum viðbragðsaðilum að vinna með erlendum liðum, bæði þegar aðstoð berst til Íslands í tengslum við náttúruhamfarir og þegar íslenskir aðilar taka þátt í aðgerðum erlendis.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- stefnuáherslur Von der Leyen 2024-2029
- viðbúnaðarstefnu ESB
- stefnu ESB um innri öryggismál
- skýrslu Niinistö um eflingu viðbúnaðar á sviði almannavarna og hermála.
Aðgerðaáætlun í kjölfar atburðanna í Ceuta
Framkvæmdastjórn ESB kynnti 29. september sl. aðgerðaáætlun til að fyrirbyggja skyndilegar og umfangsmiklar ólöglegar komur fólks við ytri landamæri ESB og bregðast við þeim. Áætlunin er sett fram í kjölfar atburðanna í Ceuta í lok júlí sl., sem sýndu hversu skyndilega mikill fjöldi fólks getur reynt að komast yfir ytri landamæri ESB. Innanríkisráðherrar ESB ræddu atburðina á sérstökum fundi 4. ágúst sl., sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sótti fyrir hönd Íslands. Þá lagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í stefnuræðu sinni 16. september sl. áherslu á að efla þyrfti viðbúnað ESB við slíkar aðstæður. Framkvæmdastjórnin kynnti áætlunina á fundi innanríkisráðherra 1. október sl.
Markmið áætlunarinnar er að styrkja viðnámsþol, öryggi og sameiginleg viðbrögð ESB. Aðgerðir eru lagðar til á fimm sviðum, þ.e. að koma í veg fyrir ólöglega fólksflutninga með aukinni samvinnu við samstarfsríki, styrkja enn frekar ytri landamæri ESB, efla vöktun og viðvörunarkerfi sambandsins, vinna gegn smygli á farandfólki og mansali og efla endursendingar þeirra sem ekki eiga rétt til dvalar.
Til að bæta samvinnu við þriðju ríki eru m.a. lagðar til aðgerðir gegn undirliggjandi orsökum ólöglegra fólksflutninga, ásamt aukinni upplýsingamiðlun og betri viðvörunarkerfum. Til að styrkja ytri landamæri ESB boðar framkvæmdastjórnin tillögu um aukið hlutverk og styrkingu stöðuliðs Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu (e. European Border and Coast Guard Agency, Frontex). Þá hyggst framkvæmdastjórnin móta nýjan evrópskan ramma um neyðarviðbrögð við ytri landamæri, einkum þegar fjöldahreyfingar fólks eru skipulagðar og nýttar sem þrýstitæki gagnvart ESB eða aðildarríkjum þess. Áhersla er jafnframt lögð á að greina fyrr merki um yfirvofandi fjöldakomur fólks og bregðast hraðar við. Í því skyni er lagt til að Frontex fái aukið umboð til vöktunar samfélagsmiðla í tengslum við stjórn ytri landamæra og að aðildarríki miðli nauðsynlegum upplýsingum um atburði og aðstæður sem hafa áhrif á ytri landamæri ESB í gegnum evrópska landamæragæslukerfið (e. European Border Surveillance System, EUROSUR). Jafnframt er lagt til að nýta úrræði samkvæmt reglugerð um stafræna þjónustu (e. Digital Services Act, DSA) til að bregðast við neyðarástandi og upplýsingaóreiðu á netinu með skjótum upplýsingaskiptum og samhæfðum viðbrögðum stjórnvalda, samfélagsmiðla og leitarvéla.
Framkvæmdastjórnin leggur jafnframt áherslu á aðgerðir gegn smygl- og mansalshópum. Hún hvetur m.a. ráðherraráðið til að samþykkja fyrirhugað refsiaðgerðakerfi gegn smyglurum og hvetur jafnframt til þess að viðræðum sem miða að því að efla getu Löggæslustofnunar Evrópusambandsins (e. European Union Agency for Law Enforcement Cooperation, Europol) til að greina smygl á fólki og mansal á netinu verði hraðað. Þá verði samvinna við einkaaðila á samstarfsvettvangi ESB (e. European Union Internet Forum) og við fjármálastofnanir og greiðsluþjónustuveitendur efld. Hvað varðar endursendingar fólks sem ekki á rétt til dvalar í ESB verður sjónum beint að betra samstarfi við þriðju ríki um endurviðtöku þess og auknu hlutverki Frontex við undirbúning og framkvæmd endursendinga. Ráðherraráðið samþykkti 1. október nýjar reglur um endursendingar. Í áætluninni er lögð áhersla á framkvæmd þeirra og aukna notkun rafrænna lausna við meðferð endursendingarmála. Í fréttatilkynningu dómsmálaráðuneytisins í kjölfar fundarins 4. ágúst kom fram að ráðherrarnir hefðu m.a. lagt áherslu á baráttu gegn skipulögðu smygli á fólki og samhæfða upplýsingagjöf.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- ráðherrafund EU Internet Forum
- stefnu ESB um fólksflutninga
- Schengen-stöðuskýrslu
- framkvæmd verndarsamkomulags ESB
- samkomulag um tillögu um sameiginlegt evrópskt endursendingarkerfi
- stefnuræðu Ursulu von der Leyen.
Óformlegur fundur heilbrigðisráðherra í Dublin
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tók þátt í óformlegum fundi heilbrigðisráðherra ESB í Dublin dagana 30. september og 1. október sl. Írski heilbrigðisráðherrann Jennifer Carroll MacNeill stýrði fundinum, en Írland gegnir nú formennsku í ráðherraráði ESB. Auk heilbrigðisráðherra aðildarríkja ESB tóku heilbrigðisráðherrar EFTA-ríkjanna þátt, ásamt fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og Lyfjastofnunar Evrópu.
Meginviðfangsefni fundarins voru nýsköpun og lífvísindi, lýðheilsa og samþætting heilbrigðisþjónustu, auk aðgengis sjúklinga að lyfjum og nýjum meðferðum. Ráðherrarnir ræddu hvernig efla mætti rannsóknir, nýsköpun og lyfjaframleiðslu í Evrópu og hvernig nýting tækni og heilbrigðisgagna gæti stuðlað að snemmbærari íhlutun, skilvirkari þjónustu og bættu aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Jafnframt var rætt hvernig styrkja mætti evrópskt lyfjakerfi og tryggja skjótari og jafnari aðgang sjúklinga að lyfjum.
Sérstaklega var fjallað um áætlun ESB um hjarta- og æðaheilsu (e. Safe Hearts Plan), sem leggur áherslu á forvarnir, snemmbæra greiningu og samfellda meðferð og eftirfylgni. Sem lið í framkvæmd áætlunarinnar lagði framkvæmdastjórnin 28. september sl. fram tillögu að tilmælum ráðherraráðsins um heilsufarsskoðanir til að greina snemma hjarta- og æðasjúkdóma og áhættuþætti þeirra. Stefnt er að því að ráðherraráðið samþykki tilmælin á fundi heilbrigðisráðherra 8. desember nk.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Óformlegur fundur orkuráðherra í Dublin
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra sótti óformlegan fund orkuráðherra ESB í Dublin dagana 28.–29. september sl. fyrir hönd Íslands. Auk aðildarríkja ESB tóku fulltrúar EFTA-ríkjanna og annarra samstarfsríkja þátt í einstökum fundarlotum, þar á meðal Kanada, Moldóva, Svartfjallaland, Úkraína og Bretland. Meginviðfangsefni fundarins voru orka á viðráðanlegu verði, nýsköpun og þróun orkumarkaða, auk orkuöryggis og alþjóðlegs samstarfs.
Í umræðum á fundinum var fjallað um hækkandi orkuverð og óvissu um framboð jarðefnaeldsneytis í ljósi átaka í Miðausturlöndum. Lögð var áhersla á að verja viðkvæma hópa fyrir verðhækkunum og halda jafnframt áfram að bæta orkunýtni og hraða hreinum orkuskiptum til að draga úr áhrifum sveiflna í orkuverði og orkuframboði. Jafnframt var rætt um þörf fyrir sveigjanleika við mótun orku- og loftslagsramma ESB eftir 2030. Áhersla var einnig lögð á nánara samstarf við samstarfsríki um orkuöryggi, innviði, aðfangakeðjur og fjölbreyttari orkugjafa.
Af Íslands hálfu var lögð áhersla á hrein orkuskipti og endurnýjanlega orku og að jarðhiti fengi aukið vægi í umræðum og ákvörðunum um orkuöryggi. Markmið um græna orku þyrftu að vera metnaðarfull en leiðirnar að þeim sveigjanlegar, enda væri orkubúskapur Íslands ólíkur því sem gerist í öðrum Evrópuríkjum. Ísland fagnaði jafnframt samstarfi ESB við nágranna- og samstarfsríki og benti á að Ísland hefði margt fram að færa í slíku samstarfi. Þá fagnaði Ísland vinnu við sérstaka evrópska aðgerðaáætlun um jarðhita.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Formlegur fundur innanríkisráðherra ESB
Hinn 1. október sl. fór fram formlegur fundur innanríkisráðherra ESB á vettvangi ráðherraráðsins. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sótti fundinn fyrir hönd Íslands, sem er samstarfsríki Schengen (e. Schengen Associated Country). Í tengslum við fundinn fór fram kvöldverðarfundur ráðherra Norðurlandanna sem fara með málefni útlendinga, þar sem rætt var um nýstárlegar lausnir í útlendingamálum og norrænt samstarf um endursendingar fólks sem ekki á rétt til dvalar til upprunaríkja eða annarra móttökuríkja.
Dagskrá ráðherrafundarins hófst með kynningu á reglulegu yfirliti framkvæmdastjórnarinnar um stöðu mála innan Schengen-svæðisins (e. Schengen Barometer+). Jafnframt var kynnt ný aðgerðaáætlun í kjölfar atburðanna í Ceuta. Spænski innanríkisráðherrann fór yfir stöðuna og lagði áherslu á mikilvægi samstöðu Schengen-ríkjanna. Í máli dómsmálaráðherra kom fram að mikilvægt væri að Schengen-ríkin stæðu saman í neyðarástandi og að huga þyrfti að því hvernig bæta mætti viðvörunarkerfi vegna atburða á borð við þá sem áttu sér stað í Ceuta. Hún lýsti áhyggjum af fjölþáttaógnum og notkun samfélagsmiðla í því samhengi, m.a. misnotkun farandfólks í pólitískum tilgangi (e. instrumentalisation). Ráðherrarnir ræddu jafnframt útgáfu Schengen-vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara og kallaði dómsmálaráðherra eftir hertum aðgerðum á því sviði.
Dómsmálaráðherra undirstrikaði jafnframt nauðsyn þess að efla upplýsingaskipti og samvinnu á sviði löggæslu innan Schengen-svæðisins og tryggja víðtæka þátttöku Schengen-samstarfsríkjanna í samstarfi ESB á sviði innri öryggismála. Hún fagnaði nýrri löggjafartillögu um Europol, þar sem sérstaklega er gert ráð fyrir nánara samstarfi Löggæslustofnunar Evrópusambandsins (e. European Union Agency for Law Enforcement Cooperation, Europol) við Schengen-samstarfsríkin. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að í samstarfssamningum við Schengen-samstarfsríkin geti verið kveðið á um aukin upplýsingaskipti, aðgang að gagnagrunnum og þátttöku í tilteknum samstarfsvettvangi stofnunarinnar. Þá lýsti ráðherra áhuga á frekari samvinnu á sviði innri öryggismála, m.a. varðandi aðgang að rafrænum sönnunargögnum yfir landamæri (e. e-Evidence).
Á lokuðum hádegisverðarfundi ræddu ráðherrarnir áhrif alþjóðamála og innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu á innra öryggi ESB. Jafnframt var rætt um samstarf við þriðju ríki um endurviðtökur fólks sem ekki á rétt til dvalar í ESB. Ráðherrarnir ákváðu að auka eftirfylgni með samstarfi þeirra ríkja sem flestir einstaklingar í málsmeðferð á ytri landamærum koma frá og að grípa til aðgerða þar sem ófullnægjandi samstarf torveldar framkvæmd endursendinga. Þá fóru írska formennskan og framkvæmdastjórn ESB yfir stöðu framkvæmdar verndarsamkomulags ESB (e. Pact on Migration and Asylum), sem kom til framkvæmda 12. júní sl.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- fund innanríkisráðherra ESB
- tillögu um eflingu á starfsemi Europol og Eurojust
- framkvæmd verndarsamkomulags ESB.
Fundur vinnuhóps EFTA um orkumál á Íslandi
Fundur vinnuhóps EFTA um orkumál fór fram í Reykjavík dagana 6.–7. október sl. Fundir vinnuhópsins fara yfirleitt fram í Brussel, en EFTA/EES-ríkin hafa þó stöku sinnum boðist til að halda fundi í heimalöndum sínum. Samhliða fundinum heimsóttu fundarmenn Alþingi, Hellisheiðarvirkjun og starfsstöð Carbfix.
Aðstæður í orkumálum á Íslandi eru að ýmsu leyti frábrugðnar því sem gerist annars staðar í Evrópu, einkum vegna umfangsmikillar nýtingar jarðhita til húshitunar og hás hlutfalls endurnýjanlegrar orku. Þessi sérstaða hefur m.a. kallað á aðlaganir við upptöku gerða ESB um orkunýtni í EES-samninginn. Fundir á Íslandi gefa tækifæri til að kynna þessar aðstæður og auka skilning á þeim.
Enn bíður fjöldi gerða á orkusviði upptöku í EES-samninginn, en upptökuhallinn hefur þó minnkað á síðustu misserum. Viðræður EFTA/EES-ríkjanna við ESB um lausn ágreiningsefna sem hafa tafið upptöku þessara gerða hafa jafnframt þokast áfram. Á fundinum í Reykjavík fóru fulltrúar EFTA-ríkjanna þriggja sem eiga aðild að EES-samningnum – Íslands, Noregs og Liechtensteins – yfir stöðu þessara mála og ræddu mögulegar lausnir, bæði sín á milli og með fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Opið samráð hjá framkvæmdastjórn ESB
Hér er yfirlit yfir opið samráð sem kann að hafa þýðingu fyrir Ísland. Yfirlitið tekur bæði til samráðs í vefgátt framkvæmdastjórnar ESB (e. Have Your Say) og annars opins samráðs sem framkvæmdastjórnin stendur fyrir.
Monitoring the functioning of the new EU Steel Regulation
Samráðið varðar framkvæmd nýrrar stálreglugerðar og áhrif tollkvótakerfis hennar á framleiðendur, kaupendur og útflytjendur stálvara.
Frestur til 11. október.
Energy-efficient product legislation – Omnibus simplification
Samráðið varðar tillögu að einföldun reglna um orku- og hjólbarðamerkingar og minni stjórnsýslubyrði við framkvæmd þeirra.
Frestur til 15. október.
Dual-Use Regulation – overall evaluation
Samráðið varðar mat á reglum ESB um útflutning, miðlun og umflutning vara og tækni sem geta nýst bæði til borgaralegra og hernaðarlegra nota.
Frestur til 15. október.
European Partnerships under Horizon Europe 2028–2034
Samráðið varðar framtíð evrópskra samstarfsverkefna innan Horizon Europe fyrir tímabilið 2028–2034, m.a. sameiginleg fyrirtæki (e. Joint Undertakings) og samstarfsverkefni á grundvelli 185. gr. sáttmálans um starfshætti ESB.
Frestur til 16. október.
Fair access to financial services for cancer survivors
Samráðið varðar aðgang fólks sem hefur lokið krabbameinsmeðferð að fjármálaþjónustu, m.a. mögulegar aðgerðir til að tryggja að fyrri sjúkdómssaga takmarki ekki með ósanngjörnum hætti aðgang að þjónustunni.
Frestur til 27. október.
EU fishers – training and certification standards
Samráðið varðar hvort og hvernig samræma eigi kröfur um menntun, þjálfun og starfsréttindi sjómanna á fiskiskipum, með það að markmiði að auka öryggi og auðvelda þeim að starfa í öðrum ríkjum.
Frestur til 29. október.
Copyright – creativity and innovation
Samráðið varðar höfundarétt í stafrænu umhverfi, m.a. notkun höfundaréttarvarins efnis við þróun gervigreindar, ólöglega miðlun viðburða á netinu, endurgjald til tónlistarflytjenda og notkun verka við vísindarannsóknir.
Frestur til 3. nóvember.
Samráðið varðar mögulegar breytingar á virðisaukaskattsreglum til að styðja betur við hringrásarhagkerfið, m.a. reglur um notaðar vörur, eyðingu nothæfra vara og frádrátt vegna fólksbifreiða í atvinnurekstri.
Frestur til 4. nóvember.
Balanced Approach Regulation – airport noise
Samráðið varðar mat á reglum um hávaðavarnir og rekstrartakmarkanir á flugvöllum.
Frestur til 19. nóvember.
Child online safety – EU Kids Act
Samráðið varðar tillögu að reglugerð um öryggi barna á netinu, m.a. aldurstakmarkanir á samfélagsmiðlum og kröfur til stafrænnar þjónustu og gervigreindarkerfa sem börn nota.
Frestur til 3. desember.
Atlantic Maritime and Macro-regional Strategy
Samráðið varðar undirbúning stefnu um samstarf á Atlantshafssvæðinu, m.a. á sviði hafmála, öryggis, sjálfbærni og samkeppnishæfni.
Frestur til 26. nóvember.
Technical Measures Regulation – implementation
Samráðið varðar framkvæmd reglna um tæknilegar ráðstafanir við fiskveiðar, m.a. veiðarfæri, möskvastærðir og lokun veiðisvæða, og áhrif þeirra á sjálfbærni veiða.
Frestur til 27. nóvember.
International Procurement Instrument – review
Samráðið varðar fyrstu endurskoðun International Procurement Instrument, m.a. gildissvið og framkvæmd reglnanna og aðgang fyrirtækja að opinberum innkaupamörkuðum.
Frestur til 1. desember.
Territorial supply constraints in the Single Market
Samráðið varðar mögulegar aðgerðir gegn takmörkunum framleiðenda á því hvar smásalar og heildsalar geta keypt vörur innan innri markaðarins.
Frestur til 4. desember.
Data centres in Europe – minimum performance standards
Samráðið varðar lágmarksviðmið um orkunýtni og umhverfisframmistöðu gagnavera.
Frestur til 14. desember.
***
Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.
Ritstjóri: Sigurður Örn Guðleifsson, sendiráðunautur.
Ábyrgðarmaður: Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra.
Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar á netfangið [email protected].
Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].