07 maí 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðUmhverfisþing haldið 9. nóvemberUmhverfis- og auðlindaráðherra boðar til XI. Umhverfisþings föstudaginn 9. nóvember 2018. Þingið fer fram á Grand Hótel Reykjavík.
05 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðRannsóknarinnviðir og evrópskt samstarf: tækifæri og áskoranirMennta- og menningarmálaráðuneytið heldur kynningarfund í tengslum við undirbúning að gerð vegvísis um rannsóknarinnviði mánudaginn 7. maí.
05 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðForritað á íslensku – umhverfi micro:bit tölvanna þýttMicro:bit smátölvur njóta mikilla vinsælda hjá yngstu forriturunum. Nú er hægt að forrita þar á íslensku.
04 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðAfrakstur nýsköpunarstofu um þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinuFjórar ýtarlegar tillögur um aðgerðir til að bæta þjónustu við aldraða eru afrakstur nýsköpunarstofu um þessi mál sem haldinn var í Höfða í lok apríl. Aðstandendur nýsköpunarstofunnar hafa ákveðið að efna til formlegs samstarfs til að vinna nánar úr tillögunum og hrinda þeim í framkvæmd.
04 maí 2018DómsmálaráðuneytiðRíkissaksóknari svarar dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra óskaði eftir því 20. apríl sl. að ríkissaksóknari kannaði, með vísan til 19. gr. sakamálalaga, tildrög þess að einstaklingur var vistaður á Sogni í kjölfar fyrirtöku gæsluvarðhaldskröfu 16. apríl sl. og lagalegan grundvöll þeirrar frelsissviptingar. Ríkissaksóknari hefur nú greint dómsmálaráðuneytinu frá niðurstöðu sinni og fyrirhuguðum viðbrögðum.
04 maí 2018Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, AtvinnuvegaráðuneytiðKvikmyndin Kona fer í stríð fær styrkRíkisstjórnin samþykkti í dag að veita kvikmyndinni Kona fer í stríð styrk af ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af kynningarkostnaði vegna þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
04 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðAðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á ÍslandiStarfshópur sem unnið hefur tillögur að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hefur skilað heilbrigðisráðherra niðurstöðum sínum. Aðgerðaáætlunin verður kynnt á málþingi geðsviðs Landspítala um sjálfsvígsfornarnir í dag.
04 maí 2018DómsmálaráðuneytiðSamningur um talsmannaþjónustu Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun skrifuðu undir samning á dögunum við Rauða krossinn á Íslandi um aðstoð og þjónustu við einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.
03 maí 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðMiklar veðurfarsbreytingar og ör súrnun sjávarNý skýrsla um afleiðingar loftslagsbreytinga á náttúru og samfélag á Íslandi var kynnt í Veðurstofu Íslands í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á móti fyrsta eintakinu og sagði við það tilefni að skýrslan myndi nýtast í starfi stjórnvalda, meðal annars við fræðslu, eflingu vöktunar og aðlögun að loftslagsbreytingum.
03 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðSkipað í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu heilbrigðisþjónustuSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Elsu B. Friðfinnsdóttur skrifstofustjóra yfir skrifstofu heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu. Skipunin er í samræmi við mat ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Elsu hæfasta úr hópi þrettán umsækjenda.
03 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðNiðurstöður um aukaúthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrri hluta árs 2018Föstudaginn 27. apríl 2018 rann út tilboðsfrestur í aukaúthlutun tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2018, sbr. reglugerð nr. 1010/2017.
03 maí 2018ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra fundaði með öldungardeildarþingmönnum franska þjóðþingsinsKatrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með fjórum öldungardeildarþingmönnum frá franska þjóðþinginu sem eru í vináttuhópi Norður-Evrópu.
03 maí 2018HeilbrigðisráðuneytiðTillögur starfshóps um bætta tannheilsu öryrkja og aldraðraLeitað verður samninga við tannlækna um nýja gjaldskrá vegna tannlækninga öryrkja og aldraðra og kostnaðarþátttaka ríkisins aukin. Byggt verður á tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum þessa hóps sem skilaði tillögum sínum fyrir nokkru.
03 maí 2018ForsætisráðuneytiðFjárhæðir atvinnuleysistrygginga hækka frá og með 1. maí 2018Atvinnuleysisbætur hækkuðu 1. maí sl. í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í þágu félagslegs stöðugleika sem gefin var út 28. febrúar sl.
03 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðBreyting á reglugerð um sveinsprófBreyting á reglugerð um sveinspróf hefur tekið gildi sem heimilar nemendum sem eiga innan við 10% ólokið af vinnustaðanámi sínu að taka sveinspróf.
03 maí 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðHjólum í vinnunaHeilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, er hafið. Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgönguleiðum.
03 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytiðÞroskahjálp og framtíðinÁ fundi mennta- og menningarmálaráðherra með fulltrúum Þroskahjálpar var rætt um réttindi og tækifæri fatlaðs fólks til menntunar og þátttöku í menningarlífinu.
02 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðSkýrsla starfshóps um tollasamning og mótvægisaðgerðir stjórnvaldaMeð vísan til umræðu í fjölmiðlum um mótvægisaðgerðir vegna tollasamnings Íslands við Evrópusambandið vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.
02 maí 2018ForsætisráðuneytiðGrunnskólanemar úr Árbæjarskóla funduðu með forsætisráðherraÍda Marín, Selma María, Elín Rósa og Astrid Eyberg, grunnskólanemar úr Árbæjarskóla, funduðu með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í morgun.
02 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðVinna hafin við mótun nýsköpunarstefnuÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, lagði á síðasta ríkisstjórnarfundi fram tillögu að gerð heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Kveðið er á um mótun stefnunnar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og er hún nú formlega hafin.
02 maí 2018UtanríkisráðuneytiðUtankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis hafin Hægt er að greiða atkvæði á sendiskrifstofum og hjá ræðismönnum Íslands erlendis.
02 maí 2018ForsætisráðuneytiðKjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, stýrir óháðri úttekt á málum á sviði barnaverndarAð tillögu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hefur verið ákveðið að fram fari óháð úttekt á tilteknum málum á sviði barnaverndar hér á landi, sem verið hafa til umfjöllunar í velferðarráðuneytinu og hjá velferðarnefnd Alþingis.
02 maí 2018AtvinnuvegaráðuneytiðNiðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018Föstudaginn 20. apríl 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 318/2018 fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018.
02 maí 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytiðIngvar J. Rögnvaldsson settur ríkisskattstjóriFrá og með 1. maí 2018 hefur Ingvar J. Rögnvaldsson verið tímabundið settur til að gegna embætti ríkisskattstjóra.
02 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðSamstarf við öflug ungmennasamtökLandsamband ungmennafélaga, LUF, eru regnhlífasamtök frjálsra félagasamtaka ungs fólks á Ísland. Á dögunum skrifuðu fulltrúar LUF undir samstarfssamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem styrkja mun starfsemi þess næstu þrjú árin.
02 maí 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðÍslenskur talgreinir í loftiðVefgátt fyrir nýjan íslenskan talgreini var opnuð á máltæknikynningu í Háskólanum í Reykjavík á dögunum. Á síðunni getur fólk kynnt sér talgreiningu og upplifað hvernig hún snýr talmáli í ritmál.
30 apríl 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðStuðningur við VotlendissjóðGuðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Árni Bragason landgræðslustjóri skrifuðu í dag undir samning um verkefni á sviði loftslagsmála. Markmiðið er að efla starf varðandi loftslagsbókhald og rannsóknir sem tengjast landnotkun og loftslagsmálum.
30 apríl 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðFramsýnn Fossvogsskóli flaggar Grænfánanum Fossvogsskóli í Reykjavík hlaut í dag Grænfánann, alþjóðlega umhverfisviðurkenningu sem Landvernd veitir, fyrir þátttöku í verkefninu Skólar á grænni grein. Fossvogsskóli hefur lagt alúð í umhverfismál í yfir þrjá áratugi.
30 apríl 2018InnviðaráðuneytiðÚttekt Oxford-háskóla á stöðu netöryggis og aðgerðir til eflingar þessOxford-háskóli, sem var fenginn í júní 2017 til að gera úttekt á stöðu netöryggis í íslensku samfélagi, hefur skilað ítarlegri úttekt sinni. Þar er að finna ráðleggingar til úrbóta sem ráðuneyti og stofnanir hafa þegar tekið til skoðunar og ákvörðunar varðandi skipulag næstu skrefa.…
30 apríl 2018InnviðaráðuneytiðEndurskoðaðar áætlanir um úthlutanir til sveitarfélaga árið 2018Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir framlaga til sveitarfélaga á árinu 2018. Að tillögu nefndarinnar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 9.225 m.kr. og áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 8.260 m.kr.
30 apríl 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðNorðurlöndin mæta samfélagslegum áskorunum með þekkingu og samvinnuVið getum verið stolt af mörgu á Norðurlöndum. Samfélagslegar áskoranir aukast ekki bara í öðrum heimshlutum heldur einnig í nærumhverfi okkar og þörf er á meiri samvinnu og þekkingu til að takast á við þær. Á fundi norrænna mennta- og vísindaráðherra í Stokkhólmi á dögunum var lagður mikilvægur grunnur að áframhaldandi samvinnu á sviði menntamála á Norðurlöndunum.
28 apríl 2018ForsætisráðuneytiðKatrín Jakobsdóttir á afmælishátíð Framsýnar á Húsavík Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði afmælishátíð stéttarfélagsins Framsýnar í dag, þar sem fagnað var hundrað ára afmæli Verkakvennafélagsins Vonar.
27 apríl 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðSamningar náðust í kvöld um heimaþjónustu ljósmæðraSamningar tókust í kvöld milli Sjúkratrygginga Íslands og ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu. Endurskoðaður rammasamningur um þjónustuna hefur verið undirritaður af samningsaðilum og staðfestur af heilbrigðisráðherra. Ljósmæður sem veitt hafa þjónustu á grundvelli rammasamnings munu hefja störf nú þegar.
27 apríl 2018DómsmálaráðuneytiðMargvíslegar réttarbætur fyrir fatlað fólk staðfestar með lögum frá AlþingiAlþingi hefur samþykkt heildarlög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lög um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lagabreytingarnar fela m.a. í sér lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).
27 apríl 2018InnviðaráðuneytiðRíkisstjórnin úthlutar fjórum milljörðum króna til brýnna vegaframkvæmda Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að veita fjögurra milljarða króna framlag til brýnna vegaframkvæmda árið 2018 úr almennum varasjóði sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með.…
27 apríl 2018UtanríkisráðuneytiðEining er undirstaða NATO-samstarfsinsUtanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu samskiptin við Rússland, ástandið í Sýrlandi, stuðning við Írak og Afganistan auk stækkunarstefnu bandalagsins á fundi sínum sem lauk nú síðdegis í Brussel. Fundinum var slitið með fundarhamri sem Íslendingar gáfu á sínum tíma.
27 apríl 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðEfnahagsleg áhrif friðlýstra svæða greindGuðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tilkynnti í dag um samstarfsverkefni milli ráðuneytisins og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um skipulagt mat á efnahagslegum áhrifum friðlýstra svæða.
27 apríl 2018HeilbrigðisráðuneytiðSkýrsla Ríkisendurskoðunar um Heilsugæslu á landsbyggðinniHeildstæð heilbrigðisstefna er forsenda árangursríkrar heilsugæslu á landsbyggðinni og þess að hægt sé að endurbæta fjármögnunarkerfi heilsugæslunnar. Því er brýnt að heilbrigðisráðherra leggi fram slíka stefnu. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, Heilsugæsla á landsbyggðinni.
27 apríl 2018Dómsmálaráðuneytið, ForsætisráðuneytiðRíkisstjórnin styrkir UNICEF um fimm milljónir kr. vegna útgáfu skýrslu um efnislega stöðu barna á ÍslandiRíkisstjórnin mun veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að styrkja útgáfu skýrslu um stöðu efnislegs skorts barna á Íslandi, sem UNICEF á Íslandi mun vinna í samstarfi við Hagstofu Íslands.
27 apríl 2018ForsætisráðuneytiðStefnumótun og áætlanagerð Stjórnarráðsins styrkist verulegaStefnuráð Stjórnarráðsins hefur framkvæmt könnun á stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins og forsætisráðherra kynnti niðurstöður könnunarinnar í ríkisstjórn í morgun.
27 apríl 2018DómsmálaráðuneytiðFjölmenn rakararastofuráðstefna undir forystu Íslands og Danmerkur á Evrópuráðsþinginu í gærÍsland og Danmörk stóðu að fjölmennum rakarastofuviðburði fyrir Evrópuráðið og Evrópuráðsþingið í gær.…
27 apríl 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytiðFramgangur áætlunar um losun fjármagnshaftaFjármála- og efnahagsráðherra birti í dag greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.
27 apríl 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðFjölgum fjársjóðumBókmenntir er samofnar sögu okkar og við ætlum í sameiningu að tryggja að svo verði áfram. Nýju barna- og unglingabókastyrkirnir eru liður í því að fjölga þeim fjársjóðum sem íslenskar bókmenntir hafa að geyma.
27 apríl 2018Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenningarmót í FellaskólaNemendur Fellaskóla í Breiðholti buðu mennta- og menningarmálaráðherra í skyndiheimsreisu í gær. Þar fór fram Menningarmót hjá nemendum í 8. bekk sem kynntu áhugamál sín og fjölbreytta menningu, hvert á sinn hátt.
26 apríl 2018Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðOpið fyrir umsagnir um verkferla í íþróttum Í kjölfar #églíka yfirlýsinga íþróttakvenna hefur mennta- og menningarmálaráðherra skipað starfshóp til þess að gera tillögur um frekari aðgerðir. Opið er fyrir umsagnir til hópsins í Samráðsgátt til. 7. maí.
26 apríl 2018UtanríkisráðuneytiðRáðherra opnaði margmiðlunarsýningu í BerlínÓgnarkraftar náttúrinnar voru í aðalhlutverki í Felleshus, norrænni miðstöð sendiráðanna í Berlín í dag þegar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra opnaði margmiðlunarsýninguna MAGMA: CREATING ICELAND. Sýningin er í tilefni 100 ára fullveldis Íslands.…