11 júlí 2025
Ísland og EFTA-ríkin ljúka viðræðum við Singapúr um stafrænt hagkerfi
EFTA-ríkin, það er Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa komist að samkomulagi við Singapúr um samning um stafrænt hagkerfi. Samkomulagið verður hluti af fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Singapúr, sem hefur verið í gildi frá árinu 2003.