17. október 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið
Mikil tækifæri til að byggja upp starfsemi á Bakka
Starfshópur um atvinnumál á Húsavík og nágrenni hefur skilað skýrslu sinni og var hún rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Forsætisráðherra skipaði starfshópinn í júní sl. en verkefni hans var að kortleggja stöðu atvinnumála á svæðinu og vinna tillögur að viðbrögðum stjórnvalda í kjölfar tímabundinnar rekstrarstöðvunar kísilvers PCC á Bakka.