17 febrúar 2026
Utanríkisráðherra fundaði með japönskum starfsbróður sínum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er stödd í opinberri vinnuheimsókn í Japan. Á fundi sem hún átti með Toshimitsu Motegi, utanríkisráðherra Japans, í dag var rætt um tvíhliða samskipti Íslands og Japans, viðskiptamál, öryggismál í Evrópu, norðurslóðamál og stöðuna á Indó-Kyrrahafssvæðinu.