15 apríl 2013
Mikil tækifæri í viðskiptum við Kína
<p>Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Gao Hucheng, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, eru sammála um að mikil tækifæri til nýrra samstarfsverkefna milli íslenskra og kínverskra fyrirtækja muni opnast með fríverslunarsamningnum, sem þeir tveir munu undirrita fyrir hönd þjóða sinna síðar í dag að viðstöddum forsætisráðherrum þjóðanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Li Keqiang.</p>