10 maí 1998
Forgangsröðun í heilbrigðismálum: Niðurstöður nefndar um forgangsröðun
<p>Á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hefur á undanförnum misserum verið unnið mikið starf á sviði stefnumótunar og áætlanagerðar í heilbrigðismálum. Má þar nefna mótun stefnu í upplýsingamálum heilbrigðiskerfisins, uppbyggingu og þróun fjarlækninga, aðgerðir í gæðamálum, árangursstjórnun og vinnu að breyttri skipan sjúkrahúsmála.</p>