04 apríl 2014
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga
<p>Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014 hefst 7. apríl nk. og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis.</p>