09 september 2015
Göngum í skólann hleypt af stað
<p>Átakinu ,,Göngum í skólann“ var hleypt formlega af stað í morgun í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ en að því standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og nokkrir samstarfsaðilar. Markmiðið er að hvetja grunnskólanema til að ganga eða hjóla í skólann, að huga að hreyfingu um leið og hugað er að öryggi í umferðinni.</p>