02 nóvember 2015
Álagning lögaðila vegna rekstrarársins 2014
<p>Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu á lögaðila á grundvelli rekstrarársins 2014. Álögð gjöld eru samtals 183,8 ma.kr. samanborið við 181,1 ma.kr. á síðasta ári og nemur hækkunin því um 2,7 ma.kr. Stærstu breytingarnar á milli ára snerta tekjuskatt lögaðila, sem hækkar um 8,2 ma.kr. og sérstakan fjársýsluskatt, sem lækkar um 7.ma.kr.</p>