27 apríl 2004
Samkomulag um uppbyggingu við Hringbraut
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Þórólfur Árnason, borgarstjóri, undirrituðu í dag samkomulag um skipulag lóðar Landspítala – háskólasjúkrahúss í tengslum við ákvörðun um framtíðaruppbyggingu spítalans og stofnana Háskóla Íslands sem tengjast honum á Hringbrautarsvæðinu.