23 mars 2011
Rýnifundi um byggðamál lokið
<p>Rýnifundi um 22. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, byggðastefnu ESB og samræmingu uppbyggingarsjóða, lauk í Brussel í dag. Á fundinum, sem var sá síðari af tveimur, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla. Fyrir íslenska hópnum fór Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, formaður samningahópsins.</p>