23 maí 2011
Samhæfingarstöð almannavarna stýrir aðgerðum vegna eldgossins
<p>Fjallað var um eldgosið í Grímsvötnum á aukafundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra reifaði málið og Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá Almannavörnum og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, voru einnig á fundinum.</p>