16 janúar 2017
Fundað um jafnréttismál og verkefnin framundan
<p>Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, átti í morgun fund með Kristínu Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, þar sem þau ræddu um helstu verkefni sem framundan eru á sviði jafnréttismála, með áherslu á jafnrétti á vinnumarkaði og innleiðingu jafnlaunastaðals.</p>