26 febrúar 2010
Utanríkisráðuneytið og RKÍ undirrita samstarfsyfirlýsingu
<p>Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða kross Íslands, undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu sem nær til ársins 2011. Í tilefni undirritunarinnar tók utanríkisráðherra fram að Rauði kross Íslands væri að vinna afar gott og mikilsvert starf bæði innanlands og utan.</p>