26 júní 2025
Fyrsta rannsóknasetur HÍ á sviði menntavísinda verður á Eskifirði
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna nýs Rannsóknasetur Háskóla Íslands sem staðsett verður á Eskifirði. Um er að ræða fyrsta rannsóknarsetur Háskóla Íslands á sviði menntavísinda.